Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Side 8
Guðni Ágústsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, segir það ekki kost
fyrir Framsóknarflokkinn einan að
ganga til samstarfs við Sjálfstæð-
isflokkinn eins og nú háttar til og
kveðst til í að ganga til þingkosninga
á næstu vikum. „Vegna ástandsins
taldi ég að ríkisstjórnin yrði að sitja
og við yrðum að gera upp pólitík-
ina síðar. En stjórnarflokkarnir hafa
reynst vanhæfir til verka. Þeir berja
hvor annan með gaddasvipu. Þetta
er að breytast í harmleik og algert
ráðaleysi.“
Steingrímur vill kosningar
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður vinstri-grænna, vill kosning-
ar á útmánuðum, hugsanlega í mars
eða apríl á næsta ári, til þess að gera
upp málin. „Stjórnin er að þrotum
komin. Þetta er í rauninni dæmt til
að mistakast. Það er hluti af lausn
vandans að kjósa. Við förum ekki
í stjórn með Sjálfstæðisflokknum.
Gleymdu því,“ segir Steingrímur.
Áherslur Guðna Ágústssonar
og Steingríms J. Sigfússonar varð-
andi næstu leiki á sviði stjórnmála-
baráttunnar eru mismunandi þótt
báðir hallist afdráttarlaust að nauð-
syn þess að efna til þingkosninga
sem fyrst. Steingrímur útilokar ekki
samstjórn eða þjóðstjórn ef upp úr
stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingarinnar slitnar á
næstunni. Guðni nefnir utanþings-
stjórn eða embættismannastjórn.
Hvorugur þeirra, Guðni eða Stein-
grímur, er ginnkeyptur fyrir því að
lýsa fyrirfram yfir stuðningi eða
hlutleysi við minnihlutastjórn Sam-
fylkingarinnar fram að kosningum á
vormánuðum. Þjóðin þarf að gang-
ast undir skilyrði Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins næstu misserin. Auk þess
blasir við vandi í ríkisfjármálum, at-
vinnu- og velferðarmálum og hlut-
aðeigandi flokkar yrðu að koma sér
saman um stefnumið í þeim efnum
fram að kosningum. Svo er að sjá
sem formenn Framsóknarflokksins
og VG kjósi fremur að bíða og sjá
hverju fram vindur á stjórnarheim-
ilinu.
Kosningar um Evrópupólitík
Nýjar kannanir á fylgi flokk-
anna sýna 10 til 15 prósentustiga
fylgistap Sjálfstæðisflokksins sem
bendir til þess að kjósendur telji
flokkinn bera sérstaka ábyrgð á
hruni bankanna og kreppunni sem
nú er skollin á. Samfylkingin sýn-
ist á hinn bóginn njóta þess að
hafa haldið fast við þá stefnu sína
að sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu og skipta út krónunni fyrir
evru. Könnun Gallups, sem birt er
í Morgunblaðinu um helgina, sýn-
ir að 80 prósent kjósenda vilja taka
upp evru. Við þessu hefur forysta
VG brugðist með því að ræða þann
kost að taka upp myntsamstarf við
Noreg þótt svo að kjósendur flokks-
ins veðji allt eins á evru. Á sama
tíma er að sjá sem forystumenn
Sjálfstæðisflokksins séu nú sem óð-
ast að söðla um og láta af andstöðu
við aðildarumsókn að ESB og upp-
töku evru. Framsóknarfokkurinn
er klofinn í afstöðu til málsins og
bíður uppgjörs á miðstjórnarfundi
síðar í mánuðinum og landsfundi
snemma á næsta ári.
Þægileg vígstaða
Samfylkingar
Samfylkingin virðist í þægilegri
stöðu með 37 prósenta fylgi í nýrri
könnun og vaxandi fylgi við Evrópu-
stefnu sína. Heimildarmaður DV
úr flokksforystunni telur jafnvel að
það sé hentugt fyrir flokkinn að hafa
Davíð Oddsson enn um hríð í Seðla-
bankanum. Með því móti beinist
óánægjan einkum að Sjálfstæðis-
flokknum sem enn haldi hlífiskildi
yfir honum í Seðlabankanum. Sjálf-
stæðisflokkurinn sé því sem eitrað
peð fyrir þann flokk sem vilji taka
upp samstarf við hann nú, hugsan-
lega í aðdraganda kosninga.
Hinn kostur Samfylkingarinn-
ar er að reiða til höggs og fara fram
af fullum þunga gegn Davíð Odds-
syni og bankastjórn Seðlabankans
og stilla samstarfsflokknum upp við
vegg.
Þótt forsætisráðherrann hafi
þingrofsvaldið er ekki þar með sagt
að það vald ráði úrslitum. Telji ann-
ar hvor stjórnarflokkanna sér best
borgið með því að slíta stjórnar-
samstarfinu er augljóst að efnt verð-
ur til þingkosninga innan tíðar. Í
nýrri Gallupkönnun Morgunblaðs-
ins um helgina reyndust 60 prósent
aðspurðra vera hlynnt því að flýta
þingkosningum.
mánudagur 3. nóvember 20088 Fréttir
Áföll SjÁlfStæðiSflokkSinS
1978 - vinstriflokkarnir sópa til sín
fylgi - sjálfstæðismenn missa völdin í
borginni í fyrsta sinn og detta úr
ríkisstjórn.
1980 - gunnar Thoroddsen myndar
stjórn með Framsóknarflokki og
alþýðubandalagi - varaformaður
flokksins myndar vinstristjórn þvert á
vilja flokks og formanns.
1987 - borgaraflokkurinn tekur til sín
fylgi - albert guðmundsson stofnar
nýjan flokk, fylgi Sjálfstæðisflokks í
sögulegu lágmarki og ekki hægt að
mynda tveggja flokka stjórn.
1994 - reykjavíkurlistinn nær völdum
í reykjavík - sjálfstæðismenn
valdalausir í borginni í 12 ár og hafa
enn ekki náð meirihlutafylgi þar.
1999 - Frjálslyndi flokkurinn kemur til
sögunnar - Sverrir Hermannsson,
fyrrverandi ráðherra flokksins, og
guðjón arnar Kristjánsson, fyrrverandi
varaþingmaður, stofna flokk.
2003 - Fylgi flokksins hrynur -
Sjálfstæðisflokkurinn fær aðeins 33,7
prósent atkvæða í kosningum,
niðurstaðan er sú að forsætisráðuneyt-
ið er gefið eftir í stjórnarmyndunarvið-
ræðum.
2007 - reI-málið - sex borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins snúa baki við
leiðtoga sínum með þeim afleiðingum
að flokkurinn dettur (tímabundið) úr
meirihlutasamstarfi.
Samstarf stjórnarflokkanna virðist í andarslitrunum og trúnaður milli forystumanna þverr. Á sama tíma telja
stórnarandstöðuflokkarnir ekki kost að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn og krefjast kosninga.
Fjarar undan
stjórnarsamstarFinu
Jóhann hauKSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
„Þeir berja hvor annan með gaddasvipu. Þetta er
að breytast í harmleik og algert ráðaleysi.“
Steingrímur J. Sigfússon og Guðni Ágústsson
Formenn Framsóknarflokks og vg vilja kosningar sem
fyrst og útiloka samstarf við Sjálfstæðisflokk í
aðdraganda kosninga.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir h. haarde geir tapar vegna tryggðar
sinnar við davíð Oddsson í Seðlabankanum. vígstaða Samfylkingar virðist góð
með nærri 37 prósenta fylgi í nýrri skoðanakönnun.