Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Qupperneq 9
Dýrast í Grafarvogi Þegar um hefðbundin 14" fólks- bíladekk á stálfelgum er að ræða er ódýrast að skipta um hjá Borgar- dekk, 5.490 krónur. Þar á eftir kemur Pitstop við Rauðhellu í Hafnarfirði, þjónustan kostar 5.643 krónur. Betra grip býður 5.925, Max 1 5.832 og Bíla- búð Benna 5.998 krónur. Allar upp- hæðirnar miðast við staðgreiðslu- verð en hjá Bílabúð Benna var tekið fram að yfirleitt væri slíkur afsláttur veittur. Hjá Bílaáttunni kostar við- vikið 6.200 krónur, Dekkjahöllinni 6.340 en dýrast reyndist að umfelga hjá Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, 6.368 krónur. 75 prósenta munur í 17" Þegar spurt var um 17" dekk á álfelgum vandaðist málið. Þegar um þá stærð ræðir er gerður grein- armunur á fólksbíla- og jepplinga- dekkjum. Hjá Betra grip og Pitstop kostar umfelgun á 17" álfelgum fyr- ir fólksbíla það sama og fyrir aðra fólksbíla, svo dæmi séu tekin. Til að flækja málið enn meira getur skil- greiningin á jepplingi verið breyti- leg. Í könnuninni var sem sagt spurt um 17 tommu dekk á álfelgum fyr- ir jeppling, en afar sjaldgæft er að jepplingar séu á stálfelgum nú til dags. Ódýrast er að láta umfelga og jafnvægisstilla og skipta um 17" jepplingadekk hjá Pitstop. Það kost- ar 6.291 krónu. Fast á hæla þeim fylgir Borgardekk en þar kostar 6.490 krónur að skipta um dekk, um- felga og jafnvægisstilla dekk á öllum tegundum jepplinga. Hjá Bílaátt- unni kostar slíkt viðvik 7.500 krón- ur en 7.970 hjá Bílabúð Benna. Þessi þjónusta er dýrust hjá Hjólbarða- verkstæði Grafarvogs, 10.980 krón- ur. Verðmunur á hæsta og lægsta verði í þessum flokki er því um 75 prósent. Svipað verð í jeppaflokki Þegar kemur að 33" dekkjum er ódýrast að skipta hjá Borgardekk, 9.490. Bílabúð Benna býður 9.997 krónur fyrir verkið og Pitstop 10.163. Dýrast er hjá Max 1 á Bíldshöfða. Þar kostar þjónustan 11.160 krónur og því munar í þessum flokki aðeins um 18 prósentum á hæsta og lægsta verði. Það verður að teljast lítið mið- að við hversu miklu munar á verði á dekkjaskiptum í flokki jepplinga. Hér á síðunni má sjá töflu yfir verð á umfelgun, dekkjaskiptum og jafnvægisstillingu fyrir þrjár stærð- ir felgna 14, 17 og 33 tommu felgur. Um er að ræða staðgreiðsluverð. mánudagur 3. nóvember 2008 9Neytendur Ekki reyndist verulegur munur á kostnaði við skiptingu á dekkjum, umfelgun og jafn- vægisstillingu í verðkönnun sem DV framkvæmdi fyrir helgi. Á því er sú undantekning að í flokki jepplinga munar 75 prósentum á hæsta verðinu og lægsta. Borgardekk reynd- ist bjóða upp á ódýrustu þjónustuna í tveimur af þremur flokkum sem kannaðir voru. Borgardekk ódýrastVið mælum með......því að fólk skiptist á fatnaði. vegna hruns krónunnar er ekkert grín að kaupa sér föt í dag. ef þú átt vini eða fjölskyldumeðlimi sem eru í svipuðum holdum og þú sjálf/-ur getur verið snjallt að skiptast á fáeinum flíkum. Það getur lífgað umtalsvert upp á annars fábrotið úrval í fataskápnum. Þó flíkin sé í sjálfu sér ekki ný er hún ný fyrir þér. Þegar þú ert svo farin/-n að sakna þess sem þú lánaðir hinum, þá skiptið þið einfaldlega aftur. Horfðu á Skjá einn nú fer hver að verða síðastur að horfa á þá fjölmörgu skemmtilegu sjónvarpsþætti sem Skjá einn býður upp á. ef marka má fréttir af uppsögnum allra starfsmanna gæti Skjár einn heyrt sögunni til innan þriggja mánaða. Það má því með sanni segja að nú séu síðustu forvöð að njóta ókeypis sjónvarpsefnis. njóttu þess að horfa en gættu þess að detta inn í þáttaraðir sem hætt verður að sýna fljótlega eftir áramót. Borgardekk reyndist bjóða upp á ódýrustu umfelgunina á fólksbíla- og jeppadekkjum í könnum sem DV framkvæmdi fyrir helgi. DV hafði samband við átta fyrirtæki og spurði hvað kostaði að skipta um dekk, með umfelgun og jafnvægisstillingu. Borg- ardekk í Borgartúni reyndist vera lægst í tveimur af þeim þremur stærð- um sem spurt var um. Pitstop reyndist hins vegar ódýrast í flokki jepplinga. Óverulegur verðmunur Verðmunur á þessari þjónustu reyndist ekki verulegur. Þannig mun- ar aðeins 16 prósentum á hæsta og lægsta verði á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á 14 tommu stálf- elgum. DV hringdi í átta fyrirtæki á höf- uðborgarsvæðinu og spurði hvað dekkjaskipting, umfelgun og jafnvæg- isstilling dekkja kostar á 14" stálfelg- um, 17" álfelgum og 33" stálfelgum. Athygli vekur að fyrirtækin nota mjög mismunandi aðferðir við verðflokkun. Hjá sumum fyrirtækjum skiptir miklu máli hvort um álfelgur eða stálfelgur er að ræða. Yfirleitt er dýrara að skipta um dekk ef bíllinn er á álfelgum en þó bjóða sum dekkjaverkstæðin eitt verð fyrir fólksbíla, eitt fyrir jepplinga og eitt fast verð fyrir jeppa. Þá gildir einu úr hvaða málmi felgurnar eru eða um hvaða stærð er að ræða. Vert er að taka fram að fyrirtækin bjóða mörg hver tíu prósenta stað- greiðsluafslátt en verðin sem eru í töflunni eru staðgreiðsluverð. Þá bjóða flestir einhverja aðra afslætti, til dæmis til eldri borgara eða meðlima í félagasamtökum. VERÐ Á umfElgun Fólksbíll á Jepplingur á Jeppi á 33" Hjólbarðaverkstæði 14" stálfelgum 17" álfelgum stálfelgum Max 1 Bíldshöfða 5.832 8.743 11.160 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs* 6.368 10.252 10.980 Dekkjahöllin Skeifunni** 6.340 8.654 11.322 Bílaáttan Smiðjuvegi* ** 6.200 7.500 10.400 Betra grip Lágmúla 5.925 8.031 10.362 Pitstop Rauðhellu 5.643 6.291 10.163 Borgardekk Borgartúni* 5.490 6.490 9.490 Bílabúð Benna 5.998 7.970 9.997 *Afsláttur fyrir ellilífeyrisþega ** Afsláttur fyrir meðlimi FÍB n viðskiptavini bónuss brá heldur betur í brún í vikunni þegar hann opnaði hreinan mozzarella-ost frá mjólkursamsölunni. Ostinn ætlaði hann að setja á pitsu sem hann var að baka heima hjá sér en osturinn átti, samkvæmt umbúðunum, að renna út í byrjun næsta árs. Þegar pokinn var opnaður var ostur- inn myglaður. n Lofið fær starfsfólk n1 í ártúnsbrekk- unni. Þar er oftast ungt fólk og efnilegt að afgreiða. viðmótið er til fyrirmyndar, manni er innilega þakkað fyrir viðskiptin og starfsfólkið óskar viðskiptavinunum góðrar ferðar með bros á vör að viðskiptum loknum. Þar er alveg sama hvort afgreiðslufólk- ið er íslenskt eða af erlendu bergi brotið. Þau eiga hrós skilið. BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Miklar annir eru nú hjá dekkja- verkstæðum Töluverður munur getur verið á verðlagningu á dekkjaskiptum. MyND KRiStiNN Yfirleitt er dýrara að skipta um dekk ef bíllinn er á álfelgum en þó bjóða sum dekkjaverkstæðin eitt verð fyrir fólksbíla, eitt fyrir jepplinga og eitt fyrir jeppa. Dísil el d sn ey t i gULLINBrÚ verð á lÍtrA 154,9 kr. verð á lÍtrA 176,6 kr. skeIfUNNI verð á lÍtrA 153,2 kr. verð á lÍtrA 174,9 kr. skógarhLíð verð á lÍtrA 154,9 kr. verð á lÍtrA 176,6 kr. bensín kæNUNNI verð á lÍtrA 149,1 kr. verð á lÍtrA 170,8 kr. fjarðarkaUpUm verð á lÍtrA 149,2 kr. verð á lÍtrA 170,9 kr. feLLsmÚLa verð á lÍtrA 153,2 kr. verð á lÍtrA 174,9 kr. skógarseLI verð á lÍtrA 153,2 kr. verð á lÍtrA 174,9 kr. umSjón: baLdur guðmundSSOn, baldur@dv.is / neytendur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.