Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Síða 12
mánudagur 3. nóvember 200812 Fréttir
Súkkulaðisaur
Ástralskur veitingastaður hefur
verið sakaður um að bjóða upp á
frosinn saur í súkkulaðiís. Tals-
menn veitingastaðarins sem er á
einu þekktasta hótelinu í Sydney,
Coogee Bay Hotel, neita ásökun-
unum og hefur það hleypt enn
verra blóði í fjölskylduna sem fékk
ísinn. Whyte-fjölskyldan, sem
keypti umræddan ís, sagði að það
hefði strax verið ljóst að ísinn var
ekki eins og hann átti að vera.
„Þegar ég bar skeiðina upp að vör-
um mínum fann ég samstundis
skítalyktina. Ég seldi upp í serví-
ettuna mína,“ sagði Jessica Whyte
um atvikið. Að hennar sögn er hún
orðin dauðhrædd við að borða úti
eftir upplifunina.
Samkvæmt upplýsingum sem lek-
ið hafa í fjölmiðla vegna máls Jós-
efs Fritzl var dóttir hans, Elísabet,
ekki sú eina sem hann hélt fang-
inni í prísund. „Ég fangelsaði móð-
ur mína líka,“ viðurkennir Fritzl.
Jósef Fritzl lokaði sjúka móð-
ur sína inni í háaloftsherbergi þar
sem búið var að múra upp í glugga.
Þar ku hann hafa haldið henni þar
til hún gaf upp öndina, en á neðri
hæðunum vann hann að undir-
búningi kjallaradýflissunnar sem
síðar varð að fangelsi dóttur hans,
Elísabetar.
Jósef Fritzl, sem er sjötíu og
þriggja ára, bíður nú réttarhalda
fyrir að hafa nauðgað Elísabetu
og haldið henni fanginni í þar til
gerðri prísund í kjallara heimil-
is þeirra í austurríska smábænum
Amstetten. Í kjallaranum eignaðist
Elísabet sjö börn með föður sínum
á þeim tuttugu og fjórum árum
sem hún dvaldi þar. Öll börnin
komust á legg utan eitt sveinbarn,
Michael, sem dó skömmu eftir
fæðingu og brenndi Fritzl lík hans
í brennsluofni í kjallaranum.
Byrgt fyrir alla skímu
Samkvæmt réttarskjölum sem
lekið hafa í fjölmiðla læsti Fritzl
móður sína inni uppi á háalofti
heimilis hennar skömmu áður
en hann lokaði dóttur sína niðri
í kjallara. Hann múraði upp í alla
glugga til að koma í veg fyrir að
nokkur dagskíma kæmist inn.
Fritzl sagði það vera hefnd fyrir
þær misþyrmingar sam hann sætti
af hennar hálfu þegar hann var að
vaxa úr grasi. Móðir hans dó árið
1980.
„Hún veitti mér aldrei nokkra
ástúð. Hún lamdi mig og sparkaði
í mig þar til ég lá blóðugur á gólf-
inu. Mér stóð mikil ógn af henni,“
sagði Fritzl í samtali við réttargeð-
lækni. „Hún hellti yfir mig svívirð-
ingum og sagði mig vera Djöful-
inn, glæpamann, einskis nýtan,“
sagði Jósef Fritzl.
Tilvitnanirnar eru fengnar úr
skýrslu réttargeðlæknis sem rann-
sakaði Jósef Fritzl í sex ítarlegum
viðtölum. Í skýrslunni úrskurðar
geðlæknirinn Fritzl heilan á geði
og að hægt sé að rétta yfir honum
þrátt fyrir að hann þjáist af einhvers
konar „persónuleikatruflun“.
Samkvæmt skýrslunni vann
móðir Jósefs Fritzl sem þjónustu-
kona á meðan hún ól hann upp
ein síns liðs eftir að hafa gengið í
gegnum afar bitran skilnað. Að
sögn Jósefs beitti hún hann of-
beldi og einangraði hann frá öðr-
um börnum.
Þrátt fyrir það bjó Fritzl áfram
á heimili móður sinnar, í húsinu í
Amstetten, þar sem hann bjó með
eiginkonu sinni og eignaðist með
henni börn. Þegar móðir hans lést
hafði hann þegar hafist handa við
gerð kjallarbyrgis með það fyrir
augum að þar yrði framtíðarheim-
ili Elísabetar. Það varð að raun-
veruleika árið 1984.
Varð afhuga eiginkonu sinni
Þrjú þeirra barna sem hann
eignaðist með Elísabetu ólust
upp á efri hæðum hússins, áttu
eðlilegt líf og gengu í skóla. Þau
þrjú sem bjuggu í kjallaranum
ásamt móður sinni sáu aldrei
dagsins ljós fyrr en lögreglan
frelsaði þau úr prísundinni 26.
apríl.
Í fyrrnefndri skýrslu kemur
fram að Fritzl var óánægður með
eiginkonu sína. „Hún [Rose-
marie] varð feit og mér líkaði
það ekki,“ sagði Fritzl. Því beindi
hann sjónum sínum að dóttur
sinni, sem hann nauðgaði ítrek-
að um áratugabil.
Jósef Fritzl er þeirrar skoð-
unar að hann hafi verið börnum
sínum og Elísabetar góður fað-
ir. „Synir mínir og dætur, sem ég
eignaðist með Rosemarie, veittu
mér litla ástúð. En börnin okkar
Elísabetar, sem ólust upp á efri
hæðunum voru mér góð. Slíkt
hið sama má segja um börnin í
kjallaranum,“ er haft eftir Fritzl.
Frásögn hans er af mörg-
um litin hornauga og að margra
mati tilraun af hans hálfu til að
nota meint ofbeldi sem hann
sætti í eigin æsku til að réttlæta
aðgerðir hans síðar meir. Réttar-
geðlæknirinn, Adelheid Kastner,
sem útbjó skýrsluna komst að
þeirri niðurstöðu að Jósef Fritzl
væri kaldlyndur og útsmoginn
maður.
Þann 22. júlí 2005 var Jean Charles
de Menezes skotinn sjö sinnum í höf-
uðið af liðsmönnum hryðjuverka-
deildar bresku lögreglunnar. Menezes
var ranglega álitinn hryðjuvekamað-
ur og lögreglan taldi að hann hygði á
sjálfsvígsárás.
Atvikið átti sér stað í neðanjarðarlest
í Lundúnum og við rannsókn málsins
báru lögreglumenn að þeir hefðu veitt
Menezes viðvörun: „Vopnuð lögregla,“
en hann hefði ekki hirt um viðvörun-
ina. Við vitnaleiðslur fyrir helgi sögðu
farþegar sem sátu nálægt Menezes
að engar viðvaranir hefðu verið gefn-
ar í undanfara þess að Menezes var
skotinn til bana. Umræddir farþegar
hafa ekki fyrr gefið upplýsingar um at-
burðarásina þennan örlagaríka dag á
Stockwell-stöðinni í Lundúnum.
Rachel Vilson, sem var með Ralph
Livok, kærasta sínum, sagði að í fyrstu
hefði hún haldið að mennirnir „væru í
leik“, en þegar hún leit niður sá hún að
hendur hennar voru ataðar blóðslett-
um. Ralph Livok sagði að þau hefðu
enga hugmynd haft um hvort menn-
irnir í lestinni voru lögreglumenn eða
hryðjuverkamenn.
„Fyrsta hugsun mín var að um væri
að ræða leik og þetta væru strákar að
leika sér – í mjög ósmekklegum leik í
neðanjarðarlestinni, því þeir voru all-
ir í gallabuxum og stuttermabolum,
en með skotvopn,“ sagði Livok. Wesley
Merill, farþegi sem einnig varð vitni að
atvikinu, hafði svipaða sögu að segja.
Hann mundi að einhverjir lögreglu-
mannanna voru með lögregluhúfur á
höfði, en minnist þess ekki að nokkur
þeirra hefði yrt á Menezes.
Vitnisburður Rachel Vilson og
Ralphs Livok sem og annarra farþega
er í mótsögn við fullyrðingar lögreglu-
mannanna sem í hlut áttu.
Jean Charles de Menezes var tek-
inn í misgripum fyrir Hussain Osman,
hryðjuverkamann sem staðið hafði
fyrir misheppnaðri sjálfsvígsárás dag-
inn áður.
Vitni segja lögreglu aldrei hafa varað de Menezes við áður en hún hóf skothríð:
Skotinn í höfuðið án viðvörunar
Hussain Osman (t.v) og Jean Charles de Menezes (t.h.) de menezes var tekinn í
misgripum fyrir Osman.
KOlBeinn þOrsteinssOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Samkvæmt réttarskjölum sem lekið hafa í fjöl-
miðla læsti Fritzl móður sína inni uppi á háa-
lofti heimilis hennar skömmu áður en hann
lokaði dóttur sína niðri í kjallara. Hann múr-
aði upp í alla glugga til að koma í veg fyrir að
nokkur dagskíma kæmist inn.
læSti móður
Sína inni
Það er ljóst að enn er langt í að öll
kurl komi til grafar í máli Austur-
ríkismannsins Jósefs Fritzl. Hann
hélt, eins og fjallað hefur verið um í
fjölmiðlum, dóttur sinni elísabetu
fanginni í kjallaraholu heimilis síns
um aldarfjórðungsskeið. Jósef eign-
aðist sjö börn með dóttur sinni, þar
af komust sex á legg. Veikindi elstu
dóttur Elísabetar urðu til þess að
upp komst um málið. Sífellt leka
meiri upplýsingar vegna rannsókn-
ar málsins í fjölmiðla.
Jósef Fritzl Segist hafa læst
sjúka móður sína inni í
háaloftsherbergi þar sem
engrar sólarglætu gætti.
Í sólbaði naut þess að eiga tvær fjölskyldur og telur sig
hafa verið góðan föður.