Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Side 13
mánudagur 3. nóvember 2008 13Fréttir
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Banvænt klám
Í breska slúðurblaðinu The
Sun er sagt frá 23 ára Breta, Chris
Nicholls, sem fannst látinn í rúmi
sínu. Chris fæddist með hjarta-
galla og var skorinn upp fyrir
fimmtán mánuðum. Í apríl fékk
hann hjártaáfall og var skorinn
upp á ný. Clare, móðir Chris, hefur
nú upplýst að hann var að horfa
á klámmynd þegar dauða hans
bar að. Ekki er útilokað að hún
leggi fram kröfur á hendur Royal
Brompton Hospital, þar sem Chris
var skorinn upp í vor. Clare segist
engar ráðleggingar hafa fengið
eftir aðgerðina, þegar hún spurði
hvernig hún ætti að gæta hans
þegar heim væri komið.
Elsta hebreskan
Leirkersbrot sem fannst í júní
geymir mögulega elstu útgáfu
hebreskrar skriftar sem fundist
hefur. Þetta er skoðun fornleifa-
fræðings í Ísrael. Brotið fannst
við uppgröft um 20 kílómetrum
suðvestur af Jerúsalem. Sérfræð-
ingar við Hebreska háskólann
segja greiningu sýna að skrift-
in sé 3.000 ára gömul, eða um
1.000 árum eldri en Dauðahafs-
handritin. Aðrir vísindamenn
hvetja til varkárni því nánari
rannsóknar sé þörf.
Charles Taylor eldri er fyrir rétti í Haag og nýlega var sonur hans sakfelldur vestra:
Sonur fyrrverandi forseta Líberíu
hefur verið sakfelldur fyrir pynting-
ar af bandarískum dómstóli í máli
sem er hið fyrsta sinnar tegundar á
bandarískri grundu.
Charles Taylor yngri, sem einn-
ig er þekktur sem Chuckie, stendur
frammi fyrir lífstíðardómi eftir að
hafa verið fundinn sekur um pynt-
ingar og ákæruatriði sem snéru að
skotvopnum og samsæri. Taylor
yngri er fyrsti maðurinn sem sótt-
ur er til saka, samkvæmt lögum frá
1994, fyrir pyntingar og óhæfuverk
framin á erlendri grundu.
Charles yngri var yfirmaður and-
hryðjuverkadeildar, Demon Forces
sem hafði það hlutverk að þagga
niður í andstæðingum föður hans,
og var hann sakaður um að hafa
tekið þátt í pyntingum og átt aðild
að drápum, en faðir hans var ekki
þekktur fyrir mikla linkind í valda-
tíð sinni.
Á árunum frá 1999 til 2002 varð
Taylor yngri, ásamt sveitum sínum,
valdur að mikilli þjáningu fólks sem
grunað var um að vera í andspyrnu
gegn föður hans eða styðja þá sem
það voru.
Í mestu uppáhaldi hjá liðsmönn-
um Taylors yngra voru pyntingar
þar sem bráðið plast var látið dropa
á fórnarlömbin, þau stungin með
byssustingjum, þeim gefið raflost
eða pyntuð með heitu járni. Einnig
voru fórnarlömbin þakin hermaur-
um.
Charles taylor yngri er banda-
rískur ríkisborgari, fæddur árið
1977 í Boston. Móðir hans var vin-
kona föður hans og stundaði nám í
Boston á þeim tíma. Síðar flutti hún
til Miami í Florida.
Þegar Charles Taylor eldri, fað-
ir Chuckies, rændi völdum í Líber-
íu árið1997 flutti hann til landsins
og var gerður að yfirmanni Dem-
on Forces, rétt rúmlega tvítugur að
aldri. Glæpirnir sem Chuckie var
sakfelldur fyrir voru sérstaklega
hrottafengnir þegar sveitir hans
börðu á bak aftur uppreisn sem
hófst árið 1999.
Líbería stendur nú í ströngu við
að jafna sig eftir áralangt stríð og
fyrir Sannleiks- og sáttanefnd rifja
fórnarlömb upp þá viðurstyggilega
glæpi sem klufu þjóðina í tvennt.
Í öðrum réttarhöldum, sem fara
fram í Haag, er réttað yfir Charles
Taylor eldri. Hann er meðal ann-
ars ákærður fyrir stríðsglæpi, glæpi
gegn mannkyni með því að hafa
horft framhjá morðum, nauðgun-
um og aflimun þúsunda manns
á meðan blóðug borgarastyrjöld
geisaði í Sierra Leone um tíu ára
skeið. Ákæruatriðin á hendur Taylor
eldri eru ellefu talsins og hefur hann
neitað sök í þeim öllum.
Kolbeinn þorsTeinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Ógnvaldur líberíu
andstæðingum Charles
Taylor og sonar hans var
engin miskunn sýnd.
FélEgir
FEðgar
Fyrir rétti