Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Blaðsíða 14
Stjórnarsamstarfinu er óformlega lokið. Bláir stjórnarsáttmálar síð- ustu ríkisstjórna ýta sökinni eðli- lega heim. Innihald þeirra, taumlaus einkavæðing, hávaxtastefna og aftur- endi í ESB. Sumir kalla þetta dav- íðsku en gleymum ekki að hreinum meirihluta hefur Sjálfstæðisflokkur- inn aldrei náð og margir segðu það ógjörning úr þessu. En á rjúkandi rúst rís nýr grunnur. Eitt það fyrsta sem fólk bendir á til uppbyggingar er ESB, ríkjabandalag Evrópuríkja. Eftir óstjórnina er eðlilegt að æ fleiri íhugi þennan kost. Þannig hefur Sjálfstæðisflokknum tekist með ótrúlegum hraða að snúa fólki til fylg- is við þetta andmál sitt hingað til. „Í ljósi nýrra aðstæðna“ sem eins mætti kalla „vegna eigin óstjórnar“ er nú uppi endurskoðun innan raða sjálf- stæðismanna varðandi inngöngu í ESB. Sé mið tekið af skoðanakönnun- um er óvíst að breytt afstaða hafi mik- ið gildi. Seðlabankinn hefur reynt á um- liðnum árum að laða til sín gjaldeyri með hávaxta innlánsbréfum. Rúllan gekk meðan krónan var sterk en við ríkjandi aðstæður táknar innleysing þessara bréfa gjaldþrot fyrir kennitöl- una Ísland. Margir vöruðu við þessum yfirvofandi viðsnúningi, jafnvel fólk á þingi, en megnaði ekkert. Bersýnilega þarf að bæta skilvirkni hins háa. Einkavæðingin var vegferð Íslend- inga til framtíðar og flestir tóku þátt. Að láta undir höfuð leggjast að fylgja henni úr hlaði með lagaramma var óstjórn og bresta svo á með neyðar- lögum í andarslitrunum staðfesting- in. Einkavæðingarnefnd brást í þessu ferli öllu mjög skyldu sinni og ósenni- legt að annað hafi staðið til. Með einkavæðingunni fylgdu áður óþekkt lífskjör, allt strax, hér og nú. Ennfremur hafði skranið sem flutt var til landsins sín áhrif á viðskipta- hallann og gjaldmiðilinn sömuleið- is. Ævintýraleg lánakjör bankanna létu draumana rætast en þeim fylgdu ósýnilegir hlekkir sem styttist nú víða í. Lán er ólán nema smokkur fylgi. Staða lands og þjóðar er óljós. Al- þýðuhetjur troppa upp á Austurvelli og niðurhrópa. Ráðamenn líta á þetta sem fámennar róstur enda engum þeirra dottið til hugar að viðurkenna alvarleg hagstjórnarmistök né finna sér nýjan starfsvettvang. Ég held þó að margir Íslendingar þrái heitt ný andlit og nýja hugsun í íslenskri pólitík. Eða að minnsta kosti einhverja hugsun. mánudagur 3. nóvember 200814 Umræða Lán er ólán nema smokkur fylgi kjallari reynir traustason ritstjóri skrifar Forsætisráðherrann er í starfi sem er honum ofviða. Krossgötur leiðari Íslenskir kjósendur hafa loksins áttað sig á því að Sjálfstæðis-flokkurinn hefur brugðist þjóðinni. Kannanir á meðal kjós-enda sýna svo ekki verður um villst að flokkurinn er á beinni leið í pólitískan dauða. Undir stjórn Geirs H. Haarde hefur tekist að skerða fylgið um allt að helming. Enginn þarf að velkjast í vafa um að þetta eru makleg örlög flokks sem logið hefur til um getu sína til að stjórna efnahagsmálum. Geir er að gjalda fyrir það öðrum þræði að vera ákvarðanafælinn. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar hefur fengið nóg af Davíð Oddssyni seðlabanka- stjóra og þjóðhættulegum yfirlýsingum og aðgerðum hans. Sam- fylkingin öll vill láta Davíð fara. Ráðherrar hennar létu bóka á ríkisstjórnarfundi að Davíð Oddsson nyti ekki trausts flokks- ins. Samt þumbast forsætisráðherrann við að reka manninn úr Seðlabankanum með skömm og kveðst bera til hans fullt traust. Annar löstur Geirs er sá að honum er fyrirmunað að segja satt. DV rakti dæmi um öll þau tilvik þar sem hann hefur logið til að losna við óþægindi. Forsætisráðherrann er í starfi sem er hon- um ofviða. Þótt Samfylking mælist með yfirburðafylgi mun nei- kvæð athygli kjósenda brátt beinast að þeim flokki. Rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn ber ábyrgð á bankastjórn Seðlabankans er Samfylking ábyrg fyrir því að flokkurinn situr í ríkisstjórn í óþökk þjóðarinnar. Það styttist í að kjósendur lýsi flokkana sam- ábyrga. Forysta Samfylkingar stendur nú á þeim krossgötum að velja á milli þjóðarvilja og vinavæns spillingarflokks sem hef- ur verið alltof lengi við völd og valdið þjóðinni mestum skaða á lýðveldistímanum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verður að taka ákvörðun áður en klukkan glymur henni líka. Sandkorn n Geir H. Haarde hafði ýmislegt að segja á leynifundi sínum með völdum fjölmiðlum í síðustu viku þó sumt vildi hann alls ekki að yrði haft eftir honum á prenti eða í ljósvakamiðlum. Ein setning í umfjöllun Fréttablaðsins hefur vakið athygli manna sem þykjast vita fyrir víst að þar sé vitnað í forsætis- ráðherra. „Viðhorf háttsettra í stjórnarráð- inu er, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að nú reyni feðg- arnir að „klína ábyrgðinni“ yfir á aðra.“ Samkvæmt heimildum DV er það einmitt sjálfur forsætis- ráðherra sem lét þessi orð falla á leynifundinum á þriðju hæðinni í Ráðherrabústaðnum en mun alls ekki hafa viljað að þau yrðu höfð eftir honum sjálfum. n Helgin sem nú er að baki einkenndist af uppvakningum fallinna útrásarvíkinga. Hannes� Smáras�on, fyrsti matadorinn sem féll, var í hátíðarviðtali á Markaðnum á Stöð 2. Hannes var í hlutverki vitringsins sem falið var að greina orsakir hrunsins og mátti skilja að hann væri tilbúinn í hjálparsveit lýðveldisins. Sjálfur talaði Hannes lítið um eigið hrun og þá tugmilljarða sem hluthaf- ar í FL Group þurftu að taka á sig vegna fádæma óráðsíu og bruðls. n Sjónvarpsmaður Íslands, Egill Helgas�on, lét ekki sitt eftir liggja og fékk annan uppvakning í Silfrið. Þangað mætti Gunnar Smári Egils�s�on og var kynntur sem blaðamaður. Hann greindi ástandið af mikilli skarpskyggni og var ekki hress með framgöngu útrásarvíkinganna. Sjálfur var hann lengi ein aðalgrúppían í þeim hópi. Fortíð hans er mörk- uð af stofnun fríblaða og blóðugu tapi og gjaldþrotum. En nú er hann kominn í ráðgjafahópinn og segist aldrei hafa átt einka- þotu. n Agnes� Bragadóttir skrifaði mik- inn pistil í sunnudagsmoggann um leynifund aðstoðarmanna nokkurra ráðherra og útvarps- stjórans Páls� Magnús�s�onar og ritstjóranna Þors�teins� Páls�s�on- ar og Ólafs� Stephen- s�en sem DV ljóstraði upp um á dögun- um. Furðar Agnes sig mjög á fundinum og sérstaklega útskýringum Róberts� Mars�hall, aðstoðarmanns Kris�tjáns� L. Möller, á fundinum. Finnst henni ekkert sem Róbert sagði um fundinn réttlæta hann enda ein- beiti starfsmenn ritstjórna sér að því að flytja fréttir og endurspegla það sem er að gerast en ekki að hanna atburðarás. En pistilinn er vart hægt að lesa öðruvísi en sem skot á Ólaf Stephens�en, ritstjóra Morgunblaðsins, og forvera hans, Styrmi Gunnars�s�on og Matthías� Johannes�s�en, sem voru þekktir fyrir leynifundi. LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50. Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Húðflúrið lítur út fyrir að vera s�tærra en það raunverulega er.“ n Óli Geir Jónsson, skemmtanapinni og fyrrverandi herra Ísland, um húðflúr sem hann var að fá sér. Greinilega margslungið húðflúr. - DV „Á tímum góðæris�ins� var ég kölluð litla „helvítis� kommas�telpan“ fyrir að voga mér að tala gegn einkavæðingu.“ n Kolfinna Baldvinsdóttir um hversu hratt viðhorfin hafa breyst í þjóðfélaginu. - DV „Það er þarna lífeðlis�fræðingur s�em heldur því fram að ás�t s�é bara röð af taugas�kilaboð- um, eins� óróman- tís�kt og það geris�t.“ n Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann um eina af persónunum í nýjasta leikriti hennar, Dansaðu við mig, sem sýnt er í Iðnó. - DV „Hann hefur gam- an af því að plotta og s�kiptir um bandamenn án þes�s� að blikna.“ n Einn heimildarmanna DV um að Bjarni Ármannsson minni oft frekar á pólitíkus en bankamann. - DV „Ruglið á Geir er s�líkt, að hann s�egir tæpas�t s�att orð inn á milli lína.“ n Jónas Kristjánsson hlífir forsætisráðherra ekki frekar en fyrri daginn. - jonas.is „Ætlar fjármálaráðherra að leyfa þetta?“ n Friðjón R. Friðjónsson furðar sig á kaupum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á fjölmiðlum 365. - fridjon.eyjan.is „Þegar ég s�á Little Britain, þá gat ég meira að s�egja s�ams�amað mig við „Eina hommann í þorpinu“ gæjann.“ n Jónsi úr Sigur Rós um hvernig var að alast samkynhneigður upp í Mosfellssveit sem núna heitir Mosfellsbær. - visir.is bókStaflega LÝÐUR ÁRNASON heilbrigðisstarfsmaður skrifar „Margir vöruðu við þessum yfirvofandi viðsnúningi, jafn- vel fólk á þingi, en megnaði ekkert.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.