Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Qupperneq 16
mánudagur 3. nóvember 200816 Sport
Sport Grétar laGði upp mark bolton lyfti sér af botninum í ensku úrvalsdeildinni með sigri á manchester City í gær-kvöldi, 2-0. Landsliðsmaðurinn grétar rafn Steinsson lagði upp fyrra mark bolton fyrir ricardo gardner sem tókst næstum því að klúðra metra frá marki. richard dunne tryggði svo sigurinn með auðveldu marki í vit-laust net. bolton er áfram í fallsæti en hefur sama stiga-fjölda og þrjú önnur lið. manchester City tapaði sínum öðr-um leik í röð og hefur aðeins innbyrt fjögur stig af síðustu átján mögulegum.
ÚRSLIT
Iceland express kk
Njarðvík - Tindastóll 75–84
Stjarnan - Skallagrímur 82–45
Grindavík - Þór A. 108–87
Staðan
lið l u J t m St
1. grindavík 5 5 0 0 555:434 10
2. Kr 4 4 0 0 386:303 8
3. Tindastóll 5 4 0 1 405:393 8
4. Þór a. 5 2 0 3 422:450 4
5. Snæfell 4 2 0 2 317:281 4
6. FSu 4 2 0 2 362:319 4
7. Keflavík 4 2 0 2 345:339 4
8. breiðab. 4 2 0 2 328:355 4
9. njarðvík 5 2 0 3 397:430 4
10. Stjarnan 5 2 0 3 428:407 4
11. Ír 4 0 0 4 298:342 0
12. Skallag. 5 0 0 4 288:478 0
handboltI eM 2010
Noregur - Ísland 31–31
Mörk Íslands: Logi Geirsson 13, Arnór Atlason
6, Þórir Ólafsson 3, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2,
Guðjón Valur Sigurðsson 2, Róbert Gunnarsson
2, Einar Hólmgeirsson 1, Vignir Svavarsson 1,
Ragnar Óskarsson 1.
Varin Skot: Björgvin Páll Gústavsson 11, Hreiðar
Levy Guðmundsson 3.
Belgía - Eistland 24–29
Staðan
lið l u J t m St
1. Ísland 2 1 1 0 71:52 3
2. noregur 2 1 1 0 64:56 3
3. eistland 2 1 0 1 54:57 2
4. maked. 0 0 0 0 0:0 0
5. belgía 2 0 0 2 45:69 0
enska úrvalsdeIldIn
Everton - Fulham 1–0
1-0 Louis Saha (87.)
Chelsea - Sunderland 5–0
1-0 Alex (27.), 2-0 Nicolas Anelka (30.), 3-0 Nicolas
Anelka (44.), 4-0 Frank Lampard (51.), 5-0 Nicolas
Anelka (53.).
Man. United - Hull 4–3
1-0 Cristiano Ronaldo (3.), 1-1 Daniel Cousin (23.),
2-1 Michael Carrick (29.), 3-1 Cristiano Ronaldo
(44.), 4-1 Nemanja Vidic (57.), 4-2 Bernard Mendy
(69.), 4-3 Geovanni (82, víti.).
Middlesbrough - West Ham 1–1
0-1 Hayden Mullins (21.), 1-1 Hossahm Mido (83.).
Portsmouth - Wigan 1–2
0-1 Amr Zaki (44, víti.), 1-1 Nico Kranjcar (82.), 1-2
Emile Heskey (90.).
Stoke City - Arsenal 2–1
1-0 Ricardo Fuller (11.), 2-0 Salomon Olofinjana
(73.), 2-1 Gael Clichy (90.).
WBA - Blackburn 2–2
0-1 Benni McCarthy (13, víti.), 1-1 Roman Bednar
(55.), 2-1 Ishmael Miller (62.), 2-2 Keith Andrews
(89.).
Tottenham - Liverpool 2–1
0-1 Dirk Kuyt (.3.), 0-2 Jaime Carragher (69, sjálfs-
mark.), 1-2 Roman Pavlyuchenko (90.).
Bolton - Man. City 2–0
1-0 Ricardo Gardner (76.), 0-2 Dunne (88, sm.).
Staðan
lið l u J t m St
1. Chelsea 11 8 2 1 27:4 26
2. Liverpool 11 8 2 1 16:8 26
3. man. utd 10 6 3 1 19:8 21
4. arsenal 11 6 2 3 23:12 20
5. aston 10 6 2 2 19:12 20
6. Hull 11 6 2 3 17:18 20
7. everton 11 4 3 4 15:19 15
8. m.boro. 11 4 2 5 11:16 14
9. Portsmth 11 4 2 5 11:17 14
10. man. C 11 4 1 6 23:18 13
11. West H 11 4 1 6 15:19 13
12. Stoke 11 4 1 6 13:19 13
13. blackb. 11 3 4 4 13:20 13
14. Sunderl. 11 3 3 5 9:16 12
15. Fulham 10 3 2 5 8:9 11
16. Wigan 11 3 2 6 13:16 11
17. Wba 11 3 2 6 10:18 11
18. bolton 11 3 2 6 10:13 11
19. Tottenh. 11 2 3 6 13:17 9
20. newcas. 10 2 3 5 12:18 9
ForMúla 1
Heimsmeistarakeppni ökuþóra:
1. Lewis Hamilton, McLaren 98
2. Felipe Massa, Ferrari 97
3. Kimi Raikkonen, Ferrari 75
4. Robert Kubica, BMW 75
5. Fernando Alonso, Renault 61
Heimsmeistarakeppni bílasmiða:
1. Ferrari 172
2. McLaren 151
3. BMW 135
Allt ætlaði um koll að keyra á loka-
sekúndu leiks Íslands og Noregs í
undakeppni Evrópumótsins í hand-
knattleik á sunnudaginn sem endaði
með jafntefli, 31-31. Erlend Mame-
lund, leikmaður Noregs, fékk knött-
inn í þann mund sem leiktíminn rann
út og freistaði þess að koma skoti á
markið. Þá stukku Vignir Svavarsson
og hetjan Þórir Ólafsson á Mamelund
og brutu allhressilega á honum til að
tryggja jafnteflið.
„Þeir [Vignir og Svavar] stukku á
mig með olnbogana á undan sér og ég
þurfti að passa mig. En þetta gera öll
lið. Það gera allir allt til þess að tryggja
sér stig,“ sagði Mamelund við norska
blaðið Verdens Gang eftir leikinn. Allt
varð svo vitlaust inni á vellinum og
hlupu varamenn beggja liða inn á
til að blanda sér í baráttuna. „Svona
bellibrögðum er beitt oft á tíðum. Við
hefðum gert nákvæmlega það sama,“
sagði línutröllið Frank Loke við VG.
Þjálfari Norðmanna, hinn sænski
Robert Hedin, var ánægður með stig-
ið. „Við börðumst allan tímann og
verðum að vera sáttir með stigið. Það
er þó svolítið súrt þar sem mér finnst
að við hefðum átt að vinna leikinn,“
sagði Hedin. Hann var mjög ósátt-
ur við ruðninginn sem dæmdur var
á Thomas Drange þegar fjórtán sek-
úndur voru eftir en upp úr honum
skoraði Þórir Ólafsson jöfnunarmark-
ið.
„Aukakastið var ekki einu sinni tek-
ið á réttum stað. Jafntefli er samt ljó-
sárum betra en tap á heimavelli. Þetta
gæti reynst mjög mikilvægt stig á end-
anum,“ sagði Hedin og undir það tók
Erlend Mamelund. „Tap hefði verið
hræðilegt,“ sagði skyttan við VG.
tomas@dv.is
Landsliðsmenn og þjálfari Noregs eftir leikinn gegn Íslandi:
„hefðum gert nákvæmlega það sama“
tvö störf Hinn sænski robert
Hedin stýrir noregi og
melsungen í Þýskalandi.
mynd Getty
Ísland er komið með þrjú stig eftir
fyrstu tvo leiki sína í undankeppni
Evrópumótsins í handbolta. Leikið
er eftir nýju fyrirkomulagi, því sama
og tíðkast í knattspyrnunni með
riðlakeppni. Ísland rúllaði yfir Belga
í síðustu viku og bætti öðru stigi í
sarpinn í háspennuleik gegn Noregi í
Drammen sem endaði með jafntefli,
31-31. Það mátti vart tæpara standa
því Þórir Ólafsson skoraði jöfnunar-
markið þegar aðeins sex sekúndur
voru eftir af leiknum.
Gáfust ekki upp
Strákarnir okkar byrjuðu ekki
nægilega vel og leiddu Norðmenn
mest með sex mörkum, 15-9. Lítið
gekk að stöðva sóknir Norðmanna
þar sem línumaðurinn Bjarne Myr-
hol fór hamförum. Ekki þó aðallega
í markaskorun heldur fiskaði hann
okkar menn út af trekk í trekk og
hafði Ísland verið út af í sex af fyrstu
fjórtán mínútum leiksins. Áræðn-
ir Íslendingar minnkuðu muninn í
eitt mark en þurftu að sætta sig við
þriggja marka mun í hálfleik, 16-13.
logi stórkostlegur
Logi Geirson þurfti að stíga upp
í fjarveru margra lykilmanna liðs-
ins og svaraði hann kallinu með stæl
með þrettán mörkum. Með Loga í
fararbroddi saxaði Ísland á forskot
Norðmanna jafnt og þétt og komst
svo yfir í fyrsta skiptið 22-21. Varnar-
leikurinn var þá kominn í mun betra
lag og sóknin gekk mun smurðar en
þar stóð Arnór Atlason vaktina með
miklum sóma.
Ísland fékk tækifæri til að bæta
við forystuna en missti Norðmenn
aftur fram úr sér. Heimamenn voru
þremur mörkum yfir þegar fjórar
mínútur voru eftir en íslenska liðið
sýndi mikinn karkater, skoraði fimm
mörk gegn tveimur á lokamínútun-
um, og tryggði sér jafntefli, 31–31,
með marki Þóris Ólafssonar sex sek-
úndum fyrir leikslok.
Of mikið að heimta sigur
Uppi varð fótur og fit á lokasek-
úndunni þegar Vignir Svavarsson
og Þórir Ólafsson stukku á Erlend
Mamelund, leikmann Noregs, sem
gerði sig líklegan til að taka síðasta
skotið á markið. Mamelund brást illa
við, sló til Vignis og fengu þeir félagar
báðir rautt spjald. Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari veit að
möguleikinn á sigri var fyrir hendi
en er sáttur með stigið.
„Við vorum komnir í mjög ákjós-
anlega stöðu en það hefði verið til of
mikils mælst að heimta sigur þarna.
Þetta leit ekki vel út hjá okkur í fyrri
hálfleik þar sem við náðum ekki
hraðaupphlaupunum okkar. En við
breyttum vörninni í seinni hálfleik.
Vorum aftar á öðrum vængnum,
lögðum meiri kraft í hraðaupphlaup-
in og þannig komumst við aftur inn
í leikinn. Það var mjög mikilvægt að
tapa ekki og þetta var gríðarlega mik-
ilvægt stig,“ sagði Guðmundur við
DV um leikinn.
Ótrúlegur karakter
„Maður hefur upplifað að lið gef-
ist upp 15-9 undir en svo var nú al-
deilis ekki hjá okkur,“ sagði Guð-
mundur um svartasta blettinn á
leiknum. „Hópurinn sýndi ótrúlegan
karkater, að vinna sig aftur inn í leik-
inn. Úr sex mörkum undir í tveim-
ur mörkum yfir, þetta er átta marka
sveifla á sterkum útivelli gegn sterku
liði,“ sagði hann.
Marga menn vantaði í íslenska lið-
ið og var Guðmundur mjög ánægður
með þá sem komu inn. „Hjá okkur
vantaði fimm menn úr silfurliðinu og
ekki skánaði það þegar Guðjón Valur
fór út af meiddur. Það segir sína sögu
að ná þessum úrslitum þegar við
erum í þessum erfiðleikum,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson.
Íslenska landsliðið í handknattleik gerði jafntefli við Noreg, 31–31, í öðrum leik sínum
í undankeppni Evrópumótsins. Útlitið var ekki bjart í fyrri hálfleik þar sem Noregur
leiddi mest með sex marka mun. Marga silfurstráka vantaði og var þjálfarinn, Guð-
mundur Guðmundsson, hæstánægður með úrslitin.
tÓmaS ÞÓr ÞÓrðarSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
GríðarleGa
meiddist guðjón valur
skoraði grimmt gegn
belgum en fór út af
meiddur gegn noregi.
mikilvæGt stiG