Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Side 17
Wenger
svekktur
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, segir lið sitt ekki hafa ráðið
við getu Stoke-manna í loftinu í leik
þeirra í ensku úrvalsdeildinni um
helgina. Stoke vann leikinn 2-1 og
komu bæði mörk Stoke upp úr
löngum innköstum. „Við vorum
búnir að vinna í þessu en að verjast
svona mörkum er ekki okkar helsti
styrkleiki. Okkur var refsað en þegar
allt kemur til alls átti Stoke sigurinn
skilið,“ segir Wenger sem gefur lítið
fyrir leikstíl Stoke. „Venjulegir
Englendingar sem elska hinn
hefðbundna enska fótbolta þar sem
menn berjast endalaust hafa eflaust
verið ánægðir því þeir fengu það
sem þeir vilja.“
Robin Van Persie fékk rautt spjald
fyrir að brjóta á markverði Stoke og
verður hann í banni gegn Manchest-
er United um næstu helgi. „Þetta
hefði átt að vera gult spjald. Persie
átt ekki að gera þetta og það veit
hann en rautt spjald var harður
dómur,“ segir Wenger.
Ótrúlegur
uppbÓtartími
Þær mínútur sem liðu í viðbótartíma í
leik Derby og Nottingham Forest í
ensku Championship-deildinni í gær
voru hreint ótrúlegar. Staðan var 1-1
þegar Derby skoraði þegar tvær
mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma. Dómari leiksins
tók af þeim markið en dæmdi
vítaspyrnu á Forest og fékk því Derby
annað tækifæri til að innsigla sigurinn.
Markvörður Forest varði í horn, aftur
úr horninu í annað horn sem Derby
skoraði svo úr. Það mark var einnig
dæmt af og þurftu Derby-menn að
sætta sig við jafntefli þrátt fyrir að
skora tvö lögleg mörg í uppbótartíma
og brenna af víti.
MáNUDAgUR 3. NóVEMbER 2008 17Sport
Badmintonkreppa badmintonsamband Íslands hef-
ur þurft að grípa til aðgerða vegna efnahagsástandsins í
landinu. Allar ferðir landsliðanna að undanskildu A-lands-
liðinu hafa verið settar í biðstöðu og þá hefur samningi við
landsliðsþjálfarann árna Þór Hallgrímsson verið rift eftir að
ekki náðist samkomulag á milli hans og sambandsins. Þá
verður bSÍ að slá af sitt stærsta mót, SPRON Internation-
al. bSÍ biðlaði til badmintonsambands Evrópu um að fella
niður verðlaunaféð sem er í dollurum en því var hafnað.
Kostnaðurinn við mótið er bSÍ því ofviða.
Fimm í röð Frakkinn Sebastian Loeb varð í gær
heimsmeistari í ralli fimmta árið í röð. Næstsíð-
asta keppnin fór fram í Japan í gær og bar Finninn
Mirko Hirvonen sigur úr býtum og annar var landi
hans Jari-Matti Latvala. Loeb varð í þriðja sæti og
tryggði sér með því heimsmeistaratitilinn fimmta
árið í röð sem er met. Loeb hefur tíu stiga forystu í
stigakeppninni á Hirvonen en hann hefur unnið tíu
af fjórtán keppnum ársins og því ómögulegt fyrir
Finnann að hafa titilinn af Loeb.
Skallagrímur þurfti að sæta enn
einu stórtapinu í Iceland Express-
deildinni í körfubolta í gærkvöldi.
Stjarnan rúllaði þá yfir Borgnesinga
með þrjátíu og sjö stiga mun, 82-45,
í Ásgarði. Fannar Helgason var at-
kvæðamestur hjá heimamönnum
með 15 stig en Kjartan Kjartansson
skoraði 11. Þetta var annar sigurleik-
ur Stjörnunnar í deildinni en Skalla-
grímur er enn án stiga.
Grindavík komst aftur að hlið KR
á toppi Iceland Express-deildinnar í
gærkvöldi með sigri á Þór í Röstinni,
108-87. Jafnt var í hálfleik, 54-54, en
Grindavík skoraði 32 stig gegn 11 í
þriðja leikhluta og lagði þar grunn-
inn að sigrinum. Páll Axel Vilbergs-
son átti enn einn stórleikinn og skor-
aði 37 stig. Hjá gestunum var Cedric
Isom atkvæðamestur með 21 stig.
Þá gerði Tindastóll góða ferð í
Ljónagryfjuna í Njarðvík og lagði
þar heimamenn, 84-75. Benjamin
Luber skoraði 26 stig fyrir gestina
en Magnús Þór Gunnarsson 21 stig
fyrir Njarðvík sem tapaði því sínum
þriðja leik á árinu. Tindastóll hefur
unnið alla nema einn og er einn í
þriðja sæti deildarinnar. tomas@dv.is
Iceland Express-deildin í körfubolta:
stórsigur stjörnunnar
Landsliðsmenn og þjálfari Noregs eftir leikinn gegn Íslandi:
„Hefðum gert nákvæmlega það sama“
Plastmódel
í miklu úrvali
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
Dramatíkin var allsráðandi í loka-
keppni Formúlu 1 í Brasilíu í gær.
Lewis Hamilton hjá McLaren var
með sjö stiga forskot á heimamann-
inn Filippe Massa hjá Ferrari fyrir
kappaksturinn.
Massa þurfti því sigur og Hamilt-
on að lenda í sjötta sæti eða neðar
til þess að Brasilíumaðurinn næði
titlunum af honum.
massa á ráspól
Massa var staðráðinn í að gera at-
lögu að titlinum og náði ráspólnum
á laugardeginum. En Hamilton var
ekki langt á eftir og byrjaði fjórði.
Jarno Trulli hjá Toyota og liðsmaður
Massa, Kimi Räikkönen, voru á milli
þeirra í öðru og þriðja sæti.
Blaut byrjun
Búið var að spá rigningu í gær
á brautinni og rétt áður en kapp-
aksturinn hófst strax í upphafi kom
hellidemba og þurfti að fresta star-
tinu um 10 mínútur og spennustigið
orðið svimandi hátt. Ræsing gekk þó
vel fyrir allflesta og fremstu bílarnir
komust klakklaust í gegnum fyrstu
beygjurnar. David Coulthard, í sinni
síðustu keppni, lauk ferlinum frek-
ar snubbótt með árekstri í öðrum
hring við Nelson Piquet sem tryggði
væntanlega starfslok sín þar með
hjá Renault.
Hamilton á dólinu
Þegar leið á keppnina var Massa
búinn að tryggja sér gott forskot,
Alonso orðinn annar, Räikkönen
þriðji og fyrir aftan þá dólaði Ham-
ilton sér í fimmta sæti og keyrði af
öryggi og skynsemi. Svona hélst
staðan nokkurn veginn þar til veð-
urguðirnir mættu aftur með rign-
ingu meðferðis þegar sjö hringir
voru eftir.
massa meistari í tvo hringi
Liðin skiptu flest yfir á milli-regnd-
ekkin og þegar út á brautina var kom-
ið aftur var Þjóðverjinn ungi Sebasti-
an Vettel hjá Toro Rosso kominn í
skottið á Hamilton og annar Þjóð-
verji, Timo Glock hjá Toyota, fyrir
framan þá. Vettel fór fram úr Hamilt-
on á næstsíðasta hring og skyndilega
var Massa orðinn heimsmeistari ef
staðan héldist óbreytt. Heimamenn
trylltust og spennan orðið yfir hættu-
mörkum. Allt leit út fyrir að þetta yrðu
úrslitin þar sem Vettel ætlaði ekki að
láta Hamilton ná sér.
15 sekúndur hurfu
En á síðustu metrunum flugu
þeir báðir fram úr Timo Glock sem
allir höfðu talið með öruggt forst-
kot enda var hann heilum 15 sek-
úndum á undan þeim fyrir síðasta
hringinn. Hreinlega ótrúleg atburða-
rás og í raun óskiljanlegt hvern-
ig svona mikið forskot getur gufað
upp á einum hring. Lewis Hamilt-
on endaði því fimmti og þar með
yngsti heimsmeistari sögunnar með
minnsta hugsanlega mun og með
kærri kveðju frá Timo Glock, sem fær
væntanlega ekki einu sinni að þrífa
Ferrari-bíla það sem eftir lifir.
Jarðarför á pallinum
Tveir fyrrverandi heimsmeist-
arar urðu í öðru og þriðja sæti. Þeir
Fernando Alonso og Kimi Räikkön-
en stóðu hvor sínum megin við sigur-
vegarann Massa og var stemningin á
verðlaunapallinum líkari jarðarför en
sigurstund. Massa átti erfitt með að
halda aftur af tárunum eftir keppn-
ina. Hann sagði keppnina hafa verið
fullkomna af hendi Ferrari en sagði
tilfinningar sínar gagnvart framúr-
akstri Hamiltons í restina vera mjög
blendnar.
takmarkinu náð
Lewis Hamilton gat ekki leynt til-
finningum sínum eftir þennan ótrú-
lega kappakstur og frábært tímabil.
Hann virtist hálf-sjokkeraður á bíla-
stæðinu og á meðan Massa sullaði
kampavíninu af pallinum svaraði
Hamilton æpandi fréttamönnum:
„Þetta var ótrúlegt. Ég verð að ná and-
anum. Gefið mér tíma.“ Sjónvarpsvél-
arnar náðu svo hjartnæmum mynd-
um af þeim Hamilton-feðgum sem
áttu sína kyrrðarstund í faðmlögum
og tárin flæddu. Langþráðu takmarki
var náð.
Eftir ótrúlega atburðarás í lokahringjum Brasilíukappakstursins þar sem bæði Ferrari
og McLaren fögnuðu heimsmeistaratitli ökumanna í lokin, reyndist það vera Bretinn
ungi Lewis Hamilton sem vann þegar upp var staðið. timo Glock hjá Toyota reyndist
mikill örlagavaldur í síðustu beyjunni.
Sveinn WaaGe
blaðamaður skrifar: swaage@dv.is
GríðarleGa
TaKK, TIMO
kann að tapa
Felipe Massa
fagnaði með
sínu fólki og hélt
ró sinni.
Yngsti heimsmeistari
sögunnar Lewis
Hamilton fagnaði
titlinum vel og innilega.
Stórsigur Stjarnan sigraði Skallagrím
með þrjátíu og sjö stiga mun.
mYnd SiGtrYGGur