Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2008, Side 22
mánudagur 3. nóvember 200822 Fólkið Heljarinnar góðgerðarleikur fór fram um síðustu helgi á vegum góðgerða- félags Verzlunarskólans til styrktar Unicef. Landsþekktir einstaklingar komu saman á mótinu til að keppa á móti fótboltaliði Verzlinga. Fyrir- liði stjarnanna var enginn annar en Gillzenegger sem nú vill láta kalla sig Störe. Kappinn hefur loksins tjáð sig á heimasíðu sinni og segir hann meðal annar þar: „Meira að segja Störe getur ekki búið til kjúkl- ingasalat úr kjúklingaskít.“ Síðan tekur hann upp á því að gefa öllum liðsmönnum sínum einkunnir. Ívar Guðmundsson var sá eini sem fékk fullt hús stiga frá Störe. Ekki er hægt að segja það sama um sjónvarps- stjörnuna Helga Seljan, en hann fékk núll í einkunn frá Gillz. „Aldrei hefur neinn í knattspyrnusögunni skitið jafn hrikalega á sig og Helgi Seljan í þessum leik. Hann lá á rass- gatinu nánast allan leikinn.“ Nú þegar fjöldi fólks er að missa vinnunna er gaman að segja frá því þegar fólk er ekki að missa vinnu heldur fá. Einn þeirra er tónlistar- maðurinn KK sem er genginn til liðs við Morgunvaktina á Rás 1. KK hefur störf þar í dag en Morgunvaktin er á dagskrá alla virka daga frá klukkan 7 til 9. Fréttamennirnir Anna Kristín Jónsdóttir og Kristján Sigurjónsson fjalla um það sem efst er á baugi í fréttum, pólitík, mannlífi og menn- ingu á fyrri klukkutímanum. Eftir morgunfréttir klukkan 8 tekur KK að mestu við, spjallar við hlustendur og velur tónlist við hæfi. KK hefur áður unnið við útvarp en hann stjórnaði, ásamt Einari Kárasyni rithöfundi, þáttaröðinni Á vængjum yfir flóann á Rás 1 í fyrra. KK Kominn með vinnu vertu Hannes smárason „Ég er Hannes Smárason,“ seg- ir Þorkell Máni Pétursson útvarps- stjóri á X-inu 977 um nafn útvarps- leiks sem stöðin er með í gangi um þessar mundir. „Við viljum gefa fólki tækifæri til þess að upplifa eitt góð- æriskvöld í kreppunni,“ en veglegur vinningur er gefinn vikulega meðan á leiknum stendur. „Við viljum gefa hlustendum tækifæri til þess að upplifa þessa tíma. Þar sem útrásarplebbarn- ir keyrðu um á limmum, lifðu eins og kóngar og fengu Elton John og 50 Cent til þess að spila í afmæl- unum sínum,“ en Máni telur að þar liggi ein mesta skömm útrásarinnar. „Það er náttúrulega mesta skömmin að þessir gæjar skuli ekki einu sinni hafa almennilegan tónlistarsmekk.“ Það eina sem fólk þarf að gera til að taka þátt í leiknum er að senda póst- inn „Ég er Hannes Smára- son“ á x977@x977. is. „Í vinn- ing er út að borða á Eld- smiðjuna. Svo kemur limmi að sækja vinnings- hafann þannig að hann fái að njóta góðærisfílingsins alveg í botn. Til að toppa þetta er mönnum svo skutlað á Bar 11 þar sem þeir fá frían bjór fyrir sig og félagana. Sem sagt alvöru góðæriskvöld.“ Máni segir markmið leiksins, auk þess að gleðja fólk, vera að draga Hannes Smárason fram í dagsljós- ið en lítið hefur farið fyr- ir útrásarvíkingnum eftir að harðnaði á dalnum hér heima. „Það verður ein- hver að pönkast í þessum góðærisplebbum.“ Það er nóg um að vera á X-inu þessa dagana en þar er einnig verið að leita að mestu druslu landsins. „Við eru bara búnir að heyra að það séu svo margar drusl- ur þarna úti sem lykti eins og fiskur og séu alveg beyglaðar og bara ljótar,“ segir Máni og á þá við bíl- druslur landans. „Við ætlum að lífga upp á mestu drusl- una með varahlutum frá AB- varahlutum,“ en áhugasam- ir druslueigendur geta sent mynd af brakinu á harma- geddon@x977.is. asgeir@dv.is Útvarpsstöðin X-ið 977 gefur fólki kost á að upplifa góðæris- kvöld líkt og útrásarvíkingarnir gerðu áður en kreppan skall á. Leikurinn kallast Ég er Hannes Smárason en auk þess leita Þorkell Máni og félagar að mestu druslu landsins. Rapparinn Emm Sjé Gauti í hljóm- sveitinni 32C komst heldur betur í hann krappan á dögunum eftir sak- leysislegan brandarara sem leiddi til handtöku. „Við vorum á Lauga- veginum að kvöldi til að taka upp einhver skot til að nota í vídeó sem rúllar baksviðs hjá okkur á tónleik- um. Svo sá ég allt í einu lögreglubíl standa opinn og engan nálægt hon- um svo ég hoppaði inn í hann í ein- hverju djóki í hálfa sekúndu,“ segir Gauti. „Þegar ég var að labba í burtu var mér hrint aftur inn í bílinn og ég handtekinn. Ég var bláedrú og reyndi að biðjast afsökunar og fá þá til að sleppa mér. Löggan var þarna að pikka upp einhvern róna sem þeir skutluðu heim en skutluðu mér upp á stöð. Þeir vildu meina að ég hefði verið að trufla lögreglustörf en ég var að reyna að segja þeim að þeir væru að því með því að halda mér á stöðinni fyrir að hafa nánast ekki gert neitt af mér meðan þeir hefðu frekar getað verið að stöðva einhver slagsmál niðri í bæ.“ Á endanum var Gauta sleppt en þó gert að greiða tíu þúsund króna sekt. „Mér fannst þetta nú svona semí-óþarfi en auðvitað á mað- ur ekkert að vera að gera eitthvað svona heimskulegt.“ Ásamt Gauta í 32C eru rappar- inn Dabbi T og Nagmnús en hægt er að hlusta á tóndæmi frá sveit- inni á heimasíðunni myspace.- com/32cmusic. krista@dv.is alvöru HandtaKa RappaRinn Emm Sjé Gauti vaR Handtekinn fyRiR að SetjaSt inn í LögRegLubíL: Prakkarastrikið leiddi til handtöku emm Sjé gauti hoppaði inn í löggubíl í hálfa sekúndu og var handtekinn fyrir. X-ið 977 sjónvarps- stjarna á botninum Þorkell máni Leitar að Hann- esi Smárasyni og bíldruslum. Hvar ertu, Hannes? máni vill líka reyna að draga Hannes fram í dagsjósið á nýjan leik. Góðærisdagur vinnings- hafinn fær að rúnta um í limma eins og fínn maður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.