Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 02.01.1906, Page 6
4
Eptir tollreikningunum 1904 verður verð aðfluttrar, en tollskyldrar vöru 198 þús.
krónum hærra, en eptir verzlunarskýrslunum. — Sje verð útfluttrar vöru á sama
hátt horið saman eptir tollreikningunum og verzlunarskýrslunum kemur en meiri
mismunur út. En hann stafar mest af því, að hvalveiðastöðvarnar á Austurlandi
hafa yfir höfuð alls engar skýrslur gefið um, livað þeir lluttu út, eða hvað þær fluttu
til landsins.
Tafln B. telur verð Tafla F. telur verð
allrar útfluttrar vöru allrar útfluttrar vöru
kr. kr.
Til Danmerkur ...................................... 3,600,000 3,550,000
— Bretlands ...................................... 1,838,000 1,415,000
— Noregs ......................................... 2,531,000 1,252,000
— Spánar ......................................... 1,842,000 1,704,000
— Ítalíu ........................................... 735,000 682,000
— annara landa ..................................... 149,000 140,000
10,695,000 8,743,000
Mismunurinn er kr. 1,952 þús., sem tafla B. er hærri, þegar tollskyldn vörurnar eru
teknar upp í hana, en verzlunarskýrslurnar.
II. Upphæð verzlunarinnar eða verzlunarmagnið.
Upphæðin, sein keypt er fyrir vex ár frá ári, sama má segja um það, sem
út er flutt, því þótt það komi opl fyrir, að síðara árið sje lægra, en árið næst á
undan, þá vex upphæðin, sem verzluð er með jafnt og þjetl tímabil eptir tímabil.
í verzlunarskýrshmuni 1903 (Landshagsskýrslur 1904, hls. 270) er tekið fram, að
verzlunarmagnið 1903 sje nákvæmlega tvöfalt meira, en það var á tíinabilinu 1881
—85, sem þó var gott verzlunartímabil, og að aðflutt og útflutt vara samanlögð
hafi að eins verið 1881—85.................................... kr. 163.8 á mann
en 1903 ...................................................... — 297.7 - —
Af því að fólkinu hefur fjölgað hefur verzlunin þó ekki alveg tvöfaldast fyrir hvert
mannsbarn á landinu.
Árið 1904 er upphæð verzlunarinnar við önnur lönd aptur nokkuð lægri en
árinu áður. Orsakirnar til þess eru aðallega, að 1903 voru fluttar út af saltfiski
öllum tegundum ............................................... 31 miljónir punda
en 1904 að eins .............................................. 27--------—
Af hvalslýsi voru fluttar út 1903 ........................... 63 þús. tunnur
en 1904 að eins .............................................. 46
Fyrir hvallýsið 1903 fengust 2150 þúsund kr., en 1904 að eins 840 þús. krónur.
Hallinn lendir eiginlega á öðrum en landsmönnum, þó það koini auðvitað mikið
niður á þeim líka, ef hvalveiðar hregðast.
Eins og að undanförnu er hjer sett yíirlit yfir upphæð verzlunarinnar eða
vörumagnið frá 1881—1904. (Tafla I).
Árið 1904 er 6—700 þús. króna lægra en 1903. En hvalafurðir 1904 eru
1400 þús. krónum lægri en 1904. Landið hefur því fært sig upp um 6—700 þús.
krónur á öðrum vörum. Meðaltal verzlunarmagnsins 1901—04 er 22 milj. krónur,
sem er ekki nákvæmlega hehningi meira en það var 1881—85, en þó svo nærri því
að vel má segja að upphæð verzlunarinnar hafi tvöfaldast á 20 árum.
Verð aðfluttrar og útfluttrar vöru hefur numið á mann 1881—85 kr. 163.8.
1901—04 kr. 276.1. Á mann hefur verzlunin vaxið um 70°/o, sem er allmikið jafn-
vel þótt tillit sje tekið til þess, að peningar hafa lækkað í verði á sama tíma. Með
verzlunarmagni sem er 276 kr. á mann, mun landið vera 5ta land í röðinni að of-
an í Norðurálfu, eins og bent var á í fyrra (Landshagsskýrslur 1904, bls. 271) hvað
verzlunarupphæð snertir.