Lögmannablaðið - 01.06.2004, Síða 4
4 2 / 2 0 0 4
FRÁ RITSTJÓRN
Sjaldan eða aldrei hefur at-hygli fjölmiðla og almenn-
ings beinst eins mikið að störf-
um okkar lögmanna og fræði-
grein okkar, lögfræði, eins og
undanfarið.
Staðreyndin er sú að fjöl-
miðlar, sama hverjir eigendur
þeirra eru, hafa í dag mikil
áhrif á störf lögmanna, sérstak-
lega í þeim málum sem koma
fyrir dómstóla. Þannig má búast við því
að niðurstaða héraðsdóms eða Hæstarétt-
ar í einstöku máli sé komin í fréttir rétt
eftir dómsuppsögu og jafnvel áður en
viðkomandi málflytjandi hafi náð að
kynna sér efni dómsins nægilega og
kynna fyrir umbjóðanda sínum.
Sú spurning vaknar óhjákvæmilega við
mat á því hvort áfrýja eigi dómi til
Hæstaréttar hvort aðili dómsmáls sé til-
búinn að fá aðra umfjöllun um málið, eða
eftir atvikum útreið, í fjölmiðlum eftir
dóm Hæstaréttar. Staðreyndin er því mið-
ur sú að þegar fjölmiðlar fjalla um dóms-
mál þá einblína þeir yfirleitt einungis á
niðurstöðuna en líta framhjá þeim lög-
fræðilega ágreiningi sem var uppi í mál-
inu, um túlkun laga og réttarheimilda og
þar með sjónarmiðum aðila málsins.
Mun alvarlegra er þegar fjölmiðlar
komast yfir upplýsingar eða gögn í opin-
beru máli og birta við upphaf rannsóknar
eða á rannsóknarstigi, án tillits
til rannsóknarhagsmuna eða
þeirra einstaklinga sem hlut
eiga að máli. Ritstjóri hefur
orðið vitni að slíkri fjölmið-
laumfjöllun þar sem engir fyr-
irvarar voru gerðir um að rann-
sókn málsins væri að hefjast
heldur var hinn kærði fundinn
sekur og margvíslegar ávirð-
ingar bornar á kæranda.
Þar er reyndar ekki við fjölmiðla að
sakast heldur frekar þá aðila sem hafa
viðkomandi upplýsingar og eiga að varð-
veita sem trúnaðarmál en gera það ekki.
Hlutverk fjölmiðla er að flytja fréttir.
Mat á því hvað þykir fréttnæmt hverju
sinni hlýtur því alltaf að vera hjá frétta-
mönnum og ritstjórn viðkomandi fjöl-
miðils. Fjölmiðillinn verður hins vegar
að vera algerlega hlutlaus í fréttaflutningi
sínum til almennings. Einstakar skoðanir
fréttamanna, ritstjórnar eða eftir atvikum
eiganda fjölmiðils um tiltekna frétt, eiga
ekki að vera sýnilegar í fréttaumfjöllun-
inni heldur birtast á öðrum vettvangi.
Að lokum ítrekar ritstjóri þá ósk að fé-
lagsmenn sendi inn greinar eða ábend-
ingar um hugðarefni sín þannig að Lög-
mannablaðið geti þjónað þeim tilgangi
að vera vettvangur skoðanaskipta lög-
manna.
Gleði legt sumar !
Guðrún Björg
Birgisdóttir
hdl.