Lögmannablaðið - 01.06.2004, Síða 15
15
mála er afgreidd með því annars vegar að
telja jafnréttislögin barn síns tíma og hins
vegar að niðurstöðum kærunefndarinnar sé
nú hvort sem er meira og minna snúið við.
• Lagt er fram af ríkisstjórn frumvarp til
breytinga á lögum um meðferð opinberra
mála, þar sem gert er ráð fyrir því að hler-
anir verði heimilar án dómsúrskurðar.
• Niðurstaða umboðsmanns Alþingis, um að
embættisveiting hafi falið í sér brot á
reglum dómstólalaga og stjórnsýslulaga, er
túlkuð af þeim sem hún beinist að á þann
veg að hafi ekki falið í sér niðurstöðu um
að lög hafi verið brotin. Kannski sú afstaða
breytist að fenginni niðurstöðu prófessors
Páls Hreinssonar, sem telur viðmið um-
boðsmanns eðlileg og í fullu samræmi við
hefðbundnar kröfur. Páll er almennt talinn
fremsti fræðimaður okkar á þessu sviði.
Ætli umboðsmaður komi ekki næstur hon-
um í því.
• Haft er eftir utanríkisráðherra í umræðu
um svokallað fjölmiðlafrumvarp að vegna
breytinga sem gerðar hafi verið á frum-
varpinu sé hann öruggari gagnvart stjórn-
arskrá við 3ju umræðu en hinar tvær fyrri.
Hann greiddi þó atkvæði með frumvarpinu
að lokinni bæði 1. og 2. umræðu, væntan-
lega í verulegum vafa um að það stæðist
gagnvart stjórnarskrá.
Verðum við ekki að ætlast til meira af þeim
sem við veljum til forystu í samfélaginu?
L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
Skil fjárvörsluyfirlýsinga
vegna ársins 2003.
Félagið minnir sjálfstætt starfandi lög-
menn á að skila inn yfirlýsingum vegna
fjárvörslureikninga og verðbréfaskrár
fyrir árið 2003, en skilafrestur rennur
út 1. september n.k. Eyðublöð hafa
verið send lögmönnum, en eyðublaðið
má einnig finna á heimasíðu félagins, en
slóðin er: www.lmfi.is/documents/eydu-
blad_fjarvorslur.pdf
Verðmat og skipting
dánar- og þrotabúa
Áratuga reynsla við verðmat, sölu og
skiptingu dánar- og þrotabúa.
Svið þekkingar og þjónustu okkar nær
yfir antik, listmuni, bækur, frímerki,
húsbúnað, nytjamuni, tæki og tól.
SANNGJARNT VERÐ.
•
Jónas Ragnar Halldórsson
antik- og listmunasali.
Laugavegi 101, GSM 897 5117
Bréfasími 552 8222 og sími 551 5222
Netfang: goco@simnet.is