Vísbending - 16.02.2015, Page 1
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
V Í S B E N D I N G • 7 . T B L . 2 0 1 5 1
16. febrúar 2015
7. tölublað
33. árgangur
ISSN 1021-8483
Vísbending hefur skoðað
bæjarfélög sem standa best
og lakar. Átta kjósendur sig á
stöðunni?
Norðmenn hafa lengi
grætt á háu olíuverði.
Nú lenda þeir í
niðursveiflu.
Flutningar með skipum
og flugvélum valda því að
fjarlægðir skipta minna
máli í viðskiptum en áður.
„Með ósannindum og óhróðri
reyna stjórnarliðar á alla vegu
að rugla dómgreind manna“.
Hver mælir svo?
1 32 4
Traust og trygg staða sveitarfélaga
Árum saman hefur Vísbending skoð-að fjárhagslegan styrk sveitarfélaga miðað við nokkra þætti. Síðasta
úttekt var í 38. tbl. árið 2014 og þá voru
Seltjarnarnes og Garðabær í efstu tveimur
sætunum, en þessi tvö sveitarfélög hafa haft
nokkra sérstöðu í könnuninni og skipað sé
á eða við toppinn flest ár. Úttektin vekur
mikla athygli meðal sveitarstjórnarmanna og
þeir vilja gjarnan ná góðri einkunn sem er
jákvætt, því að góð einkunn gefur til kynna
fjárhagslegan styrk. Á undanförnum árum
hefur staða flestra sveitarfélaga batnað, en
engu að síður hafa mörg þeirra fengið fall-
einkunn eða minna en 5,0. Árið 2014 stóðst
um þriðjungur sveitarfélaganna ekki fjár-
hagslegar kröfur Vísbendingar.
Peningar eru ekki allt
Mörg sveitarfélög sem ekki fengu háa
einkunn á mælikvarða Vísbendingar undu
því illa á árum áður og ósjaldan fékk ritstjóri
hringingar eða pósta frá óánægðum bæjar-
stjórum sem sögðu að taka yrði tillit til fleiri
þátta en hinna fjárhagslegu, þegar metið væri
hvaða sveitarfélög væru til fyrirmyndar. Líta
yrði til hás þjónustustigs og ánægju íbúanna
að minnsta kosti jafnhliða öðrum þáttum.
Undantekningarlítið hafa þau bæjarfélög
sem hæst kvörtuðu undan ósanngjarnri um-
fjöllun Vísbendingar lent á lista eftirlitsnefnd-
ar um fjárhagsveitarfélaga um tímabundna
gjörgæslu.
Auðvitað er það engu að síður spennandi
að vita hvort þau sveitarfélög sem best
standa fjárhagslega ná sínum styrk með svo
mikilli aðhaldssemi að íbúarnir líði fyrir. Ný-
lega kom út bókin Hin mörgu andlit lýðræðis
eftir Gunnar Helga Kristinsson. Undirtitill
bókarinnar lýsir efninu vel: Þátttaka og vald
á sveitarstjórnarstiginu.
Í bókinni lýsir höfundur athugun sinni
á sveitarstjórnarstiginu og byggir þar með-
al annars á viðamikilli könnun sem gerð
var árið 2009 meðal íbúa og sveitarstjórn-
armanna í 22 stærstu sveitarfélögunum. Í
hverju um sig var úrtakið 300 manns þannig
að ætla má að niðurstöður gefi góða hug-
mynd um afstöðu íbúa. Meðal niðurstaðna
sem höfundur birtir er afstaða íbúa til kynn-
ingar, samræðu og áhrifa þeirra á störf sveit-
arstjórna. Niðurstaðan er sú að þrjú sveitar-
félög hafi nokkra sérstöðu og raði sér í efstu
sæti á öllum sviðum. Þetta eru Garðabær,
Seltjarnarnes og Hornafjörður. Höfundur
telur að almennt séu kynning og samræða
erfiðari eftir því sem sveitarfélögin séu stærri.
Traust
Sérstökum kafla er varið í traust á sveit-
arstjórnum. Allir þekkja að almenningur
treystir flestum stofnunum samfélagsins ekki
vel og traustið rýrnaði enn við hrun. Þetta á
líka við um sveitarfélögin, en þó bera 60%
íbúanna töluvert eða mjög mikið traust til
sveitarstjórna í sínu byggðarlagi árið 2009
meðan minnihluti treystir ríkisstjórn, Al-
þingi og ráðuneytum.
Áhugavert er að skoða hvernig traust til
sveitarstjórna tengist því hvernig fjárhagur
þeirra er. Könnunin er gerð árið 2009, en
ákveðið var að bera niðurstöður saman við
árið 2012. Þannig sést hvort sveitarstjórnir
hafa staðið undir því trausti eða vantrausti
sem álit íbúanna endurspeglar. Athugunin
hér byggir á röðun þannig að skalinn sjálfur
skiptir ekki máli heldur hvar sveitarfélög-
in lenda í röðinni. Hann er jafnframt lát-
inn skiptast um 0 þannig að sveitarfélagið
í miðunni fær einkunn núll en nær frá -10
upp í 11. Sveitarfélagið sem besta einkunn
fær er með 11 stig og það lægsta -10.
Myndin sýnir að fylgni er allgóð á milli
trausts og þess hvort stjórnirnar reynast
traustsins verðar. Efst til hægri eru fyrrnefnd
þrjú sveitarfélög og Vestamannaeyjar koma
þar skammt á eftir. Sömuleiðis sést að ýmis
sveitarfélög sem lakar standa, Reykjavík,
Norðurþing og Álftanes, eru neðarlega í
vinstri hlutanum. Fylgnin er ekki fullkomin.
Allmargar sveitarstjórnir njóta lítils trausts
en bæjarfélögin standa bærilega meðan
önnur standa lakar en íbúarnir treysta samt
sveitarstjórnum. Fylgni er þó jákvæð með
r=0,44.
Niðurstaðan er því sú að íbúar eru allvel
meðvitaðir um stöðu bæjarfélaganna og
sambandið milli traustrar stjórnar og góðrar
fjármálastöðu.
Mynd: Fjárhagsstaða 22 stærstu sveitar
félaganna og traust íbúanna til sveitarstjórna
Byggt er á röðun. Fjárhagslega sterkustu sveitarfélögin eru til hægri á myndinni og þær sveitarstjórnir sem
best er treyst ofarlega. Heimildir: Hin mörgu andlit lýðræðis eftir Gunnar Helga Kristinsson og úttekt
Vísbendingar.