Fréttablaðið - 19.11.2014, Síða 40
19. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 24
MEÐ ROÐI
ROÐLAUS OG BE
INLAUS
FROSNAR
SPORT
HANDBOLTI Ágúst Þór Jóhannsson,
landsliðsþjálfari kvenna í hand-
bolta, valdi í gær 22 leikmenn í
landsliðshóp sinn fyrir leiki við
Ítalíu og Makedóníu í forkeppni
HM 2015. Þrír nýliðar eru í hópn-
um, Díana Dögg Magnúsdóttir úr
ÍBV, Þórey Ásgeirsdóttir sem spil-
ar með Kongsvinger í Noregi og
svo Hrafnhildur Hanna Þrastar-
dóttir, 19 ára leiðtogi Selfossliðs-
ins, sem á að baki mjög merkilega
leið inn í íslenska A-landsliðið.
Mátti ekkert segja alla helgina
„Ég er mjög ánægð. Ég fékk að
vita þetta fyrir helgi en ég mátti
ekki segja neinum frá því fyrr en
það var búið að birta hópinn. Það
var auðvitað svolítið erfitt en alveg
hægt,“ sagði Hrafnhildur Hanna
í léttum tón þegar Fréttablaðið
heyrði í henni í gær. Allan hópinn
má finna inni á Vísi.
„Ég er að sjálfsögðu búin að vera
að stefna að þessu og það er gaman
að fá tækifæri núna,“ segir Hrafn-
hildur Hanna en af hverju heldur
hún að kallið hafi komið núna?
„Ég veit það nú ekki. Ég er búin
að standa mig ágætlega, held ég,
það sem af er tímabils og hef
náð að halda ágætum dampi. Ég
hef verið að skora aðeins meira
en síðustu ár og það er kannski
ákveðinn plús,“ segir Hrafnhildur
Hanna. Hún hefur skorað 7,8 mörk
að meðal tali í Olís-deildinni í vetur
en var með 5,5 mörk í leik í fyrra.
Hrafnhildur Hanna er ekki
aðeins afrekskona í handbolta
heldur náði hún einnig flottum
árangri í fimleikum. „Ég var í fim-
leikum en hætti síðasta haust. Ég
ákvað að velja á milli því þetta var
orðið of mikið. Ég var bara allt-
af að æfa og álagið var orðið það
mikið að ég bara varð að velja á
milli til að geta sinnt þessu alveg
120 prósent. Ég komst ekki alveg á
allar æfingar þegar ég var í báðum
greinum. Mér fannst þetta vera
jafn skemmtilegt þannig að þetta
var mjög erfitt,“ segir Hrafnhild-
ur Hanna.
„Ég var næstum því komin
í ofþjálfun. Stundum fór ég á
þriggja tíma fimleikaæfingu og
svo beint á handboltaæfingu eftir
hana í einn og hálfan tíma. Ég var
þá kannski búin að æfa um morg-
uninn líka,“ segir Hrafnhildur
Hanna og það leynir sér ekki að
það var kominn tími til að velja.
Vann bæði gull og brons á EM
Hrafnhildur Hanna var í hópfim-
leikum og fór tvisvar á Evrópu-
meistaramót með unglingalands-
liðinu og kom heim með verðlaun
í bæði skiptin. „Við unnum brons
2010 og gull 2012,“ segir Hrafn-
hildur Hanna en í íslenska hand-
boltalandsliðinu í dag er því
fyrrverandi Evrópumeistari í hóp-
fimleikum.
Hrafnhildur Hanna segir fim-
leikana hafa verið góðan grunn
fyrir handboltann. „Fimleikarn-
ir nýttust mér rosalega vel, bæði
hvað varðar styrk og snerpu. And-
legi þátturinn hefur hjálpað mér
líka. Fimleikarnir hafa hjálpað
mér mjög mikið og ég sé alls ekki
eftir því að hafa verið í fimleik-
unum,“ segir Hrafnhildur Hanna
og nefnir til fjölbreyttar æfingar
sem hafi komið sér vel. Hrafn-
hildur Hanna fer fyrir liði Selfoss
sem er skipað ungum og efnilegum
stelpum.
„Við erum á mikilli uppleið á
Selfossi og við erum í uppbygg-
ingarstarfi. Þetta er þriðja tíma-
bilið okkar í Olís-deildinni og við
höfum bætt okkur á hverju ári.
Við erum á góðri leið með að fara
lengra núna heldur en við gerð-
um á síðasta tímabili. Það er björt
framtíð hérna,“ segir Hrafnhildur
Hanna og hún sér fleiri elta sig inn
í landsliðið.
Fullt af sprækum stelpum
„Það er fullt af sprækum stelpum
hérna og allar á svipuðum aldri og
ég. Þær eiga því mikla möguleika
á því að komast í landsliðið í fram-
tíðinni,“ segir Hrafnhildur Hanna
en landsliðsþjálfarinn, Ágúst
Jóhannsson, velur ekki bara leik-
menn úr efstu liðum deildarinnar.
„Mér finnst það frábært að það
geti fleiri komist í landsliðið en
þær sem spila með efstu liðunum.
Það verður gaman að sjá hvern-
ig þetta verður og kynnast þessu
aðeins. Það er alltaf fyrsta skref-
ið,“ segir Hrafnhildur Hanna að
lokum. ooj@frettabladid.is
Fimleikarnir nýttust rosalega vel
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Evrópumeistari með unglingalandsliði Íslands í hópfi mleikum árið 2012, tók handboltann fram yfi r
fi mleikana og komst í gær í A-landslið kvenna í handbolta í fyrsta sinn. Hún er einn af þremur nýliðum fyrir leiki í forkeppni HM.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er ekki sú eina úr fjölskyldunni sem er í
landsliðinu að þessu sinni því þar er einnig frænka hennar, Karen Helga
Díönudóttir. Pabbi Karenar Helgu og mamma Hrafnhildar Hönnu eru
systkini. „Við erum því náskyldar,“ segir Hrafnhildar Hanna Þrastardóttir.
„Hún kom fyrst inn í æfingatörninni síðast og er því í annað skiptið með
núna. Ég er eitthvað aðeins búin að vera í sambandi við hana. Það er gott
að vera tvær saman í þessu. Það er líka gaman að fá prófa það að spila
með henni því ég hef alltaf verið að spila á móti henni,“ segir Hrafnhildur
Hanna en Karen Helga er þremur árum eldri en hún og spilar með
Haukum. - óój
Frænka hennar er líka í landsliðinu
7,8 MÖRK Í
LEIK Hrafnhildur
Hanna fer fyrir
sóknarleik Selfoss.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL