19. júní - 19.06.2011, Qupperneq 7
Já takk!
Ég vil gjarna ganga í Kvenréttindafélag Íslands
Nafn:
Kennitala:
Heimilisfang:
Póstfang og staður:
Netfang:
Sendist til Kvenréttindafélags Íslands, Túngötu 14, 101 Reykjavík.
Einnig er hægt að ganga í félagið með skráningu á heimasíðunni www.krfi.is
Hver eru mest aðkallandi verkefni
kvennabaráttunnar í dag?
Í raun hefur enn ekki tekist að
vinna full naðar sigur í neinu af megin
viðfangsefnum kvenna baráttunnar.
Það hefur náðst lagalegt jafnrétti á
helstu vígstöðvum, en engu að síður
viðgengst launamunur kynjanna
enn og aðgengi kvenna og karla að
völdum er ójafnt. Það er í rauninni
óþol andi að sé ekki búið að klára þessi
mál.
Kynbundið ofbeldið er þó sennilega
allrabrýnasta viðfangsefnið í dag. Það
er nú mikinn part kvenna baráttunni
að þakka að flett var ofan af þessu
samfélags meini. Hérna er hagur
kynjanna sá sami; karlar geta ekki
unað því að konurnar í kringum þá
séu beittar ofbeldi – né heldur að
einstaka ofbeldismaður setji blett á
karlkynið allt.
Hvernig lítur jafnrétti kynjanna út
í þínum huga?
Umfram allt að annað kynið hætti að
búa við forréttindastöðu á kostnað
hins. Þetta virkar svo sjálfsagt, en
þjóðfélagið hefur í raun þurft að
vera í gjör gæslu til að ná þessu fram.
Eins og samfélagið er vaxið í dag,
þá þarf endalausa runu af sértækum
Andrés Ingi Jónsson situr
í aðalstjórn Kvenréttinda-
félags Íslands
Stórn Kvenréttinda-
félags Íslands
Frá vinstri: Halldóra Traustadóttir, framkvæmdastýra, Helga Guðrún Jónasdóttir, formaður, Hildur Helga Gísladóttir, gjaldkeri, Fríða Rós
Valdimarsdóttir, ritari, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, varaformaður, á myndina vantar Ingu Guðrúnu
Kristjánsdóttur, Margréti Björnsdóttur og Ragnheiði Bóasdóttur.
aðgerðum og lagasetningu til að
tryggja þá sjálf sögðu kröfu að kynin
búi ekki við óeðlilegan aðstöðumun.
Í draumaveröld ætti einstaklingurinn
einn að skipta mál en veruleikinn
er því miður annar. Baráttan snýst
um að gera það að veruleika og gera
baráttuna óþarfa.
19. júní, tímarit Kvenréttinda félags
Íslands, 60. árgangur.
Hallveigarstaðir,
Túngata 14,
101 Reykjavík
www.krfi.is
krfi@krfi.is
Kvenréttindafélag Íslands
Konur í kreppu?
Í mars síðastliðnum voru tilkynntar
uppsagnir hjá ríkinu. Uppsagnirnar
bitnuðu helst á konum, en fækkað
var um 470 konur og 70 karla.
Guðbjartur Hannesson, velferðar
ráðherra, sagði í viðtali við RÚV
útskýring una vera þá að störfum hefði
langmest fækkað innan heil brigðis
geirans, en þar væru konur um 86
prósent starfs manna.
Efnahagskreppan hefur þó bitnað
meira á körlum en konum. Árið 2008
var atvinnuleysi karla og kvenna jafn
mikið, eða 2,3%. Árið 2009 voru 8,7%
karl manna atvinnulausir en 5,7%
kvenna. Á síðasta ári voru enn 8,4%
karla atvinnulausir en 6,8% kvenna.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu
Íslands fækkaði starfandi karlmönnum
um tæplega 9.000 milli áranna 2008
og 2009. Árið 2008 störfuðu 97.100
karlmenn á Íslandi en árinu seinna
voru þeir 87.300. Árið 2008 voru
starf andi konur 81.500 en fækkaði
lítillega milli ára og voru 79.500 árið
2009. Þessi fækkun átti sér aðallega
stað í ákveðnum starfsgreinum. Hjá
körlum fækkaði t.d. iðnaðarmönnum
um 3.200 og sérfræðingum um 1.600.
Konum fækkaði aðallega í þjónustu og
verslun, um 1.800. Konum sem starfa
sem sérfræðingar fjölgaði meira að
segja um 800 milli áranna.
Breytt staða kvenna
Hanna Rosin vakti mikla athygli
í fyrra þegar hún skrifaði grein
með titlinum „The End of Men“
eða „Endalok karlmanna“. Þar
bendir hún á að framtíð kvenna á
vinnu markaði sé björt. Af þeim 15
starfsgreinum sem ætlað er að munu
vaxa mest í Bandaríkjunum á næstu
árum, eru konur í meirihluta í öllum
nema tveimur (tölvunarfræði og
hreingerningum). Rosin bendir á að
konur séu í miklum meirihluta af
þeim sem stunda háskólanám, þróun
sem Íslendingar kannast vel við, en
skólaárið 20082009 útskrifuðust
2.249 konur með háskólapróf en
aðeins 1.158 karlar.
Rosin veltir því fyrir sér hvort
að konur séu ef til vill sérstak lega
vel til þess fallnar að starfa í hvít
flibbastörfum sem ætla megi að séu
framtíðarstörf hér á Vesturlöndum,
þar sem sífellt meiri áhersla er lögð
á þekkingu, tjáskipti og samvinnu.
Hún bendir á að rannsóknir hafa
sýnt að þau fyrirtæki sem höfðu
ágætt hlutfall kvenna í stjórnunar og
millistjórnendastöðum í fjármála
fyrirtækjum stóðu langbest af sér
efnahagshrunið árið 2008.
Hugleiðingar Rosins eru merkilegar
og jákvæðar fyrir konur sérstaklega,
en kannski líka jákvæðar þegar
litið er til stöðugleika á alþjóðlega
fjármálamarkaðnum. Þó megum við
ekki gleyma að þrátt fyrir til tölu lega
jákvæða stöðu kvenna á vinnu
markaði, saman borið við stöðu karla,
þá getur Hagstofa Íslands aðeins
sagt hálfa söguna. Þessar vinnu
markaðs tölur ná ekki yfir ólaunaða
vinnu kvenna. Líklegt er t.d. að
niðurskurður í heilbrigðis kerfinu
muni bitna á konum aðallega, þegar
fjölskyldur þurfa að taka að sér
hjúkrun og umönnun sjúklinga.
Uppsagnir ríkisins hafa bitnað illa á
konum á þessu ári, en þó eru það fleiri
karlar sem hafa misst vinnuna síðan
efnahagur landsins hrundi árið 2008.
Texti: Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir
Ljósmyndari: Þórdís Erla
Ágústsdóttir
Ljósmyndari: Þórdís Erla
Ágústsdóttir
rannsóknir hafa sýnt
að þau fyrirtæki sem
höfðu ágætt hlutfall
kvenna í stjórnunar- og
millistjórnendastöðum í
fjármálafyrirtækjum stóðu
langbest af sér
efnahagshrunið árið 2008“
Vændiskaup
á Íslandi
Hver hefur ekki heyrt setningu á borð
við „vændi er ekki sýnilegt á Íslandi af
því það er svo neðanjarðar“? Á Ís
landi er tiltölulega gott aðgengi að
vændi. Vændiskaup á Íslandi fara m.a.
fram á stefnumóta síðum og
skemmti stöðum, í dag blöðum og
verslunar miðstöðvum. Þó vændi
sé auðfengin þjónusta og síður
en svo falin má þó alltaf reyna
að sannfæra sig – og aðra – um
að vændisiðnaðurinn á Íslandi sé
„neðanjarðar“.
Á hinum Norðurlöndunum eru
reglulega framkvæmdar rannsóknir á
vændiskaupum. Almennt benda
niðurstöður þeirra til þess að um 13
14% karla, 18 ára og eldri, hafi
einhvern tímann á sinni lífsleið keypt
sér vændi. Á Íslandi hefur aldrei
verið framkvæmd rannsókn á
vændis kaupum, hvorki á umfangi
þess né eðli. Ekki er ólíklegt að slík
rannsókn myndi afhjúpa mýtuna um
neðanjarðarvændi á Íslandi og sýna
fram á að margir íslenskir karlar hafi
keypt sér vændi.
Forsíða: Sara Riel
Myndskreyting: Lóa Hlín
Hjálmtýsdóttir
Ljósmyndir: Áslaug Snorradóttir,
Dröfn Nikulásdóttir, Gréta
Guðmundsdóttir og Þórdís Erla
Ágústsdóttir
Umbrot og hönnun: Arna Rún
Gústafsdóttir
Prófarkalestur: Guðni Olgeirsson,
Helga Guðrún Jónasdóttir, Inga Guðrún
Kristjánsdóttir og Ragnheiður Bóasdóttir.
Sérstakar þakkir fá: Auður Styrkársdóttir,
Björg Einarsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir,
vinkonur og framtíðarkonur.
19. júní, tímarit kvenréttindafélags íslands. 60. Árgangur Bls. 7