Nesfréttir - 01.01.2007, Side 1
Jóhann Helgason tónlistarmað-
ur er bæjarlistamaður Seltjarnar-
ness 2007. Menningarnefnd Sel-
tjarnarness útnefndi hann sem
bæjarlistamann sl. laugardag.
Jóhann hefur verið búsettur á
Seltjarnarnesi frá árinu 1981 er
landsþekktur bæði sem lagahöf-
undur og flytjandi. Hefur átt lög
eða sungið inn á vel á annað
hundrað hljómplatna og var fyrst-
ur Íslendinga til að fá höfundar-
réttarsamning erlendis.
Mörg laga Jóhanns hafa notið víð-
tækrar hylli landsmanna og löngum
setið í efstu sætum á spilunarlist-
um útvarpsstöðva. Sum hver hafa
fest rætur í þjóðarsálinni og eru iðu-
lega sungin við margvíslegar opin-
berar athafnir. Meðal þekktra laga
eftir hann má nefna Söknuð sem
fjölmargir söngvarar hafa spreytt
sig á en einna þekktast er lagið í
flutningi Vilhjálms heitins Vilhjálms-
sonar. Einnig má nefna lög eins og
Karen, Ástin og lífið, Seinna meir
og Þegar allt er hljótt. Einkennislag
íþróttafélagsins Gróttu er sömuleið-
is eftir Jóhann.
Við athöfnina á laugardag var
flutt nýtt lag eftir Jóhann sem hann
samdi af þessu tilefni en lagið heitir
Seltjarnarnesið. Texti lagsins, sem
er einkar fallegur óður til Nessins,
er eftir Kristján Hreinsson. Að sögn
Sólveigar Pálsdóttur, formanns
menningarnefndar á það vel við
því Kristján ber sterkar taugar til
Seltjarnarness enda rekur hann ætt-
ir sínar þangað. Afi hans og amma
bjuggu á Teigi og þar ólst faðir hans
upp. Teigur brann 1.janúar 1965.
Að sögn Sólveigar mun menningar-
nefnd væntanlega standa að útgáfu
hljómdisks í tengslum við menning-
arhátíð Seltjarnarness sem fram
fer í júníbyrjun. Á disknum munu
verða lög sem tengjast Seltjarnar-
nesi og m.a. hið nýja lag Jóhanns
Helgasonar bæjarlistamanns.
Fráfarandi bæjarlistamaður er
Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona.
Bifrei›asko›unin flín
v/Bónus • S. 561 33 55
AUGL†SINGASÍMI
511 1188
561 1594JANÚAR 2007 • 1. TBL. • 20. ÁRG.
borgarblod.is
Jóhann Helgason bæjarlistamaður
Sólveig Pálsdóttir formaður Menningarnefndar Seltjarnarness og Jóhann Helgason bæjarlistamaður.