Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.09.2002, Blaðsíða 1
32. tbl. /02
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Gutenberg
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar.
Áskrift er endurgjaldslaus.
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
(bréfsími 522 1109)
eða vai@vegag.is
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 32. tbl. 10. árg. nr. 315 16. sept. 2002
Styrkingar og mölburður
á Austurlandi 2002 - 2003 02-027
Vegagerðin, Austurlandsumdæmi, óskar eftir tilboðum í
styrkingar og mölburð á Austurlandi á árunum 2002 og
2003. Um er að ræða styrkingu á alls 11 stöðum á Austur-
landi.
Helstu magntölur: fylling 3.600 m3, neðra burðarlag
24.200 m3, mölburður 34.300 m3, lengd 96 km,
rofvörn 1.800 m3, frágangur fláa 9.000 m2,
hörpun 26.200 m3, ræsi 210 m.
Verki skal að fullu lokið 1. október 2003.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði
og í Borgartúni 7, Reykjavík (móttaka), frá og með
þriðjudeginum 17. september 2002. Verð útboðsgagna
er 1.500 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
mánudaginn 30. september 2002 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.
Gljúfurá í Húnavatnssýslu
Brúin var breikkuð 2001 með því að byggja nýjan brúarhluta við
upphaflegu einbreiðu brúna frá 1977. Auk nýrra millistöpla til
hliðar við þá gömlu, var steypt utan um alla upphaflegu stöplana
og yfir gömlu plötuna og ný brík þar einnig. Því má segja að
gömlu brúnni hafi að mestu verið „pakkað inn“. Brúin er í mjög
tilkomumiklu umhverfi, en áin fellur neðan brúar í þröngu
gljúfri og ber nafn af því.
Baldur Þór Þorvaldsson
Auglýsingar útboða
Vetrarþjónusta í Norðurárdal og
á Bröttubrekku 2002-2004 02-090
Vegagerðin, Vesturlandsumdæmi, óskar eftir tilboðum í
vetrarþjónustu í Norðurárdal og á Bröttubrekku 2002-
2004. Um er að ræða snjómokstur og hálkuvörn á
eftirtöldum leiðum:
- Hringvegur (1) frá Borgarnesi að Sanddalsá, 48 km
- Hvítárvallavegur (510) frá Hringvegi að Hvítá, 6 km
- Vestfjarðavegur (60) frá Hringvegi að
Breiðabólsstað, 17 km
- Norðurárdalsvegur (528) frá Hringvegi á Hringveg,
16 km
Auk þess er um að ræða hálkuvörn á eftirfarandi leið:
- Hringvegur (1) frá Sanddalsá að Brú í Hrútafirði,
37 km
Magntölur eru áætlaðar: snjómokstur
og hálkuvörn 10.000 km, hálkuvörn 6.000 km
Verki skal að fullu lokið 30. apríl 2004.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni í Borgarnesi
og í Borgartúni 7, Reykjavík (móttaka), frá og með
mánudeginum 16. september 2002. Verð útboðsgagna
er 1.500 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 mánu-
daginn 30. september 2002 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.