Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 14.10.2002, Qupperneq 4
G
ut
en
be
rg
G
ut
en
be
rg
cyan magenta yellow black
G
ut
en
be
rg
35. tbl. /02
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Gutenberg
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar.
Áskrift er endurgjaldslaus.
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
(bréfsími 522 1109)
eða vai@vegag.is
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 35. tbl. 10. árg. nr. 318 14. okt. 2002
Auglýsingar útboða
Reykjanesbraut (41), breikkun
Hvassahraun - Strandarheiði 02-078
Vegagerðin, Reykjanesumdæmi óskar eftir tilboðum í
tvöföldun Reykjanesbrautar á 8,6 km löngum kafla frá
Hvassahrauni á Strandarheiði ásamt byggingu mislægra
vegamóta við Hvassahraun og Vatnsleysustrandarveg og
tengingum við þau. Boðnar eru út tvær útfærslur á slitlagi
Reykjanesbrautar með malbiki eða steinsteypu.
Helstu magntölur: bergskering 97.000 m3,
neðra burðarlag 88.000 m3, efra burðarlag 30.000 m3,
tvöföld klæðing 48.000 m2, malbik á aðreinar, fráreinar,
og vegamót 27.000 m2, slitlag á Reykjanesbraut malbik
eða steypa 64.000 m2, mótafletir 2.500 m2, slakbennt
járnalögn 139 tonn, spennt járnalögn 23 tonn, steypa í
vegamótabrýr 860 m3.
Verki skal vera að fullu lokið 1. nóvember 2004.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni í Borgarúni 7,
Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 15. októ-
ber 2002. Verð útboðsgagna er 8.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 mánudag-
inn 4. nóvember 2002 og verða þau opnuð þar kl. 14:15
þann dag.
Vegslóði að rannsóknarholum á
vestursvæði við Kröflu 2002 02-093
Vegagerðin, Norðurlandsumdæmi eystra, fyrir hönd
Landsvirkjunar, óskar eftir tilboðum í gerð vegslóða að
rannsóknarholum á vestursvæði við Kröflu 2002, samtals
um 3,0 km.
Helstu magntölur: jöfnun undirstöðu vegslóða og
borplana 20.900 m2, fylling 15.200 m3,
neðra burðarlag 1.600 m3, frágangur fláa 4.100 m2.
Verki skal að fullu lokið 15. desember 2002.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Akureyri og
í Borgartúni 7, Reykjavík (móttaka), frá og með þriðju-
deginum 15. október 2002. Verð útboðsgagna er 3.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 mánu-
daginn 28. október 2002 og verða þau opnuð þar kl. 14:15
þann dag.
Biskupstungnabraut (35)
um Laugaá 02-092
Vegagerðin, Suðurlandsumdæmi, óskar eftir tilboðum í
endurbyggingu Biskupstungnabrautar (35) á um 1,2 km
löngum kafla um Laugaá.
Helstu magntölur eru: fylling og fláafleygar 20.300 m3,
skering 1.400 m3, neðra burðarlag 5.700 m3, efra burðar-
lag 1.500 m3, stálröraræsi 140 m, skurðir 1.900 m, tvöföld
klæðing 9.000 m2, girðingar 800 m.
Verki skal að fullu lokið 15. júní 2003.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Selfossi og í
Borgartúni 7, Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeg-
inum 14. október 2002. Verð útboðsgagna er 3.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 mánu-
daginn 28. október 2002 og verða þau opnuð þar kl. 14:15
þann dag.
Hringvegur (1),
brú á Vatnsdalsá (Hnausakvísl),
forsteyptar plötur 02-009
Vegagerðin, Norðurlandsumdæmi vestra, óskar eftir til-
boðum í framleiðslu og flutning á forsteyptum plötum
fyrir brú á Vatnsdalsá (Hnausakvísl) hjá Hnausum í
Austur-Húnavatnssýslu.
Helstu magntölur: fjöldi platna 59 stk., þyngd platna 249
tonn, slakbennt járnalögn 15.400 kg, steypa 99,6 m3.
Verki skal að fullu lokið eigi síðar en 28. febrúar 2003.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni á Sauðárkróki
og í Borgartúni 7, Reykjavík (móttaka), frá og með mánu-
deginum 14. október 2002. Verð útboðsgagna er 1.500 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 mánu-
daginn 28. október 2002 og verða þau opnuð þar kl. 14:15
þann dag.
Yfirlit yfir útboðsverk
Þessi listi er stöðugt til endurskoðunar og geta dagsetningar og annað breyst fyrirvaralaust.
Það eru auglýsingar útboða sem gefa endanlegar upplýsingar.
Fremst í lista er númer útboðs í númerakerfi framkvæmdadeildar. Þá er skammstöfun fyrir
umdæmi Vegagerðarinnar: Sl:Suðurland, Rn:Reykjanes, Vl:Vesturland, Vf: Vesfirðir,
N.v: Norðurland vestra, N.ey: Norðurland eystra, Au:Austurland.
Fyrirhuguð útboð Auglýst:
dagur, mánuður, ár
02-044 N.v. Siglufjarðarvegur (76), Gránugata -
Tjarnargata á Siglufirði 03
02-074 Vf. Vestfjarðavegur (60),
ræsi í Ausuá í Dýrafirði 03
02-014 Sl. Hringvegur (1), vega- og brúargerð
við Skaftá 03
02-019 Vl. Snæfellsnesvegur (54), um Kolgrafafjörð 02
01-018 Rn. Nesbraut (49), færsla Hringbrautar, hönnun 02
02-015 Sl. Hringvegur (1), við Hellu 02
00-054 Rn. Hallsvegur (432),
Fjallkonuvegur – Víkurvegur 02
02-091 Áætlunarakstur á Suðurlandi
og hluta Austurlands 2003 - 2005 02
02-026 Au. Norðausturvegur (85)
Hölkná – Miðheiðarhryggur 02
Útboð sem hafa verið auglýst Auglýst: Opnað:
02-093 N.ey. Vegslóði að rannsóknarholum
á vestursvæði við Kröflu 14.10.02 28.10.02
02-009 N.v. Hringvegur (1),
um Vatnsdalsá (Hnausakvísl)
forsteyptar einingar 2002-2003 14.10.02 28.10.02
02-092 Sl. Biskupstungnabraut (35)
um Laugaá 14.10.02 28.10.02
02-078 Rn. Reykjanesbraut (41), breikkun
Hvassahraun - Strandarheiði 14.10.02 04.11.02
02-084 Vl. Hringvegur (1), hringtorg
við Snæfellsnesveg 07.10.02 21.10.02
02-055 Au. Hringvegur (1),
Biskupsháls - Vegaskarð 30.09.02 14.10.02
Útboð á samningaborði Auglýst: Opnað:
02-056 Sl. Hringvegur (1), brú á Þjórsá 02.09.02 30.09.02
02-090 Vl. Vetrarþjónusta í Norðurárdal og
á Bröttubrekku 2002-2005 16.09.02 30.09.02
02-027 Au. Styrking og mölburður
á Austurlandi 2002-2003 16.09.02 30.09.02
02-087 Sl. Snjómokstur og hálkuvörn,
í austurhluta Rangárvallasýslu og
vesturhluta Vestur-Skaftafellssýslu 09.09.02 23.09.02
02-089 Sl. Snjómokstur og hálkuvörn,
í austurhluta Vestur-Skaftafellssýslu 09.09.02 23.09.02
02-086 N.v. Þverárfjallsvegur (744),
Skúfur - Þverá 2002 09.09.02 23.09.02
02-060 Sl. Snjómokstur og hálkuvörn,
uppsveitir Árnessýslu, austurhluti 12.08.02 26.08.02
Samningum lokið Opnað: Samið:
01-122 Veggöng 2002 - Forval 24.06.02
Niðurstöður forvals voru birtar í 33. tbl.
Gæðanámskeið Samtaka iðnaðarins
fyrir verktaka
Mikið hefur verið ritað og rætt um gæðaátak í tengslum við
þjónustu verktaka og oftsinnis verið farið af stað með ýmis
konar átaksverkefni í þeim tilgangi að bæta rekjanleika vinnu-
ferla og samskipta á milli verkkaupa og verktaka. Fæst þessara
verkefna hafa skilað tilætluðum árangri, en enn á ný er blásið til
sóknar í þessum málum.
Samtök iðnaðarins hafa á undanförnum árum unnið að gæða-
málum með ýmsum hópum innan sinna raða. Til þess að þoka
þeim málum enn frekar áleiðis og auka sameiginlegan skilning
verktaka og verkkaupa á gæðastjórnun hafa samtökin óskað
eftir samstarfi við stærstu opinberu verkkaupana. Þessir aðilar
töldu frumkvæði samtakanna mjög gott og þarft og því var þetta
auðsótt mál. Neðangreindir verkkaupar hafa verið að vinna að
sameiginlegum markmiðum og áhersluatriðum til þess að ljóst
megi vera hver stefnan muni verða á næstu árum í gæðamálum
og hvaða kröfur verði gerðar til verktaka í þeim efnum. Þeirri
vinnu er ekki lokið en eftirtalin þrjú atriði eru meðal þeirra atriða
sem rætt hefur verið um:
1. Verkkaupar munu innan fárra ára gera kröfu um að
verktakar í öllum helstu og stærstu verkum hafi
gæðakerfi er byggist á ISO-staðlinum 9001:2000.
2. Mikilvægt er að verktakar geri sér grein fyrir að ekki
er hægt að kaupa fullbúin gæðakerfi eða gæðahand-
bækur af öðrum aðilum. Hvert og eitt fyrirtæki
verður að byggja slíkt upp innan síns eigin fyrirtækis.
3. Neðangreindir verkkaupar munu, að svo miklu leyti
sem hægt er, samræma kröfur til verktaka í gæðamál-
um.
Opinberir verkkaupar eru í auknum mæli að innleiða gæðakerfi
í sinni starfsemi. Við það gangast þeir m.a. undir kröfur um
rekjanlegt mat á birgjum og verktökum. Þar af leiðandi er ljóst
að gerðar verða kröfur um rekjanleika vinnuferla og gæðakerfi
hjá helstu viðskiptavinum þeirra, m.a. hjá ráðgjöfum og verk-
tökum. Það skal þó tekið fram að hér er um langtíma samstarfs-
verkefni að ræða, þar sem að allir aðilar gera sér fulla grein fyrir
því að innleiðing gæðakerfa og síðar e.t.v. kröfur um vottun
munu þurfa að haldast í hendur hjá aðilum markaðarins.
Þeir aðilar sem komið hafa að undirbúningi þessa námskeiðs
eru: Vegagerðin, Landsvirkjun, Siglingastofnun, Gatnamála-
stjóri, Orkuveita Reykjavíkur, Framkvæmdasýsla ríkisins, Fast-
eignastofa Reykjavíkur og Innkaupastofnun Reykjavíkur-
borgar.
Síðasta námskeið var haldið þann 10. október og þátttaka ræð-
ur síðan framhaldinu.
Nýtt á lista
Munið vinnustaða-
merkingarnar