Nesfréttir - 01.05.2015, Blaðsíða 10

Nesfréttir - 01.05.2015, Blaðsíða 10
10 Nes ­frétt ir iKort er alþjóðlegt Mastercard inneignar kreditkort. Að sögn Guðbjargar Daggar Snjólfsdóttur þjónustustjóra hjá iKort hefur kortið verið í umferð á Íslandi í á annað ár og fengið mjög góða viðtökur. Hægt er að fá tvær gerðir af iKortum. Annars vegar ópersónugert iKort (iKort án nafns) og hins vegar persónugert iKort (iKort með nafni). Ópersónugerðu kortin eru tilbúin til afgreiðslu samstundis og um leið og búið er að virkja kortið er það tilbúið til notkunar. Persónugerðu kortin eru hefðbundnari útlits, með nafninu á. Persónugerðu kortin eru útbúin í London og það tekur að jafnaði um 10 virka daga að fá þannig kort. Einungis er um útlitsmun á kortunum að ræða, notkunarmöguleikarnir eru þeir sömu. Kostir iKorts Þú þarft ekki að vera með bankareikning. Þú getur fengið kortið strax og enginn annar en þú hefur aðgang að kortaupplýsingum þínum. Þú hefur góða yfirsýn yfir fjármálin og þarft ekki að hafa áhyggjur af kortareikningi um hver mánaðamót. iKort fæst á Póshúsum um allt land Auðvelt er að sækja um iKort á www.ikort.is en auk þess er hægt að nálgast ópersónugerð kort á Pósthúsum um allt land. Á Pósthúsum er einnig hægt að hlaða peningum inn á kortið. Helsti munurinn á iKorti og öðrum debet- og kreditkortum iKort er endurhlaðanlegt alþjóðlegt rafeyriskort. Í hvert sinn sem iKort er notað er andvirði viðskiptanna dregið frá inneign kortsins. iKorti fylgir ekki yfirdráttur og því verður að hlaða kortið með nægri inneign áður en það er notað. Þannig er tryggt að þú eyðir ekki meiru en þú átt. Örgjörvinn í iKortum heldur alltaf utan um rétta stöðu. Hægt er að nota iKort hvar sem er í heiminum Hægt er að nota kortið hvar sem er erlendis. Tekið er við MasterCard kortum á yfir 32 milljón stöðum um allan heim, allsstaðar þar sem þú sérð MasterCard merkið er hægt að nota iKort, þar með talið til í hraðbönkum og á netinu. Hagkvæmt að senda peninga til vina og vandamanna erlendis Kortið er einkar hentugt fyrir þá sem vilja senda peninga til vina og ættingja sem eru búsettir erlendis. Í staðinn fyrir að þurfa að millifæra af íslenskum bankareikningi inn á erlendan bankareikning er hægt að hlaða kortið beint í íslenskum heimabanka og peningurinn er kominn samstundis inn á kortið. Hefðbundnum millifærslum á milli landa fylgir kostnaður og eins tekur nokkra daga fyrir peninginn að berast. Hver sem er getur lagt inn á kortið og þegar iKort er hlaðið er ekki um neinn kostnað eða biðtíma að ræða. iKort – greiðslukortið sem er ótengt bankakerfinu Öll rúnstykki á 80 kr.stk Bergstaðastræti 13 - 101 Reykjavík - Sími 551 3083 - www.bernhoftsbakari.is

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.