Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar


Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 25.10.2004, Side 1

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 25.10.2004, Side 1
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 29. tbl. 12. árg. nr. 386 25. október 2004 Ritstjórn og umsjón útgáfu: Viktor Arnar Ingólfsson Ábyrgðarmaður: Gunnar Gunnarsson Prentun: Gutenberg Ósk um áskrift sendist til: Vegagerðin Framkvæmdafréttir Borgartúni 7 105 Reykjavík (bréfsími 522 1109) eða vai@vegag.is Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs- framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt, útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka. Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar. Áskrift er endurgjaldslaus. 29. tbl. /04 Merkingar vinnusvæða Í nýlegri skoðanakönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Vegagerðina kom fram að 48,6% svarenda töldu vinnustaða- merkingar fullnægjandi en 39,7% ófullnægjandi. Aðrir tóku ekki afstöðu. Þótt meirihluti þeirra sem tóku afstöðu hafi sýnt okkur það umburðarlyndi að telja þessar merkingar fullnægj- andi þá erum við langt frá því að vera ánægð með þessa nið- urstöðu. Markið verður að setja miklu hærra. Þann 28. júní 1995 stóð Umferðarráð fyrir fundi um merk- ingar á vinnusvæðum í Borgartúni 6 í Reykjavík. Fundurinn var vel sóttur af fulltrúum framkvæmdaaðila, verktaka, lög- reglu auk annarra áhugamanna, alls um 70 manns. Frá þess- um fundi var greint ítarlega í 20. tölublaði Framkvæmdafrétta þetta ár. Nú eru liðin tæp 10 ár síðan þessi fundur var haldinn og ástand merkinga hefur líklega almennt skánað. Reglur hafa verið endurbættar, ákvæði um merkingar í útboðsgögnum eru beinskeittari og viðurlög skýrari. Í mörgum verkum eru vinnustaðamerkingar hannaðar sérstaklega fyrir hvern verk- áfanga. Almennt má líklega telja að starfsmenn Vegagerðar- innar og verktaka séu orðnir betur meðvitaðir um þörf góðra merkinga. En það má ennþá bæta merkingarnar mikið. Það er gott að fara eftir reglunum en starfsmenn á vettvangi verða líka að vera meðvitaðir um sjónahorn vegfarenda. Þeir þurfa að setja sig í spor ókunnugra og finna staðina þar sem aðstæður eru líklegastar til að valda misskilningi og lagfæra þá. Sérstak- lega verður að gæta þess að samræmi sé á milli yfirborðs- merkinga og annarra merkinga. Það er alltof algengt að um- ferð sé vísað á hjáleið með standandi merkjum en yfirborðs- merkingar vísa á gömlu leiðina. Í maí sl. gaf vegamálastjóri út orðsendingu þar sem verklag við mat á vinnustaðamerkingum er skilgreint. Með því fylgir sérstakur gátlisti. Þessi orðsending, gátlistinn og dæmi eru birt í opnu þessa tölublaðs. Þetta efni er líka birt á vef Vega- gerðarinnar, vegagerdin.is, undir „Framkvæmdir“. VAI Vinna í kanti. Lokuð akrein. Klifurrein. Klæðingar.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.