Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 22.05.2006, Page 1
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 15. tbl. 14. árg. nr. 436 22. maí 2006
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Gutenberg
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
(bréfsími 522 1109)
eða vai@vegag.is
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar.
Áskrift er endurgjaldslaus.
15. tbl. /06
Auglýsingar útboða Snæfellsnesvegur (54),
um Gríshólsá 06-014
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu u.þ.b.
1,5 km kafla Snæfellsnesvegar (54) um Gríshólsá auk
tengingar við Stykkishólmsveg (58) og Helgafellssveitar
veg (517). Í Gríshólsá verður byggt um 45 m langt stál
bogaræsi með steyptum sökklum.
Helstu magntölur eru:
Fylling og fláafleygar . . . . . . . . . . . . . 17.000 m3
Burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4.600 m3
Frágangur fláa og gamals vegar . . . . . 34.000 m2
Tvöföld klæðing . . . . . . . . . . . . . . . . . 6.300 m2
Steinsteypa . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 45 m3
Járnalögn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5.200 kg
Verki skal að fullu lokið fyrir 15. júlí 2007.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal
á Ísafirði, Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í
Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 22. maí
2006. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 6. júní 2006 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.
Seyðisfjarðarvegur (93),
um Miðhúsaá 06-003
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á
0,6 km kafla Seyðisfjarðarvegar (93) um Miðhúsaá.
Um er að ræða niðurrif núverandi brúar og byggingu
62 m langs stálplöturæsis í hennar stað.
Helstu magntölur eru:
Fylling . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 35.700 m3
Fláafleygar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 7.500 m3
Neðra burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . 3.700 m3
Efra burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.000 m3
Tvöföld klæðing . . . . . . . . . . . . . . . . . 4.500 m2
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2006.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsa
vegi 1 á Akureyri, Búðareyri 1113 á Reyðarfirði og
Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánu
deginum 22. maí 2006. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 6. júní 2006 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.
Hringvegur (1), Gilsá. Vegagerðin kynnir væntanlega vegagerð um Arnórsstaðamúla. Sjá bls. 4-5.