Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.02.2007, Síða 1
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 5. tbl. 15. árg. nr. 459 19. febrúar 2007
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Gutenberg
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
(bréfsími 522 1109)
eða vai@vegag.is
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar.
Áskrift er endurgjaldslaus.
5. tbl. /07
Tröllatunguvegur (605),
Vestfjarðavegur - Djúpvegur 06-028
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð nýs Tröllatungu-
vegar (605). Verkið felst í gerð nýs vegar frá Vestfjarða-
vegi (60) í Geiradal, um Gautsdal, Tröllatunguheiði og
Arnkötludal að Djúpvegi (61) í Steingrímsfirði. Lengd
útboðskaflans er um 24,5 km.
Helstu magntölur eru:
Bergskering . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 350.000 m3
Skering í laus jarðlög . . . . . . . . . . . . . 480.000 m3
Fylling og fláafleygar . . . . . . . . . . . . . 780.000 m3
Neðra burðarlag. . . . . . . . . . . . . . . . . . 120.000 m3
Efra burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 40.000 m3
Klæðing . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 190.000 m2
Stálplöturæsi . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 170 m
Ræsalögn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.600 m
Víravegrið . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6.000 m
Frágangur fláa . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 570.000 m2
Verki skal að fullu lokið fyrir 1. september 2009.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal
á Ísafirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og
með þriðjudeginum 20. febrúar 2007. Verð útboðsgagna
er 8.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00
þriðjudaginn 20 mars 2007 og verða þau opnuð þar
kl. 14:15 þann dag.
Á Tröllatunguheiði. Horft er vestur yfir Breiðafjörð. Í þessu
blaði er auglýst útboð vegar á milli Vestfjarðarvegar í
Austur-Barðarstrandarsýslu og Djúpvegar í Strandasýslu.
Vegurinn kemur í stað lélegs fjallvegar sem nú er á þessari
leið og mun stytta vegalengdir frá Ísafirði og Hólmavík til
Reykjavíkur verulega að vetri til. Nánar verður fjallað um
þessa framkvæmd í næsta tölublaði Framkvæmdafrétta.
Yfirlagnir á Norðvestursvæði
2007-2008, vesturhluti 07-020
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæð-
ingu á vesturhluta Norðvestursvæðis, árin 2007 og 2008.
Helstu magntölur:
Einföld klæðing:
Árið 2007 . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 500.000 m2
Árið 2008. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 500.000 m2
Verklok eru 1. september hvort ár.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgar-
braut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (mót-
taka) frá og með mánudeginum 19. febrúar 2007. Verð
útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00
þriðjudaginn 6. mars 2007 og verða þau opnuð þar kl.
14:15 þann dag.
Auglýsingar útboða