Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.02.2007, Qupperneq 4
4
urárdalsleið breytir vegakerfinu í Vopnafirði mikið en liggur
um land sem er nokkuð auðvelt til vegagerðar. Hún raskar
talsverðu votlendi sem telst til vistkerfa sem ber að vernda en
vegna mótvægisaðgerða sem fela í sér endurheimt votlendis
verða áhrif á gróður óveruleg.
Vesturárdalsleið um Búastaði getur haft talsverð neikvæð
áhrif á landnotkun, landbúnað, laxveiði og landslag en hefur
samt minnst neikvæð umhverfisáhrif af þeim leiðum sem eru
skoðaðar í skýrslunni.
Niðurstaða matsvinnunnar er að framkvæmdir á Norðaustur-
vegi til Vopnafjarðar muni bæði hafa talsverð jákvæð og
neikvæð áhrif á umhverfið. Þær munu hafa jákvæð áhrif á
samfélag en neikvæð áhrif bæði á samfélag og náttúrufar.
Vegagerðin telur að jákvæð áhrif framkvæmdarinnar á sam-
félag, samgöngur og umferðaröryggi séu það mikil að hægt
sé að sættast á þau neikvæðu áhrif sem framkvæmdin hefur í
för með sér.
Til að neikvæð áhrif framkvæmdarinnar verði sem minnst
verða vegurinn, vegtengingar, námusvæði, áningarstaðir og út-
skot aðlöguð landi eins vel og hægt er, reynt að raska ósnertu
landi sem minnst og gróðursvæði og votlendi endurheimt.
Haft verður samráð við ýmsa aðila til að draga úr neikvæðum
áhrifum framkvæmdarinnar.
Vesturárdalsleið við Skógalón.
Hringvegur (1)
Norðausturvegur (85)
núverandi vegur
Vesturárdalsleið