Aldan - 20.10.2015, Síða 1
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
Eignaumsjón er óháður fagaðili þegar kemur að rekstri húsfélaga og rekstrarfélaga – og því frábær lausn fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis. Í okkar umsjá
ertu í góðum höndum - við sjáum um fjármálin, fundina, undirbúning framkvæmda og viðhalds og annarra þátta sem þarf að leysa.
Er húsfélagið í lausu lofti ?
»
Vantar óháðan aðila til að annast málefni húsfélagsins eða rekstrarfélagsins ?
Eignaumsjón hf . – Suður landsbraut 30 – Sími 585 4800 – afgreids la@eignaumsjon. is – www.eignaumsjon. is
Hitaveitu &
gasskápar
Blikksmiðjan Vík ehf / Skemmuvegur 42, 200 Kópavogi / kt. 4309850279 / Sími: 557-1555 / blikkvik@blikkvik.is
fyrir sumarbústaði og heimili
Gæði • Þjónusta • Öryggi
Hitaveituskápar
Við sérsmíðum og eigum líka hitaveitukassa á lager.
Einnig smíðum við mikið af kössum á kerrur, bíla ofl.
Fáanlegir í mörgum litum.
Gasskápar
Eigum gasskápa á lager. Læsanlegir
og smíðaðir úr áli.
Láttu ekki stela af þér kútunum!
20. Október 2015
7. tölublað
2. árgangurALDAN
F R É T T A B L A Ð U M S J Á V A R Ú T V E G
Aðeins 24% allra
fisktegunda nýttar
forsvaranlega
Samkvæmt alþjóðlegum rannsóknum
er aðeins um 24% allra fisktegunda í
höfunum nýttir á forsvaranlegan hátt.
Um 7% allra fisktegunda hefur hreinlega
verið útrýmt en um 1% þeirra sem til
þessa hafa verið ofveiddur eru nú aftur í
vexti, þó kannski sé hann ekki mikill. Um
17% tegundanna eru ofveiddir en 52%
en eru fullnýttir að mati vísindamanna.
Aðeins 20% allra fisktegunda eru nýttir
í hófi en 3% eru alls ekki nýttir, hvað
svo sem veldur. Það eru líklega tegundir
sem eru eitraðar eða ekki ætar af öðrum
ástæðum, annars væri mannskepnan ör-
ugglega byrjuð að veiða þessar tegundir.
Hungur í heiminum stafar að mestu leiti
ójafnri skiptingu. Of þungir jarðarbúar
eru komnir vel yfir milljarð talsins og eru
þannig orðnir fleiri en þær 800 milljónir
sem þjást af stöðugri vannæringu. Hjá mat-
vælastofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO,
er treyst á að líftæknin muni auka afköst
í landbúnaði, t.d. með þróun plantna sem
séu ónæmar fyrir skordýraplágum eða þoli
þurran eða jafnvel saltan jarðveg. Á árunum
1950 til 2004 jókst framleiðsla fiskafurða,
bæði í sjó, vötnum og í fiskeldi, um 20 milj-
ónir tonna á ári upp í 130 milljónir tonna.
En fiskveiðar eru almennt ekki taldar
lengur sjálfbærar og því gæti í versta falli
farið svo að sjávarútvegur heyrði sögunni
til eftir nokkur ár, nema fiskistofnarnir fái
tækifæri til að endurnýja sig. Ekki virðist
vera áhugi víða um heim að draga úr fisk-
veiðum eða gera þær sjálfbærar, það sýnir
m.a. sókn sjóræningjatogara í karfann á
Reykjaneshrygg á hverju ári, en svo hafa
aðrir tröllatrú á auknu fiskeldi. Vonandi
eru þeir sannspáir. Þróun fiskeldismála
hérlendis á sunnanverðum Vestfjörðum
gefur aukna trú.
kræklingur er herramannsmatur, en vanda þarf auðvitað vinnslu hans á disk neyt-
andans eins og hér er gert af hálfu nemenda í Mk. Hvernig nýting á kræklingi er skal
ósagt látið.
Nýtt uppsjávarveiðiskip, Venus, kom til
Vopnafjarðar fyrr á þessu ári. endurnýjun
fiskiskipaflotans heldur áfram, m.a. í tyrk-
landi.
Framhald á bls. 16