Aldan - 20.10.2015, Qupperneq 2
20. Október 2015ALDAN2
World Seafood
Congress 2017
- verður haldin á Íslandi
World Seafood Congress (WSC) 2015
lauk fyrir skömmu en ráðstefnan
var haldin að þessu sinni í Grimsby
á Englandi. Í lok hverrar ráðstefnu
er tilkynnt hverjir halda þá næstu
og tilkynnt var í fundarlok að WSC
2017 verði haldin í Reykjavík 10. – 14.
september 2017.
Meginþema ráðstefnunnar 2017 er
vöxtur í bláa lífhagkerfinu en bláa líf-
hagkerfið er tilvísun í mikilvægi hafs-
ins þar sem veruleg tækifæri liggja til
vaxtar, nýsköpunar, rannsókna, mark-
aðssetningar með matvælaöryggi,
fæðuöryggi, sjálfbærni og matarheil-
indi að leiðarljósi.
Afurðir úr hafinu eru með ýmsum hætti en líklega veiðist lítið eða ekkert af
þessum kræsingum hér við land.
Aflahlutdeild 1. september 2015:
Tíu stærstu útgerðirnar með
50,45% aflahlutdeildarinnar
Nokkrar breytingar eru á hvaða fyrir-
tæki eru í efstu sætunum frá því sams
konar upplýsingar voru birtar í febr-
úar sl. í kjölfar úthlutunar á aflamarki
í deilistofnum, en það á sér stað við
upphaf almanaksárs. Þannig stekkur
Þorbjörn hf. úr sjötta í þriðja sæti og
FISK-Seafood ehf. úr áttunda sæti
í það fjórða. Eins og undanfarin ár
eru HB Grandi og Samherji í tveimur
efstu sætunum. HB Grandi er nú með
um 10,9% af úthlutuðu aflamarki en
Samherji er með 6,2%. Samanlagt
ráða þessi tvö stærstu útgerðarfyrir-
tæki landsins yfir 17,1% af aflaheim-
ildunum samanborðið við 18,8% í
upphafi þessa árs. Líkleg skýring á
þessum breytingum liggur í því að
við upphaf fiskveiðiársins var ekki
úthlutað aflamarki í loðnu og litlu
í öðrum uppsjávartegundum. Þær
vega því minna en oft áður í heildar-
magni þorskígilda sem úthlutað var
og fyrir vikið breytist hlutur út-
gerða innbyrðis vegna mismunandi
tegundasamsetningar á hlutdeildum.
Samkvæmt lögum um stjórn fisk-
veiða má heildaraflahlutdeild fiskiskipa
í eigu einstakra eða tengdra aðila ekki
fara yfir 12% af samanlögðu heildar-
verðmæti aflahlutdeilda allra tegunda.
Þá má aflahlutdeild í þorski ekki fara
yfir 12%. Í ýsu, ufsa, grálúðu, steinbít,
síld og loðnu má hún ekki fara yfir 20%
og í karfa ekki yfir 35%. Ekkert fyrir-
tæki fer yfir þessi mörk að þessu sinni.
Heildarkrókaaflahlutdeild einstakra
eða tengdra aðila má ekki fara yfir 5%
af samanlögðu heildarverðmæti króka-
aflahlutdeilda. Þá má krókaaflahlut-
deild fiskiskipa í eigu einstakra eða
tengdra aðila ekki fara yfir 4% í þorski
og 5% í ýsu.
Tíu stærstu útgerðirnar 1. september
sl. , við upphaf fiskveiðiárs, og hlutfall
þeirra í heildarþorskígildistonna kvóta:
1. HB Grandi 10,86
2. Samherji 6,18
3. Þorbjörn 5,11
4. Fisk-Seafood 4,51
5. Síldarvinnslan 4,48
6. Vinnslustöðin 4,30
7. Brim 3,83
8. Vísir 3,83
9. Rammi 3,69
10. Skinney-Þinganes 3,66
Tíu stærstu útgerðirnar eru með
50,45% alls kvóta en 23 útgerðir eru
með 1% eða meira af heildarkvótanum.
Í byrjun árs, 9. febrúar sl. , var staða
efstu útgerða þessi:
1. HB-Grandi 12,2
2. Samherji 6,6
3. Síldarvinnslan 5,9
4. Vinnslustöðin 4,7
5. Ísfélag Vestmanneyja 4,7
6. Þorbjörn 4,5
7. Skinney-Þinganes 4,3
8. Fisk-Seafood 4,0
9. Brim 3,7
10. Rammi 3,4
Tíu stærstu útgerðirnar voru þá með
54,0% heildarkvótans.
Þorbjörn hf. í Grindavík er með 5,11%
aflahlutdeildarinnar og í 3. sæti.
Landað úr einu skipa útgerðarinnar,
Hrafni Sveinbjarnarsyni Gk í Grinda-
víkurhöfn.
Fiskimenn hvattir til að
kanna rétt sinn til slysa
og veikindabóta
Nokkuð hefur borið á því að sjó-
menn séu ekki nógu upplýstir um
slysa og veikindarétt sinn. Til dæmis
þegar slys verði um borð verði menn
að ganga að því vísu að allt um slysið
sé skráð í dagbók skipsins. Það auð-
veldar alla aðkomu að vinnslu máls-
ins og tryggir rétt manna. Ávallt
skulu menn tilkynna yfirmönnum
skipsins um veikindi. Sjómenn eru
hvatir að kanna réttindi sín vegna
veikinda, slysa og uppsagnar, einnig
réttindi í sjúkra og styrktarsjóð
stéttarfélagsins.
Sjálfvirk beina- og bita-
skurðarvél frá Völku um
borð í Sólberg ÓF
- fyrsta vatnskurðarvélin um borð í íslenskt skip
Útgerðarfyrirtækið Rammi hf. á
Siglufirði og Valka ehf. í Kópavogi
gerðu fyrr á árinu með sér samning
um kaup Ramma á vatnskurðarvél
fyrir sjálfvirkan beingarðs- og bita-
skurð, sem sett verður um borð í nýtt
skip Ramma. Skipið, Sólberg ÓF, er
í smíðum í Tyrklandi og verður af-
hent í byrjun árs 2016. Umsjón með
verkefninu hefur Optimar Stette AS í
Noregi. Þetta verður í fyrsta sinn sem
vatnskurðarvél fer um borð í íslenskt
skip. Skurðarvélin verður afhent með
tvöfaldri braut og mun hún auka af-
köst vinnslunnar til muna og gera
kleift að framleiða beinlausar afurðir
um borð.
Afköst miðað við 3kg slægðan þorsk
eru u.þ.b. 4 tonn af hráefni, eða 2 tonn
af afurðum á klukkustund.
„Við sjáum mikil tækifæri í þessari
nýju tækni og teljum okkur með
þessu vera að taka mikilvægt skref
inn í framtíðina,“ segir Ólafur Mart-
einsson, framkvæmdastjóri Ramma.
„Vinnslutækni um borð hefur ekki
tekið miklum breytingum síðustu ár
en nú er lag og við viljum vera í fara-
broddi með okkar skip. “
ólafur Marteinsson framkvæmdastjóri ramma hf., terje Hareide frá Optimar
Stette og Helgi Hjálmarsson framkvæmdastjóri Völku ehf. fagna áfanganum
á sjávarútvegssýningunni í brussel sl. vor. taldir frá vinstri.
Sólberg óF-1 verður stolt íbúa sveitarfélagsins Fjallabyggðar, sem Siglufjörður
og ólafsfjörður mynda, þegar það kemur til landsins á næsta ári.
Skurðarvélin.
Meistaralega vel skorið flak.