Aldan - 20.10.2015, Qupperneq 6
20. Október 2015ALDAN6
VÖR, sjávarrannsóknarsetur í Ólafsvík:
Meginmarkmiðið að rannsaka lífríki Breiðafjarðar
VÖR, sjávarrannsóknarsetur við
Breiðafjörð með aðsetur í Ólafsvík,
er sjálfseignarstofnun og stóðu 22 að-
ilar að baki stofnuninni. Eitt megin-
markmið stofnunarinnar er að rann-
saka lífríki Breiðafjarðar með það að
leiðarljósi að auka þekkingu okkar á
vistkerfinu og nýtingamöguleikum
auðlinda svæðisins. Rannsóknir
Varar tengjast athugunum á fæðuvef
Breiðafjarðar og samspili frumfram-
leiðslu og efri fæðuþrepa. Vör hóf
starfsemi sína árið 2006 og í árs-
byrjun 2008 flutti starfsemin í eigið
húsnæði að Norðurtanga, Ólafsvík.
Rannsóknaraðstaðan er rúmgóð og
nýtist vel til rannsókna bæði fyrir
starfsfólk Varar sem og gestkomandi
rannsóknarmenn. Forstöðumaður er
Helga Guðjónsdóttir. Frá upphafi til
ársins 2012 var Erla Björk Örnólfs-
dóttir forstöðumaður, en hún er nú
rektor háskólans á Hólum.
Stofnendur Varar eru Brim hf.
, Reykjavík; Fiskiðjan Bylgja hf. ,
Snæfellsbæ; Fiskmarkaður Íslands,
Snæfellsbæ; Grundarfjarðarbær;
Guðmundur Runólfsson hf. , Grundar-
firði; Hafnarsjóður Snæfellsbæjar; HÍ
- Stofnun Fræðisetra, Reykjavík; Hrað-
frystihús Hellissands; K. G. Fiskverkun,
Snæfellsbæ; Kristinn Friðþjófsson ehf.
, Snæfellsbæ; L. Í. Ú. , Reykjavík (nú
SFS); Landssamband smábátaeigenda,
Reykjavík; Nesver ehf. , Snæfellsbæ;
Oddi hf. , Patreksfirði; Sjávariðjan ehf.
, Snæfellsbæ; Smábátafélagið Snæfell,
Stykkishólmi; Soffanías Cecilsson hf. ,
Grundarfirði; Sparisjóður Ólafsvíkur;
Sverrisútgerðin ehf. , Snæfellsbæ; Útnes
ehf. , Snæfellsbæ; Útvegsmannafélag
Snæfellsness, Grundarfirði og Valafell
ehf. , Snæfellsbæ.
Mörg rannsóknarverkefni
Helstu rannsóknarverkefni Varar
hafa til þessa verið:
• Marflær sem áviti á umhverfisáhrif
síldargengdar á grunnsævi við Ís-
land. Samstarfsverkefni Varar og
Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á
Snæfellsnesi.
• Mæling á magni eiturþörunga: Sér-
virk ljómun eiturþörunga með þátta-
pörun á flúrmerktum þreifurum.
• Þróun aðferða við mat á stofnstærð
botndýra með hjálp sjálfvirks kafbáts
(AUV). Vör er samstarfsaðili í verk-
efninu sem leitt er af Háskóla Íslands
og styrkt af Rannís 2011-2013.
• Kræklingur og hörpudiskur: Grein-
ing fæðugerða með erfðagreiningu
(metagenomics).
• Verkefnasjóður Sjávarútvegsins,
Samkeppnisdeild 2010-2012
• Kræklingur og hörpudiskur: Grein-
ing fæðugerða með erfðagreiningu
(metagenomics).
• Tilraunaveiðar á undirstöðu-
tegundum í fæðuvef Breiðafjarðar.
Samstarfsverkefni Varar og Háskóla-
seturs Snæfellsness.
• Dýrasvif í Breiðafirði: Fæðunám og
frjósemi átu.
• Fjölbreytileiki örvera á Íslandsmiðum
og áhrif þeirra á umhverfi og fæð-
uframboð nytjalífvera. Vör er sam-
starfsaðili í verkefni sem leitt er af
Matís ohf.
• Greining dýrasvifs með hljóðmæl-
ingum. Samstarfsverkefni Varar og
Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla
Íslands á Norðausturlandi, Húsavík.
• Sjálfbær nýting og aukin arðsemi
veiða og vinnslu beitukóngs í Breiða-
firði. Verkefni unnið í samvinnu við
Sægarp ehf. Grundarfirði.
• Konksneglens (Buccinum undatum)
biologi og udbredelse i farvandet ved
Island og Færøerne. Samvinna við
Sægarp ehf. Grundarfirði, Fiskirann-
sóknarstovuna Færeyjum og P/F O.
C. Joensen, Færeyjum.
• Útbreiðsla og þéttleiki beitukóngs
(Buccinum undatum) í Breiðafirði
og Faxaflóa: Leit nýrra veiðisvæða.
Samstarfsverkefni með Sægarpi ehf.
Grundarfirði.
• Vöktun umhverfisþátta og framvindu
svifþörunga í Breiðafirði. Rannsókn
unnin í samvinnu við Sólveigu Ólafs-
dóttur og Agnesi Eydal, Hafrann-
sóknarstofnuninni.
• Rannsóknir og kynning á nátt-
úrufræðum. Samstarf Varar, útibús
Hafrannsóknarstofnunarinnar í
Ólafsvík, Þjóðgarðsins Snæfells-
jökuls, Náttúrustofu Vesturlands
og Háskólaseturs Snæfellsness með
stuðningi frá Vaxtarsamningi Vest-
urlands.
• Ljóð í náttúru. Samstarfsverkefni
Varar, Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls
og Skógræktar ríkisins, Hreðavatni.
• Fegurð fjörunnar og fjölbreytileiki.
Samstarfsverkefni Varar og Þjóð-
garðsins Snæfellsjökuls.
• Fjörulallar í fræðsluferð, jarð-, haf-
og líffræði á Djúpalónssandi. Sam-
starfsverkefni Varar og Þjóðgarðsins
Snæfellsjökuls.
Vör, sjávarrannsóknarsetur hlaut
nýlega einnar milljón króna styrk frá
umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
úr Veiðikortasjóði v egna verkefnis-
ins, Rannsókn á hlutfalli ýsu-, þorsks
og makrílmaga sem innihalda síli í
Breiðafirði árið 2015. Í sama skipti og
úr sama sjóði hlaut Rannsóknarsetur
Háskóla Íslands á Snæfellsnesi 820
þúsund króna styrk vegna verkefnis
sem nefnist Stofnvistfræði og stofn-
stærð dílaskarfs á Íslandi.
Raufarhöfn
og Byggða-
stofnun náðu
samkomulagi
Byggðastofnun og Raufarhöfn hafa
undirritað áframhaldandi sam-
starfssamning undir yfirskriftinni
Raufarhöfn og framtíðin. Samn-
ingurinn er fyrir tilstilli verkefn-
isins Brothættar byggðir, en Rauf-
arhöfn og framtíðin er hluti þess
verkefnis og hefur það staðið yfir
undanfarin misseri. Verkefnið hefur
verið framlengt til loka ársins 2017.
Því verður skipt upp í fjóra áfanga
og Raufarhöfn sigli nú inn í þriðja
áfanga að lokinni vinnu við að skýra
framtíðarsýn og markmiðssetningu
fyrir einstök verkefni. Gert er ráð
fyrir að haldinn verði íbúafundur á
Raufarhöfn þar sem framtíð verk-
efnisins verður kynnt fyrir íbúum og
þeim gefinn kostur á að koma sjón-
armiðum sínum og hugmyndum á
framfæri.
Verður það að hluta til
vinnufundur þar sem þátttakendur
vinna í málefnahópum eins og þeir
urðu til á íbúaþingi í janúar 2013.
Grásleppuveiðar eru mikilvægar
fyrir atvinnulífið á raufarhöfn á
vorin. Stuðningur byggðastofn-
unar er því afar mikilvægur fyrir
íbúa staðarins.
rannsóknir hafa verið stundaðar á kræklingi. Hann má matreiða með ýmsum hætti.
Rau
ðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Frystikistur á
tilboðsverði
20% afsláttur
Tilboð gildir meðan birgðir
endast.
FR205 190L B74xD70xH95
1 karfa, læsing á loki
hjól undir kistu
FR305 278L B98xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR405 385L B128xD70xH95
2 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR505 463L B150xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
FR605 567L B180xD70xH95
3 körfur, læsing á loki
hjól undir kistu
Verð áður kr. 94.359
Verð nú kr. 75.488 m. vsk.
Verð áður kr. 108.534
Verð nú kr. 86.827 m. vsk.
Verð áður kr. 117.173
Verð nú kr. 93.738 m. vsk.
Verð áður kr. 131.820
Verð nú kr. 105.456 m. vsk.
Verð áður kr. 161.518
Verð nú kr. 129.214 m. vsk.