Aldan - 20.10.2015, Qupperneq 12
Fengsælum sjómönnum kann að þykja
freistandi að hlaða bát sinn út í hið óendanlega.
Það getur hins vegar skapað mikla hættu þar
sem ofhleðsla getur leitt til alvarlegra slysa.
Gætum að öryggi okkar og siglum örugg í höfn.
ERTU
AFLAKLÓ?
20. Október 2015ALDAN12
Nýr björgunarbátur frá Rafnar
afhentur HSSK í Kópavogi
Tímamótadagur var fyrir skömmu
hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi,
HSSK, en þá fékk sveitin afhentan
nýjan bát sem er hannaður og
smíðaður af bátaframleiðandanum
Rafnar í Kópavogi. Báturinn er yf-
irbyggður sem gerir hann úthalds-
meiri í verkefnum, hlífir mann-
skapnum fyrir veðri og vindum,
eykur til muna öryggi björgunar-
sveitarfólks og ræður við verra sjó-
veður í ófyrirséðum björgunarver-
kefnum. Sæti eru fyrir sex manns
og er hægt að koma fyrir tveimur
sjúkrabörum í honum.
Báturinn mun bera nafnið Stefnir
eins og forveri hans og mun örugglega
reynast HSSK vel.
Landhelgisgæslan fékk í sumar
afhentan nýjan strandgæslubát frá
Rafnar. Forstjóri gæslunnar sagði
við það tækifæri bátinn hafa mikla
þýðingu og geri hana meðal annars nú
betur í stakk búna til að komast hratt
á slysavettvang. Báturinn var í þróun í
samvinnu við Landhelgisgæsluna frá
árinu 2011 en hann byggir á algjörlega
nýrri hönnun á þessari tegund báta.
Hann er sérsmíðaður og sérstaklega
hannaður eftir þörfum gæslunnar
af kipasmíðastöðinni Rafnar, en
fyrirtækið er hugarfóstur Össurar
Kristinssonar, stofnanda Össurar hf.
Báturinn er á plani þegar lagt er af
stað. Það er kjölur undir þeim sem
er symetrískur og þeir mynda enga
bógöldu heldur mynda þeir þrýsting
í vatninu, sem að þegar kemur aftur
fyrir miðju, er tekin til baka. Hug-
myndin kom til Össurar fyrir 25 árum
síðan. og síðan byrjaði ég að vinna
í þessu fyrir 10 árum síðan. „segir
Össur. Þetta íslenska hugvit er að skila
sér í gríðarlega góðum eiginleikum. Í
raun er þetta allt annað og mun betra
en áður hefur þekkst.
Samskip styrkir hestamennsku í landinu:
Reiðhöll og keppnisvöllur
Spretts nefnast Samskipa-
höllin og Samskipavöllurinn
Hestamannafélagið Sprettur og Sam-
skip hafa undirritað nýjan samstarfs-
samning sem felur í sér að Samskip
verða aðalstuðningsaðili félagsins
næstu sjö árin. Samningurinn felur
meðal annars í sér að reiðhöll Spretts
verður hér eftir nefnd Samskipahöllin
og keppnisreiðvöllur félagsins utan-
húss Samskipavöllurinn. Samskip
hafa um nokkurt skeið látið til sín
taka í íslenskri hestamennsku og um
árabil verið einn aðalstuðningsaðili
Landsmóts hestamanna. Pálmar Óli
Magnússon, forstjóri Samskipa segir
það því vera rökrétt skref að ganga
til samstarfs við Sprett, sem er með
afar kröftuga starfsemi og frábæra
aðstöðu sem Samskip nú tengjast.
„Það er okkur mikið ánægjuefni að
gerast aðalstuðningsaðili Spretts og við
tjöldum ekki til einnar nætur heldur
gerum samning til loka árs 2021.
Við hlökkum til samstarfsins, óskum
Spretti til hamingju með þessa glæsi-
legu aðstöðu og metnaðarfull áform.
Við hjá Samskipum þekkjum vel sams-
konar baráttu og vitum að hér er valinn
maður í hverju rúmi, frábærir hestar
og mikill metnaður, „segir Pálmar Óli.
Hermann Vilmundarson, varafor-
maður Spretts, segir tíðindin ánægju-
leg. „Sprettur er það hestamannafélag
sem vex hvað hraðast hér á landi og
eftir stofnun árið 2012 þegar Gustur og
Andvari sameinuðust, hefur ekkert lát
verið á gróskunni. Metnaðurinn hér er
mikill og þessi samningur undirstrikar
að Sprettur er á réttri leið með á annað
þúsund félagsmenn og gríðarlega öfl-
ugan samstarfsaðila í Samskipum,“
segir Hermann. Það voru Hermann
Vilmundarson, varaformaður Spretts
og Pálmar Óli Magnússon, forstjóri
Samskipa sem undirrituðu samninginn
í Samskipahöllinni á Kjóavöllum.
Frá Íslandsmótinu 2015 á kjóavöllum. Það eru ekki síst börn og unglingar sem
njóta góðs af samningnum.
Nýi báturinn kemur að góðum notum, enda traustbyggður og hraðskreiður.