Reykjanes - 03.12.2015, Page 2
2 3. Desember 2015
REYKJANES 17. TBL. 5. ÁRGANGUR 2015
ÚTGEFANDI: Pressan ehf. Kringlunni 4-6, 103 Reykjavík. Björn Ingi Hrafnsson, netfang: bjorningi@pressan.
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta.ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið
Prentun: Landsprent. Upplag: 10.000 eintök. Dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa PDF: www. fotspor.is
REYKJANES ER DREIFT Í 10.000 EINTÖKUM ÓKEYPIS Í ALLAR ÍBÚÐIR Á REYKJANESI.
Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja. Seg ið ykk-
ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn. Vin sam leg ast send ið
okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða hring ið í síma 847 2779.
VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA?
Í gegnum árin hefur samvinna og gott samstarf sveitarfélaganna á Suðurnesjum skilað samfélaginu mörgum stórum og smáum framfara-málum.
Sveitarstjórnir á Suðurnesjum stóðu saman að uppbyggingu Sjúkrahúss,Hita-
veitu Suðurnesja,Fjölbrautarskóla Suðurnesja og uppbyggingu Dvalarheimilis
aldraðra á Suðurnesjum. Hér eru aðeins fá dæmi nefnd um góða samstöðu,sem
leiddu til framfara. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur nú um 40 ára
skeið staðið vörð gagnvart ríkisvaldinu um hagsmuni svæðisins. Þetta hefur
átt sér stað í góðu samstarfi fyrst 7 sveitarfélaga og síðan 5 sveitarfélaga eftir
sameiningu Keflavíkur,Njarðvíkur og Hafna.
Það er því slæm þróun að nú skuli stærsta sveitarfélagið,Reykjanesbær,boða
það að þeir ætli sér að slíta samstarfinu.Það er með öllu óskiljanlegt og órökrétt
að ætla að fórna þessu góða samstarfi. Hvað vinnst með því?
Nú halda forystumenn Reykjanesbæjar því fram að þeir greiði mun meira til
samstafsins en hin sveitarfélögin.Fyrirkomulagið hefur ætíð verið þannig að
greiðslur séu í samræmi við íbúafjölda. Einstaklilngur í Sandgerði,Garði,Vogum
og Grindavík borgar nákvæmlega sömu upphæð til samstarfsins og íbúi í
Reykjanesbæ.
Nú hlýtur það að vera góður kostur að sem flestir standi á bak við kostnað
sem hlýst af samstarfsverkefnum.
Fulltrúar stóra sveitarfélagsins,Reykjanesbær,hefur haldið því fram að litlu
sveitarfélögin fjögur ráði allt of miklu. Í 6.grein um samþykktir fyrir Samband
svitarfélaga stendur: “Samþykktir stjórnar skulu því aðeins ná fram að ganga
að þær séu studdar af aðilum sem bera meirihluta kostnaðar við rekstur
sambandsins og hafa meirihluta í stjórn þess.”
Það er því vandséð hvernig hægt er að þvinga Reykjanesbæ til að leggja í
kostnað gegn sínum vilja.
Það hefur komið fram að lítill vilji er til að sameinast í eitt sveitarfélag. Þrátt
fyrir þá staðreynd hlýtur það að vera hagstæðast og best fyrir íbúa svæðisins
að sveitarfélögin standi saman að framfaramálum okkar.
Frábært starf
Það var ánægjulegt að fylgjast með þjóðarsöfnun Stöðvar 2 til styrktar og
uppbyggingar Hlaðgerðarkots. Fram hefur komið að rúmlega 80 milljónir
söfnuðust. Einstaklingar og fyrirtæki voru svo sannarlega tilbúin að leggja
fram fjármuni í þetta góða strarf. Það hefur sýnt sig að starfið á Hlaðgerðarkoti
hefur bjargað mörgu fólki frá eiturlyfjanotkun,þannig að einstaklingarnar hafa
komist aftur út í þjóðfélagið og notið sín að nýju.
Góð staða í Garði
Fjárhagsáætlun 2016 fyrir Garðinn og fjárhagssatða sveitarfélagsins var nýlega
kynnt á íbúafundi. Fram kom að fjárhagslega staða er mjög sterk. Langtíma-
skuldir nema aðeins 63 milljónum. Framtíðarsjæoðurinn,sem myndaðist í
framhaldi af sölu í Hitaveitu Suðurnesja var notaður til að greiða upp skuldir
ásamt nbýjasta áfanga Gerðaskóla.
Á fyrri árum var sú ákvöðrun tekin að Garðurinn færi ekki þá leið að selja sínar
eignir og leigja svo,eins og mörg sveitarfélög gerðu og eru nú mjög skuldsett.
Garðurinn sagði sig á sínum úr Hafnasamlagi Suðurnesja. Skuldir Reykjanes-
hafnar nema rúmum 7 milljörðum. Hefði Garðurinn verið í samlaginu væru
skuldir Garðsins rúmar 700 milljónir.
Það er vissulega hægt að taka undir endurskoðanda KPMG að framtíð Garðsins
væri björt.
Sigurður Jónsson, ritstjóri
Leiðari
Samvinna
eða sameining
Reykjanes kemur næst út
fimmtudaginn 17. desember NÆSTA BLAÐ
Auka þjónustuna
með samþættingu
félags- og heil-
brigðisþjónustu
Öldungaráð Suðurnesja hélt að-alfund sinn 28. september s.l. Kosin var 7 manna stjórn og
einn til vara. Stjórnin er þannig skipuð:
Eyjólfur Eysteinsson, formaður,
Reykjanesbæ , Erna Marsibil Svein-
bjarnardóttir, varaformaður, Garði,
Jóngeir Hlinason, Vogum, gjaldkeri,
Sigurður Jónsson, Garði, ritari, Hanna
Björg Konráðsdóttir, Reykjanesbæ,
Jórunn Alda Guðmundsdóttir, Sand-
gerði, Magnús Magnússon, Sandgerði
og Sólveig Þórðardóttir, Reykjanesbæ.
Á þeim tíu mánuðum sem
Öldungaráðið hefur starfað hafa
verið haldnir 3 fundir ráðsins, auk
stofnfundar 29. nóvember 2014 og
6 stjórnarfundir. Stjórn Öldungaráðs
var boðið á aðalfund Dvalarheimila
aldraðra á Suðurnesjum og stjórnin
sótti aðalfund Samband sveitarfélaga
á Suðurnesjum.
Öldungaráð hefur kynnt sín mál á
fundum í bæjarráði Reykjanesbæjar,
Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins
Garðs og Sveitarfélagsins Voga. Þar
hafa stjórnarmenn og fulltrúar ráðsins
meðal annars, kynnt tillögur Öldunga-
ráðs um samþættingu félags- og heil-
brigðisþjónustu.
Fjölgun hjúkrunarrýma á
Suðurnesjum hefur ætíð verið til um-
ræðu á fundunum en mikil vöntun er
á þeim á Suðurnesjum. Núna nýlega
hefur ráðherra heilbrigðismála upplýst
að lang lengsta bið á landinu er eftir
hjúkrunarrýnum á Suðurnesjum eða
138 dagar, það samsvarar rúmlega
fjórum mánuðum.
Stjórn Öldungaráð hefur nýlega
haldið fundi með stjórn Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum og stjórn
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Niðurstaða fundanna var með ágætum
og var tekið undir með Öldungaráði
að unnið verði að samstöðu með
Sveitarfélögum á Suðurnesjum og
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja .
Unnið verði að samþættingu
með heimahjúkrunar og félagslegri
heimaþjónustu. Með samþættingu á
þjónustu vinnst margt: Betri nýting á
fjármagni og mannauð, einfaldar boð-
leiðir, möguleiki á að auka þjónustuna
og starfsfólki líður betur. Gerður verði
formlegur samningur milli Heilbrigð-
isstofnunar Suðurnesja og sveitarfé-
laganna á Suðurnesjum.
Einhugur var á fundunum að Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja hefði for-
göngu um myndun samstarfs milli
þeirra og sveitarstjórna Suðurnesja um
skipulag á samþættingu á þjónustu við
eldri borgara.
Eyjólfur Eysteinsson formaður
Öldungaráðs Suðurnesja
Basar á
Nesvöllum
Félag eldri borgara á Suðurnesjum hélt sinn árlega Basar á Nes-völlum síðasta föstudag. Margir
notuðu tækifærið til að koma og gera
góð kaup. Svo var flott að geta fengið
sér heitt súkkulaði og rjómapönnu-
kökur.
Aðventufundur á Kaffi DUUS
Félag eldri sjálfstæðismanna á Suðurnesjum, FES
minnir á að fundur Félags eldri sjálf-
stæðismenn á Suðurnesjum, FES
verður haldinn á Veitingahúsinu Kaffi
Duus, Duusgötu 10 í Reykjanesbæ
þriðjudaginn
8. desember 2015, kl. 12:00.
Húsið verður opnað kl. 11:30. Boðið
verður upp á súpu og kaffi gegn vægu
gjaldi, 1.000 krónur.
Gestir fundarins: Sr. Kjartan Jónsson
sóknarprestur og Ásmundur Friðriks-
son alþingismaður.