Reykjanes - 03.12.2015, Síða 4
4 3. Desember 2015
Áskorun til ráðherra
og alþingismanna
Sameiginleg áskorun landshluta-samtaka sveitarfélaga til ráð-herra og alþingismanna, dags. 9.
nóvember 2015. Landshlutasamtökin
skora á ráðherra og alþingismenn að
tryggja aukin framlög vegna þjónustu
við fatlað fólk, samninga um sókn-
aráætlun, samgöngumál, almennings-
samgöngur og ljósleiðaravæðingu.
Jólakort ADHD
ADHD samtökin selja jólakort fyrir þessi jól líkt og áður. Tvö
ný kort hafa nú verið gefin út og eru
bæði með myndum eftir Mæju - Maríu
Sif Daníelsdóttur.
Annars vegar er mynd sem ber
heitið „Herramaður í jólabúningi“
og hins vegar mynd sem heitir“Ein-
tóm gleði“.
Sex stykki eru í pakka, þrjú kort
með hvorri mynd og kostar pakkinn
kr. 1.800, -.
Allur ágóði til góðgerðarmála
Þegar Lionessuklúbbur Keflavíkur sest niður til að útbúa sælgæt-iskransana finnur maður að jólin
eru óðum að nálgast. Reykjanes leit við
einn daginn í nóvember þar sem þær
voru á fullu í gamla húsnæði Verkalýðs-
félagsins við Hafnargötu.
Þær sögðust hafa selt rúmlega 400
kransa í fyrra. Það eru fyrst og fremst
fyrirtæki og verslanir sem kaupa. Að
sjálfsögðu viljum við gjarnan einnig selja
einstaklingum. Þeir sem áhuga hafa geta
hringt í: 771 2722 (Áslaug) eða 895 1229
(Gunnþórunn)
Lionessurnar sögðust vilja koma á
framfæri sínu besta þakklæti fyrir frá-
bærar viðtökur á liðnum árum. Allur
ágóði rennur til góðgeramála hér á svæð-
inu. Samkaup flytur inn sælgætið fyrir
okkur og sýnir okkur mikinn velvilja.
Einnig bestu þakkir til allra, sem í
gegnum árin hafa lánað okkur húsnæði.
Lionessuklúbbur Keflavíkur hefur
verið starfandi í 24 ár.
Píratar í Reykjanesbæ
Félag Pírata í Reykjanesbæ var stofnað fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar 2014. Fyrst um sinn var allt
kapp lagt í framboðið en alls fékk
flokkurinn 173 atkvæði og sitja því
aðrir flokkar við stjórnvölinn í bæjar-
félaginu. Í júní 2015 tók ný stjórn við
félaginu og stefnir að því að blása lífi í
píratastarfið í Reykjanesbæ. Verkefnin
framundan eru margvísleg og mikil-
væg. Fyrst af öllu að kynna grunnsefnu
og önnur stefnumál Pírata fyrir bæj-
arbúum. Síðan að ræða við fólk um
hvaða stefnu skuli taka í bæjarmálum.
Stjórn Félags Pírata mun standa
fyrir ýmsum málfundum og við-
burðum í vetur til að kynna sér hvaða
áherslur fólkið í Reykjanesbæ vill hafa
á starfi félagsins. Í framhaldi af því
verður ákveðið hvort boðið verði fram
til næstu sveitarstjórnakosninga árið
2018.
Grunnstefna Pírata
Sem kjölfestu hafa Píratar tileinkað
sér grunnstefnu. Grunnstefnan fjallar
um gagnrýna hugsun og vel upplýstar
ákvarðanir, eflingu borgararéttinda,
friðhelgi einkalífsins, gagnsæi í stjórn-
sýslu, óskert tjáninga- og upplýsing-
frelsi auk þess sem hvatt er til beins
lýðræðis. Grunnstefnan er kjarninn
í starfi Pírata um allt land og byggja
önnur stefnumál ætíð á grunnstefn-
unni.
Af stefnumálum Pírata má nefna
hér nokkur, t.d. vilja Píratar að al-
menningur kjósi um innleiðingu
nýrrar stjórnarskrár sem stjórnlaga-
ráð fékk umboð til að semja árið
2012. Aðskilja þarf fjárfestinga- og
viðskiptabanka, hvetja til samvinnu-
félaga og sjálfseignastofnana og telja
að betrumbæta atvinnuumhverfi smá-
iðnaðar. Píratar vilja að efnahagurinn
þjóni þörfum samfélagsins.
Velferðarstefna Pírata felst í að
tryggja lágmarksframfærsluviðmið
og stefna að upptöku skilyrðislausra
borgaralauna þannig að borgarar
verði frjálsir til að velja sér lífsviður-
væri sem hentar hverjum og einum. Í
sjávarútvegsmálum skal stefna að því
að bæði aflaheimildir og veiddur afli
verði boðin upp á frjálsum markaði.
Einnig vilja Píratar að ákveðið hlutfall
skatta af rekstri og störfum fyrirtækja
skulu í renna beint til þess sveitafé-
lags þar sem starfsemi eða verslun
fer fram.
Alþingiskosningar 2017
Í ljósi ágæts fylgis í skoðana-
könnunum og einarðs ásetnings
Pírata um að koma á betri siðum í
stjórnsýslu og efnahag landsins er
stefnt að því að bjóða fram til alþing-
iskosninga í öllum kjördæmum árið
2017. Reykjanesbær er í Suðurkjör-
dæmi og er undirbúningur að fram-
boði í startholunum. Stofnað hefur
verið félag Pírata í Suðurkjördæmi
sem mun virka sem kjördæmisráð
og hafa umsjón með kosningaundir-
búningi.
Íbúakosningarnar
Íbúakosningar eins og þær sem nú
fara fram í Reykjanesbæ eru afar mik-
ilvægt skref í átt til beins lýðræðis á
Íslandi. Reyndar má færa rök fyrir því
að ákvæði um ráðgefandi íbúakosn-
ingu er í raun búið að veikja íbúalýð-
ræði til muna og sveitarstjórnir fá lítið
aðhald á milli sveitarstjórnakosninga.
Þrátt fyrir það er íbúakosningin mik-
ilvægt tól í beinu lýðræði og hvetja
Píratar alla bæjarbúa til að taka þátt
í þessari fyrstu rafrænu kosningu í
Reykjanesbæ.
Albert Sigurðsson
Ritari Pírata í Reykjanesbæ
Blómlegt félagslíf í Sandgerði
Mjög mikil þátttaka er í hinum ýmsu viðburðum sem boðið er upp á í Sandgerði.
Má þar nefna Stafgöngu og leikfimi sem Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir sér
um. Sá hópur sem nýtir sér þetta fer
stækkandi og gaman að sjá að aldurs-
hópurinn 67-69 er að koma sterkt inn.
Þarna iðkar því hópur sem er á tuttugu
ára aldursbili útiveru og hreyfingu.
Sandgerðisbær sér alfarið um kostnað
við þetta.
Í haust var sundleikfimi til reynslu
og vonandi sjá viðkomandi aðilar ,
bærinn og Arna Þórunn Björnsdóttir
sér fært að byrja aftur að vori. Sumba,
jóga, boccia, spilavist og fleira dregur
fólk á öllum aldri til sín. Miðhús og
félagsstarf aldraða standa líka alltaf
fyrir sínu. Ókeypis er fyrir 67 ára og
eldri sem og öryrkja í sund og tækjasal
í Íþróttamiðstöðinni.
Listatorg er öflugur hópur fagur-
kera á öllum aldri sem kemur saman
og föndrar, prjónar og býr til muni úr
leir ofl.
Sandgerðisbær kemur að þar með
kostun húsnæðis.
Sannarlega gott bæjarfélag sem við
búum í.
Margt fleira væri hægt að telja upp.
Ef fólki vantar nánari upplýsingar þá
er alltaf hægt að hringja í Rut Sigurðar-
dóttir hjá Sandgerðisbæ.
Með íþróttaföndurkveðju.
Silla E.