Reykjanes - 03.12.2015, Blaðsíða 9

Reykjanes - 03.12.2015, Blaðsíða 9
3. Desember 2015 9 Kvenfélag Keflavíkur bauð eldri borgurum Kvenfélag Keflavíkur hélt sitt árlega aðventukaffi fyrir eldri borgara síðsasta sunnudag í Kirkjulundi. Boðið var uppá kaffi með glæsilegu meðlæti. Skemmtiatrið voru flutt. Eldri borgurum er boðið á þessa aðventuhátíð og þurfa ekki að greiða neitt fyrir það. Kvenfélag Keflavíkur á skilið mikið lof fyrir þetta framtak. Páll Valur Björnsson þingmaður Björt Framtíð: Mikið óréttlæti og hreinlega forkastanlegt 1. Staða og kjör eldri borgara hafa að undanförnu verið mikið í um- ræðunni. Á Alþingi svaraði ráð- herra fyrirspurn frá Ernu Ind- riðadóttur,þar sem fram kom að 31028 eldri borgarar hafa lægri greiðslur mánaðarlega en 300 þús- und krónur. Þetta er 69,4% af öllum sem eldri eru en 67 ára. Fjármálaráðherra hefur gefið út að greiðslur frá Tryggingastofnun hækki um 9,4% um næstu áramót. Á vinnumarkaðnum eru samn- ingar afturvirkir frá 1.maí s.l. Kjaradómur hefur ákveðið að 9,3% hækkun til þingmanna,ráðherra og fleiri gildi frá 1.mars s.l. Það er mikið óréttlæti að eldri borgarar sitji ekki við sama borð og aðrir. Hvað vilt Þú ágæti þingmaður gera í málinu? Svar: Ég er alveg sammála að þetta er mikið óréttlæti og hreinlega forkast- anlegt að þetta skuli eiga sér stað. Á opnum fundi Öryrkjabandalagsins sem haldin var laugardaginn 21 nóvem- ber síðastliðin var samþykkt ályktun þar sem farið var fram á að lífeyrir al- mannatrygginga hækki afturvirkt um sömu krónutölu og lægstu laun hækk- uðu 1. maí sl. (31.000 kr. fyrir skatt). Lífeyrir almannatrygginga hækki um 15.000 kr. frá 1. maí 2016 (samhliða hækkun lágmarkslauna). Þá er einnig farið fram á að krónu-á-móti-krónu skerðing sérstakrar framfærsluppbótar verði afnumin hið fyrsta. Þetta vil ég að verði gert og á þetta bæði við um aldraða og öryrkja það er alveg ljóst að nú er lag að leiðrétta þær skerðingar sem þessir hópar urðu fyrir í kjölfar hrunsins. Ellefta ríkasta þjóð á að sjá sóma sinn í að tryggja þessum hópum mannsæmandi lífskjör. Geri fastlega ráð fyrir að lögð verði fram breytingar- tillaga af minnihluta fjárlaganefndar við fjáraukalög til þess að mæta þessum kröfum. 2. Fram hefur komið að meðal biðtími fólks eftir hjúkrunarrými í landinu er um 80 dagar. Á Suðurnesjum er meðal biðtími 138 dagar. Langur biðlisti er hér eftir hjúkrunarrými. Er þetta ásættanlegt ástand? Hvað vilt þú ágæti þingmaður gera í málinu? Svar: Nei þetta er ekki ásættanlegt ástand ekki frekar en í svo mörgu sem við- kemur málefnum eldri borgara. Á ferðum mínum um kjördæmið hefur ég fundið hvað það brennur heitt á fólki að leysa verði þann vanda sem vöntun á hjúkrunarrýmum er. Það hefur verið lengi ljóst að við Suðurnesjamenn höfum setið eftir í þessum málaflokki sem og mörgum fleiri. Um það hvað ég vilji gera og hvernig leysa megi þessi mál hef ég ekki önnur svör en þau að við þingmenn svæðisins verðum að leggja allt okkar á vogarskálar til að þoka málunm í rétta átt. Af tíu þing- mönnum í Suðurkjördæmi eru átta stjórnarþingmenn og ef ég á að vera hreinskilinn þá horfi ég mjög til þeirra hvað varðar að koma þessu í viðun- andi horf. Þeir hafa aðgang að fram- kvæmdavaldinu og ekki ætti að það að tefja fyrir að kjördæmið á tvo ráðherra. Ég get lofað því að við minnihluta þing- mennirnir í kjördæminu munum ekki liggja á liði okkar við að hjálpa til. Vilhjálmur Árnason alþingismaður Sjálfstæðisflokki: Eindreginn stuðnings- maður að gera betur Ég hef ekki haft tíma til að svara þessu nákvæmlega því þetta krefst töluverðar upplýsingaöfl- unar til að útskýra almennilega, en ég er hvorki í velferðar né fjárlaganefnd, en málið nær til þeirra. Ég vil samt segja að ég er eindreginn stuðningsmaður þess að gera betur við öryrkja og eldri borgara. Var ég því gríðarlega ánægður með að það hafi verið forgangsraðað í þeirra þágu í fyrstu fjárlögum þessarar ríkisstjórnar. Þar fóru tíu milljarðar í heilbrigð- iskerfið og þar af fjórir beint í að draga úr skerðingum á þennan hóp. Þá hef ég beðið spenntur eftir því að árangur komu úr þeim tveimur nefndum sem skipaðar voru undir forystu Péturs H. Blöndal. Annars vegar um kostnaðar- þáttöku í heilbrigðiskerfinu og endur- skoðun almannatrygginga. Bæðar þessar nefndir höfðu það að leiðar- ljósi að bæta haga aldraðra og öryrkja. Vænti ég þess að árangur þessara vinnu fari brátt að koma í ljós. Forsenda þess að mögulegt sé að gera betur við hópana tvo er að sjálf- sögðu ábyrgð í ríkisfjármálum og öflugt atvinnulíf sem skapar auknar tekjur í ríkissjóð. Þannig getur ríkis- sjóður staðið undir bættum kjörum þessa góða fólks. Varðandi hjúkrunarýmin þá eru þau mál algjörum forgangi hjá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra og hefur hann lýst því yfir að það sé á undan Landsspítlaanum í forgangsröðuninni. Það munu því verða breytingar á næst- unni í þessum málaflokki sem verða vonandi okkur suðurnesjamönnum til góðs. Karólina Paszkowska leikur á píanó. emilía sara Ingvadóttir leikur á klarinett. elmar Torsten sverrisson og björn Kristinn Jóhannsson leika á harmonikur Kvennakór suðurnesja flutti nokkur lög. salóme formaður Kvenfélags Keflavíkur. séra eva Valdimarsdóttir flutti hug- vekju.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.