Reykjanes - 03.12.2015, Page 10
10 3. Desember 2015
Hrekkjalómafélagið
-prakkarastrik og púðurkellingar
Hrekkjalómafélagið í Vest-mannaeyjum var einstakur félagsskapur og það á
heimsvísu. Þar létu menn ekkert
tækifæri ónotað til að koma hver
öðrum á óvart og sumum utan fé-
lagsins einnig.
Í þessari bráðskemmtilegu bók
rekur Ásmundur Friðriksson 20 ára
sögu Hrekkja-lómafélagsins; segir frá
hrekkjunum og undirbúningi þeirra,
viðbrögðunum og …afleiðing-unum
sem urðu stundum alvarlegri en
menn héldu í upphafi.
Einnig fá lesendur að kynnast
ýkjusögum og nokkrum hrekkja-
lómum sem geta verið til í öllum
sveitar- og bæjarfélagi á landinu.
HREKKJALÓMAR – PRAKKARA-
STRIK OG PÚÐURKELL-INGAR
kitlar svo sannarlega hláturtaugarnar.
Bók Ásmundar er meiriháttar
skemmtileg og allir sem hana lesa
eiga eftir að brosa breitt og skella
uppúr öðru hvoru. Bókin er prýdd
fjölda mynda frá sögu þessa merki-
lega félags. Þessi bók er ekki bara
fyrir Eyjamenn. Það munu allir hafa
virkilega ánægju að því að lesa hana.
Ómissandi bók fyrir alla, sem kunna
að meta léttleikann í lífinu.
Framtíðin björt í Garðinum
Mánudaginn 23. nóvem-ber s.l. hélt Bæjarstjórn Garðs íbúafund þar sem
fjárhagsáætlun ársins 2016 var kynnt
ásamt fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Fram kom hjá Magnúsi Stefánssyni,
bæjarstjóra og Oddi Jónssyni frá
KPMG að staða Garðsins er mjög
sterk fjárgaslega og framtíðin á því
að vera björt.
Einnig kynnti Jóhann Ísberg f.h.
Garðskaga ehf hugmyndir um upp-
byggingu á Garðskaga til að laða að
ferðamenn og gesti.
Ný bók:
Börnin elda sjálf
Það er gaman að elda með börn-unum. Það gerir lífið skemmti-legra og jafnvel auðveldara fyrir
foreldrana eins og í tilviki kaffikrakk-
ans og kökukrakkans. En stundum
getur verið erfitt að finna uppskriftir
sem börnum líkar við og mat sem þau
vilja borða.
Bókaútgáfan Salka hefur leyst málið
með bókinni Eldum sjálf, sem er að
koma út.
Eldum sjálf er matreiðslubók fyrir
börn með uppskriftum sem þau geta
spreytt sig á sjálf. Í bókinni Eldum
sjálf eru um 20 einfaldar uppskriftir
fyrir börn á aldrinum 4-10 ára. Við
val á uppskriftum var lögð áhersla á
að hafa fá hráefni og tækjum og tólum
var stillt í hóf.
Einfaldar en
góðar uppskriftir
Við val á uppskriftum í bókinni var
einfaldleikinn hafður að leiðarljósi svo
allir í fjölskyldunni geti átt ánægjulega
stund í eldhúsinu. Öll skrefin eru sýnd
myndrænt þannig að börn þurfa ekki
að kunna að lesa til að geta eldað þá
rétti sem eru í bókinni.
Eldum sjálf var gerð með mik-
illi hjálp frá 18 litlum kokkum sem
spreyttu sig á öllum uppskriftunum
fyrir framan ljósmyndara og tókst vel
til. Maturinn var eldaður frá grunni og
var hvert skref í undirbúningnum fest á
filmu. Með því að elda með Eldum sjálf
læra börn að fara eftir uppskriftum og
fylgja þeim skref fyrir skref.
Uppskriftirnar í bókinni saman-
standa af réttum sem hentugt er að
snæða eftir skóla, með kaffinu og í
kvöldmatinn. Þannig eru uppskrift-
irnar fjölbreyttar og hægt að nota
við mismunandi aðstæður. T.d. er
uppskrift að sígildum heimilismat,
plokkfiski sem er bæði hollur og góður
matur fyrir alla fjölskylduna. Einnig
er bakkelsi á borð við pönnukökur og
múffur í bókinni þannig að börnin
geta aðstoðað við undirbúning afmæli
og annarra kökuboða.
Uppskriftir í bókinni eru valdar
af Dögg Hjaltalín. Þorbjörg Helga
Ólafsdóttir setti bókina upp og að-
stoðaði við myndatökur. Birgir Ísleifur
Gunnarsson sá um myndatöku.