Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.11.2012, Blaðsíða 1
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 18. tbl. 20. árg. nr. 596 19. nóv. 2012
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Oddi
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
eða með tölvupósti til:
vai@vegagerdin.is
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka .
Útgáfa er óregluleg og nokkrar vikur geta liðið milli tölublaða.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur, fjölmiðlar og
áhugafólk. Áskrift er endurgjaldslaus.
18. tbl. /12
11. Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í Hörpu (Kaldalóni) 9. nóvember sl. Skráðir þátttakendur voru 186 og hlýddu þeir á
yfir 20 áhugaverða fyrirlestra um rannsóknarverkefni sem Vegagerðin hefur styrkt.
Auður Atladóttir, Philippe Crochet, Sveinbjörn Jónsson, Björn
Hróðmarsson
Vegagerðin hefur um nokkurt skeið
unnið að því að innleiða gæða-,
um hverfis- og öryggisstjórnunarkerfi.
Við þá uppbyggingu er horft til krafna
Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri
skrifar
Innleiðing
gæðastýringaráætlana
í alþjóðlegum stöðlum s.s. ISO 9001, ISO 14000 og OHSAS
öryggisstjórnunarstaðalsins. Kerfið er notað í hluta starf sem-
inn ar en enn vantar upp á hún sé eins og vera ber í öðrum
hlutum hennar.
Innleiðing gæðastjórnunar hjá stofnunum, verktökum og
ráðgjöfum á Íslandi hefur gengið hægt þrátt fyrir háleit
markmið. Vegagerðin hefur í gegnum tíðina verið í samstarfi
m.a. við aðra stóra verkkaupa, Samtök iðnaðarins og verktaka
við að koma gæðastjórnun á í þessum geira. Tilgangurinn með
þessari vinnu er að tryggja betri verk, að þau mannvirki sem
verða til standist þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. En ekki
síður til að skýra hlutverk þeirra sem að verkunum koma og
ábyrgðarsvið. Þess vegna höldum við ótrauð áfram í þessari
vinnu og viljum leggja okkar af mörkum til að þetta hljóti sem
best brautargengi.
Gagnrýni um ónóga og ósamstillta eftirfylgni hvað varðar
kröfur í útboðsgögnum varð til þess að sett var af stað
vinna til að bæta þar úr. Tilgangurinn með þessari vinnu
var meðal annars sá að gera kröfur útboðsgagna skýrari í