Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.11.2012, Blaðsíða 7
7
kom við vegagerðina norður úr Almannagjá, að töluvert
rask hefur orðið í gjánni vegna vegagerðar, en ekki er að sjá
að foss haftið, þar sem Öxará fellur úr Drekkingarhyl niður
flúðina undir brúna, hafi verið sprengt. Þörfin á slíku vegna
brúarsmíðinnar er heldur ekki ljós. Á teikningu fyrir steyptu
brúna 1912 er ekki getið um að þurfi að sprengja fyrir nokkru.
Í skrifum sínum um Almannagjá vitnar Björn Th. gjarnan til
ferðalanga fyrri tíma, en gerir það ekki í því sem hann segir
um Drekkingarhyl eða getur annarra heimilda. Þar virðist
gæta mikils misskilnings og er jafnframt að sjá að hann hafi
brugðið sér á bak skáldfákinum Pegasusi, sem hendir gjarnan
þá sem spá í listir. En að einu leyti má taka undir orð hans,
þar sem hann segir að núverandi brú sé „einhver ófegurst brú
sem getur.“
Mögulegar lagfæringar við Drekkingarhyl
Óhjákvæmilegt var að nokkurt rask yrði í og við Almannagjá
hafi menn viljað eiga þess kost að fara þar um og nota hana til
hátíðahalda eins og gert hefur verið þegar haldið hefur verið
uppá stórafmæli í sögu þjóðarinnar. Þegar aðgerðir fyrritíma
manna í vegagerð eru metnar nú er ekki að sjá að þeir hafi
farið offari við að koma vegi í gegnum gjána. Það sem helst
mætti setja út á er að meiri smekkvísi hefði þurft við breikkun
brúarinnar árið 1944 og við frágang fyllingarinnar sunnan
megin við Drekkingarhyl allt frá upphafi vegagerðar þar, en
líklegt er að bæði tíma- og fjárhagsramminn hafi verið þröngur.
Í ljósi þess, sem að ofan greinir, að fosshaftið hafi ekki verið
skemmt heldur aðeins að hylurinn hafi verið „hálffylltur af
grjóti“ eins og Björn Þorsteinsson sagnfræðingur segir ætti
að vera lítið mál að bæta úr því með því einfaldlega að moka
upp úr honum. Vegurinn á hylbakkanum væri þá hafður sem
mjóstur og hlaðinn steinum sem brattastur, svo nálægð við
hyl inn yrði sem mest hjá þeim sem ættu leið þarna um og yfir
brúna. Steinsteypubrúin, sem nú er þar, er ekkert augnayndi
og staðnum ekki samboðin. Best væri að þarna yrði byggð ný
brú, sem tæki litlar rútur svona til að mæta undantekningar
til fellum, en væri annars aðeins miðað við umferð gangandi
fólks. Breiddin gæti verið svipuð og á núverandi brú (6,5 m)
og ekki rétt að þrengja umtalsvert þar að, frekar en nú er
vegna hugsanlegra hátíðarhalda. Þarna gæti verið áfram
steypt brú, en léttbyggðari yfirbygging en sú sem er þar nú.
Tillögu að göngubrú gerði Björn Th. í Þingvallabók sinniB14.
Skemmtilegast væri ef gamlar hleðslur fyrri brúa sæjust
sem mest, með því að brotin væri steypan utanaf stöplinum
norðan megin. Það er skoðun greinarhöfundar að með þessu
móti væri hægt að færa hylinn til sem næst upprunalegs
horfs. Einnig að aðkoman að honum að sunnan félli vel að
umhverfinu. Þá hefði brúin léttara yfirbragð og útfall hylsins
myndi njóta sín betur en nú er.
Heimildir
A Þingvallabókin, handbók um helgistað þjóðarinnar, Björn
Þorsteinsson, Örn og Örlygur 1986: 1) bls. 21; 3) bls. 35; 13)
bls. 35;
B Þingvellir, staðir og leiðir, Björn Th. Björnsson, Bókaútgáfa
Menningarsjóðs, 1. útg. Reykjavík 1984: 2) bls. 55; 5) bls. 68;
6) bls. 69-70; 7) bls. 56; 8) bls. 73; 9) bls. 72; 10) bls. 55;
14) bls. 73
C Aftökustaðir í landnámi Ingólfs og aftökur dæmdra manna. Páll
Sigurðsson, Ferðafélag Íslands Reykjavík 2000: 4) bls. 28-9
D Ísland Howells, Frank Ponzi, Brennholtsútgáfan 2004: 11) bls.
104; 12) bls. 104-5
Myndir (þar sem ekki er sérstaklega getið aðfanga)
Íslandsmyndir Mayers 1836, Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf, 1986:
Mynd 1 bls. 60: Almannagjá efst
Mynd 2 bls. 62: séð norður yfir Drekkingarhyl
Mynd 3 bls. 169: útfall Drekkingarhyls úr Almannagjá
Niðurstöður útboða
Tilboð Hlutfall Frávik
nr. Bjóðandi (kr.) (%) (þús.kr.)
9 Jökulfell ehf., Kópavogi 77.222.500 116,7 23.323
8 Suðurtak ehf.,
Borg, Grímsnesi 73.588.670 111,2 19.689
7 Hálsafell ehf., Reykjvík 71.820.050 108,5 17.920
6 Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða ehf.,
Selfossi 68.451.400 103,4 14.551
--- Áætlaður
verktakakostnaður 66.200.000 100,0 12.300
5 Framrás ehf., Vík 63.424.500 95,8 9.525
4 Gröfutækni ehf.,
Flúðum 61.434.325 92,8 7.534
3 Vörubílstjórafélagið
Mjölnir., Selfossi 60.981.150 92,1 7.081
2 Bíladrangur ehf., Vík 54.565.100 82,4 665
1 Þjótandi ehf., Hellu 53.900.000 81,4 0
Þingskálavegur (268)
2012-2013 12-046
Tilboð opnuð 6. nóvember 2012. Endurbygging
5,2 km Þingskálavegar frá Örlygsstaðamelum að
Svínhaga, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
Fylling . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6.950 m3
Fláafleygar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4.150 m3
Neðra burðarlag. . . . . . . . . . . . . . . . . . 8.300 m3
Efra burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4.600 m3
Ræsi. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 120 m
Tvöföld klæðing . . . . . . . . . . . . . . . . . . 35.150 m2
Frágangur fláa . . . . . . . . . . . . . . . . . . 40.300 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. júlí 2013.
Hringvegur (1) um Múlakvísl
(tvö útboð) 12-052 og 12-053
Á árinu 2013 áætlar Vegagerðin að bjóða út endur bygg-
ingu brúar á Múlakvísl á Mýrdalssandi ásamt varnar-
görð um og vegagerð um Múlakvísl. Fyrirhugað er að
bjóða verkið út í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga verður
boðin út vinnsla á rofvarnargrjóti og bygging um 5 km
langra varnargarða. Í síðari áfanganum verður boðin
út bygging 162 m langrar brúar ásamt vegagerð á um
2,5 km löngum kafla. Gert er ráð fyrir að verkið verði
unnið á árunum 2013 og 2014. Verkefnið er tilkynnt á
Evrópska efnahagssvæðinu.
Hringvegur (1) um Hellisheiði 12-051
Á árinu 2013 áætlar Vegagerðin að bjóða út breikkun
Hringvegar frá Hamragilsvegamótum austur um Hellis-
heiði og Kamba, alls rúmir 13 km. Frá Hamragils vega-
mót um að Kambabrún verður Hringvegurinn breikkaður
í þrjár akreinar en fjórar akreinar um Kamba. Gert er
ráð fyrir að verkið verði unnið á árunum 2013-2015.
Verkefnið er tilkynnt á Evrópska efnahagssvæðinu.
Fyrirhuguð útboð