Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2008, Síða 15
PV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 2008 15
BLS.16
Hlynur Bæringsson var sáttur eftir sigur á Grindavik í gærkvöld:
Liði verr ef nefið væri brotið
„Það er margt sem við þurfum að
læra af þessum leik, guð minn góð-
ur," sagði Hlynur Bæringsson, leik-
maður Snæfells, kátur í bragði eft-
ir sigurleik þeirra gegn Grindavík í
Röstinni í gærkvöld. Með sigrinum
tók Snæfell forustuna í einvíginu, 1-
0, og Hlynur var sáttur.
„Þetta var flott hjá okkur. Svona
á að klára leiki með stórum skotum
í restina. Undir lokin vorum við að
fá góðar körfur eftir fallegar hreyf-
ingar í vörninni sem við vorum ekki
að gera yfirleitt allan leikinn," sagði
Hlynur sem sá þó ýmislegt að í leik
sinna manna.
„I vöminni vomm við eins og
asnar að reyna að stela boltanum út
um allan völl. Þá þurfti næsti mað-
ur alltaf að hjálpa og þá lögðu þeir
upp opin skot á Pál Axel eða næsta
mann.
Lið sem em óöguð varnarlega eru
í þessu, að reyna að stela boltanum
út um allan völl og þannig lið vinna
ekki stóra leiki. Það er ekki góður
körfubolti að okkar viti og við viljum
ekki spila þannig."
Hlynur var í baráttu við Jamall
Williams hjá Grindavík allan leik-
inn og Hlynur var ekki nægilega sátt-
ur við sína ffammistöðu. „Hann hitti
yfirleitt gegn mér þannig að það var
nú ekkert sérstaklega skemmtilegt.
Hann er einfaldlega hörkugóður og
það sérstaklega sóknarlega sem er
greinilega hans styrkleiki inni á vell-
inum. Vörnin og fráköstin em ekki
alveg hans en ég veit ekki hvort hann
hefur orku í það. Ég þarf að bæta mig
gegn honum fyrir næsta leik og þá
sérstaklega varnarlega," sagði Hlyn-
ur sem fór út af alblóðugur eftir við-
skipti við Jamall.
„Ég held að ég sé ekld nefbrot-
inn. Þá myndi mér líldega líða aðeins
verr þó að þetta sé ansi vont núna.
Hann sneri sér eitthvað inn á mig og
ég kannski bauð svolítið upp á þetta
sjálfur. Spilamennska okkar slcánaði
samt eftir að ég fór út af. Munurinn
var kominn ofan í tvö stig þegar ég
kom til baka."
tomas@dv.is