Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNf 2008
Fréttir ©V
Baldur Þó flokks Sjá borgarful kynna ný; rhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, segir lfstæðisflokksins vera eina aðalástæðu fylgistaps hans í borgin' Ltrúarnir um að koma sér og málefnum sínum á framfæri, en n an leiðtoga sem fyrst, svo óvissuástandinu ljúki. EÐIÐ EFTII leiðtogakreppu borgarstjórnar- ni. í leiðtogakreppunni keppast auðsynlegt er fyrir flokkinn að „Á meðan þetta varir keppist hver borgarfulltrúi flokksins um annan þveran að kynna sig og sín málefni í fjölmiðlum"
N ÝJUMLEIÐl 1
Hver könnunin hefur síðustu vik-
ur rekið aðra þar sem fylgi borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins
virðist engum botni ná. Sömuleiðis
vekja athygli kannanir á þvf hvern
landsmenn vilja sjá í stóli borg-
arstjóra, en oddviti flokksins, Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, virðist ekki
njóta mikils trausts til embættisins.
Flestum er ljóst að brýnt er að leysa
úr leiðtogakreppu flokksins. Þess er
nú beðið að tilkynnt verði um hver
verði næsti borgarstjóri Reykjavík-
ur.
Missa þrjá borgarfulltrúa
Fylgi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík mældist aðeins 27 pró-
sent í könnun Capacent Gallup
sem birtist um helgina. Það merkir
að flokkurinn fengi fjóra borgarfull-
trúa væri gengið tíl kosninga, eða
þremur færri en nú sitja í borgar-
stjóm. Samfylkingin hlyti hins veg-
ar 45 prósent atkvæða og átta borg-
arfulltrúa, eða hreinan meirihluta.
Baldur Þórhallsson, prófessor
í stjórnmálaffæði við Háskóla ís-
lands, segir ástæður þessa mikla
fylgistaps einkum vera þrjár: í
fyrsta lagi forystukreppa borg-
arstjórnarflokksins, í öðru lagi
myndun meirihlutans ásamt
Ólafi F. Magnússyni fyrr í ár,
sem féll borgarbúum illa í
geð, og í þriðja lagi REI-mál-
ið, sem Baldur segir skjóta
upp kollinum aftur og aftur.
„Það fer að verða óskilj-
anlegt að sjálfstæðismenn
skuli ekki finna lausn á þess-
um málum með því að finna
einhvern til að leiða borg-
arstjórnarflokkinn," segir
Baldur. „Því lengur sem
flokkurinn dregur það,
því djúpstæðari verða
ertíðleikarnir."
Hanna Birna með
tífaldan stuðning
Vilhjálms
í þessu ljósi vekja ekki
síður athygli niðurstöð-
ur kannana sem undanfar-
ið hafa skotíð upp kollin-
um þar sem stuðningur
við einstaka borgarfull-
trúa flokksins til emb-
ættís borgarstjóra er
í brennidepli. Virð-
ist Hanna Birna Krist-
jánsdóttir njóta yfir-
burðastuðnings, en
samkvæmt nýlegri
könnun sem gerð var
á landsvísu myndu
57 prósent aðspurðra
velja hana sem borg-
arstjóra. Næstmest
stuðnings nýtur Gísli
Marteinn Baldurs-
son með 11 prósent
ábakvið sig.
Leiðtogi flokks-
ins í borginni, Vil-
hjálmur Viihjálms-
FYLGI BORGARSTJÓRNARFLOKKANNA
Fylgi í kosningum 2006.
Fylgi (skoðanakönnun
24.-27. maí.
r*^ tn
fM "T
son, nýtur tífalt minni stuðnings
en Hanna Birna í borgarstjórastól-
inn, eða innan við fimm prósent.
Fleiri vilja jafnvel að Sjálfstæðis-
flokkurinn velji Dag B. Eggertsson,
borgarfulltrúa Samfylkingarinn-
ar, sem borgarstjóraefni sitt en
Vilhjálm. Önnur ný-
leg könnun,
sem
&ÓHÁÐIR
gerð var meðal Reykvíkinga á veg-
um Fréttablaðsins, endurspeglar
svipuð viðhorf þó Vilhjálmur hafi
raunar komið skár út úr henni. Ýta
þessar kannanir enn undir vanga-
veltur þess efnis að flokkurinn eigi
í leiðtogakreppu.
Forystusveitin óljós
„Það er alltaf erf-
itt fyrir stjórnmála-
flokk þegar for-
ystusveitín er
óljós og það
virðist vera
að koma
niður á
flokknum
STUÐNINGUR í EMBÆTTI
BORGARSTJÓRA
Fianna Birna Kristjánsdóttir
Gísli Marteinn Baldursson
VilhjálmurVilhjálmsson
Aðrir
prófessor Baldur. „Þetta óvissu-
ástand mun vera við lýði þar tíl
borgarstjórnarflokkurinn kemur
sér saman um hver eigi að verða
borgarstjóri flokksins á næsta ári.
Á meðan þetta varir keppist hver
borgarfulltrúi flokksins um annan
þveran að kynna sig og sín málefni
í fjölmiðlum."
Baldur segir þó engan vafa leika á
að Hanna Birna Kristjánsdóttír nýt-
ur mests trausts og fylgis á landsvísu
til að leiða flokkinn og verða borgar-
stjóri. „Ef kannanir halda áfram að
sýna þetta verður sífellt erfiðara fyr-
ir borgarstjórnarflokkinn að ganga
fram hjá henni. Staða hennar hlýt-
ur stöðugt að styrkjast," segir Bald-
ur, en bendir þó á að Hanna Birna
verði einnig að njóta trausts innan
borgarstjórnarflokksins til að geta
orðið leiðtogi hans og borgarstjóri.
„Maður veltir fyrir sér hvort þessar
skoðanakannanir gefi tílefni til þess
að forysta flokksins íhlutist í þessu
máli," bætir Baidur við.
Þurfa að bretta upp ermarnar
DV náði tali af Gísla
Marteini Bald-
urssyni og
Kjartani
Magn-
REYKJAVÍK LANDIÐ ALLT
24. MAÍ 22.-26. MAI
40,2%
15,8%
10,8%
33,2%
57%
11%
5%
27%
syni, borgarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins, og vildi hvorugur þeirra
taka af öll tvímæli um hvert væri
borgarstjóraefni flokksins. „Vin-
sældir manna rokka upp og niður,"
segir Gísli Marteinn. „Það er bara
gott að við höfum fólk sem nýtur
vinsælda eins og Hanna Birna ger-
ir í þessum könnunum. Það verð-
ur hins vegar ekki tíl þess að menn
rjúki upp tíl handa og fóta.
Ég held að borgarbúar vilji fyrst
og ffemst borgarstjórn sem kemur
hlutum í verk. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur glímt við krappari leið-
togakreppu en þá sem nú er í borg-
inni og samt stýrt bæði þjóð og borg
vel," segir Gísli enn fremur.
ÞeirGísliogKjartanerusammála
um að nauðsynlegt sé að bretta upp
ermarnar og vinna traust borgar-
búa. „Þessar tölur sýna bara að við
þurfum að bretta upp ermarnar og
leggja okkur enn meira fram við að
vinna að hag borgarinnar og sýna
borgarbúum að við séum að gera
góða hlutí," segir Kjartan.
Ekki náðist í Vilhjálm Vilhjálms-
son eða Hönnu Birnu Kristjánsdótt-
ur við vinnslu fréttarinnar.