Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚN[ 2008
Neytendur DV
neytendur@dv.is
UMSJÓN: ASDÍS BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR asdisbjorg@dv.is
HJARTA VESTURBÆJAR „Mérfinnstalltafjafnmerki-
legt hvað viðmót afgreiðslufólks skiptir miklu máli þegar viðskipti
fara fara fram," segir Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi.„Þegar við-
mótið er glaðlegt og vingjarnlegt skilja viðskiptin eftir góða tilfinningu
meðan neikvætt viðmót getur leitt til þess að staður verði úti-
lokaður í huga viðskiptavinarins. Melabúðin er dæmi um góða
þjónustu. Ekki bara vegna vöruúrvals heldur vegna þess að þar
hittastVesturbæingartil að spjalla og skiptastá kveðjum og
brosum. Svo er þessi búð hjartað í hverfinu þar sem þjónustan
er veitt af lipurð og með gleði."
NEYTANDINIM
Vinningshafar
dagsins
Vinningshafar 3. júnf 2008 í
leiknum DV gefur milljón. Þeir
hlutu í verðlaun tlu þúsund króna
inneign í Bónus. DV óskar þeim
innilega til hamingju.
Brjánn Guðjónsson
Lilja Þorgeirsdóttir
Margrét Emilsdóttir
Soffía Sveinsdóttir
Þórarinn Jónsson
OBírt'W «8$,
A VatnagarOar 160,70
IIF.NSÍN
176,10
IIÍNHI,
176,20
IIÍMHI,
176,30
UÍNEI,
Nú þegar sól hækkar á lofti og sumarfrí nálgast velta margir fyrir sér hvað skal gera.
Nú þegar verðbólga eykst þarf fólk að spyrja sig hvað hægt er að eyða miklum pening.
Sumir þurfa jafnvel að sleppa draumautanlandsferðinni. DV kannaði ódýrar pakka-
ferðir til útlanda og gefur góð ráð til að ferðast fyrir minni pening.
Margirnot-
færasérþetta
tilboðáreft-
irárogeru
alltafjafn-
ánægðir"
ODYRARAI
Sll AA^iR[F f^I
Tenerife Sólarlottó
Plúsferða býður hagstæð-
ustu verðin til Tenerife.
„Sólarlottóið hjá okkur er leið til að
gera fólki kleift að ferðast ódýrt,"
segir Lára Birgisdóttir, deildarstjóri
hjá Plúsferðum. „Við höfum verið
með þetta í gegnum árin og er fólk
farið að kannast við þetta." Að ferð-
ast ódýrt er orðið erfitt þegar verð-
bólgan eykst svo um munar og fjár-
hagur fólks þrengist. Alla langar þó
í sumarfrí. Auk ódýrustu valmögu-
leikanna hjá ferðaskrifstofunum er
hægt að setja saman sína eigin ferð
á netinu.
Sólarlottó Plúsferða
„Það sem er í Sólarlottóinu eru
aðallega vikuferðir og þá færðu að
vita um gististað viku fyrir brottför,"
segir Lára hjá Plúsferðum. „Það eru
raun skilyrðin fyrir því að geta boð-
ið almenningi svona ódýrar pakka-
ferðir." Ferð í lottóinu kostar að-
eins 39.900 á mann með sköttum
og er það það ódýrasta sem í boði
er. Áfangastaðirnir sem eru í boði
eru algengir ferðamannastaðir og
þeir sömu og í öðrum pakkaferð-
um. Sem dæmi má nefna Portúgal,
Krít, Marmaris, Costa del Sol og
Tenerife. Dagsetningarnar sem svo
í boði eru er hægt að sjá á heima-
síðu Plúsferða.
Mismunandi áherslur
Lára segir að margir notfæri sér
þetta tilboð ár eftir ár og séu alltaf
jafnánægðir. „Þetta gildir alveg fýrir
heilar fjölskyldur líka og getur verið
afar hagstætt fyrir fólk sem kannski
- jj, .
1 ", , J " 5
** i ‘ ?
1
hefur ekki eins mikinn pening til að
eyða í sumarfrí og áður," segir Lára.
Hinar ferðaskrifstofurnar sem
sérhæfa sig í pakkaferðum til út-
landa eru Sumarferðir og Úrval
Útsýn. Af þeim eru Plúsferðir hag-
stæðastar. Úrval Útsýn leggur mesta
áherslu á sér- og lúxusferðir.
Aðrir ferðamöguleikar
Með smá fyrirhöfn og leit á net-
inu er einnig hægt að finna ódýra
ferð sjálfur. Sé maður að fara í sum-
arhús eða heimsókn til vina eða
ættingja þarf oft ekki að kaupa ann-
að en fargjaldið. Ef áfangastaðurinn
er ekki nálægt áfangastöðum Ice-
landair eða Iceland Express er best
að leita sjálfur að flugi frá til dæmis
London eða Kaupmannahöfn. Sem
dæmi flýgur Ryanair frá London og
Sterling frá Kaupmannahöfn.
Fyrir par sem er að fara í sum-
arhús í Suður Frakklandi er flogið
með Iceland Express til London fyr-
ir 69.900 krónur samkvæmt gengi
3. júní og svo áfram til Perpignion
ÓDÝRFLUGFÉLÖG
www.ryanair.com
www.sterling.dk
www.cheapflights.co.uk
www.lastminute.com
með Ryanair á 24.000 þúsund krón-
ur. Ferðin kostar samtals tæpar 94
þúsund krónur. Aukakostnaður fer
svo eftir aðstæðum hvers og eins.
Útíplús
Samkvæmt útreikningum á
þessum tveimur ferðatilhögunum
kemur Sólarlottó Plúsferða betur
út. Ferð fyrir tvo kostar þar 79.800
krónur og er flug, gisting og skattar
innifaldir. Af þessu tilefni er vert að
vísa í slagorð fyrirtækisins „Komdu
út í plús" en DV birti fyrir stuttu
umfjöllum um tvíræð slagorð. Hér
sannast að Plúsferðir bjóða best.
■ Lofiö fær
veitingastaður
Hótels Holts fyrir
framúrskarandi
þjónustu. Hjón fóru
meö barn sitt út að
borða og buðust þjónar
til þess að útbúa sérstaka
máltíð fyrir barnið þar
sem ekki var hentugur
matur fyrir það á
matseðli staðarins. Maturinn sem kom
var glæsilegur á að líta og afar góður.
Fjölskyldan fór sátt af staðnum.
Lastið fær Bió-grill í ....
Grafarvogi fyrir mjög ^,
slappa hamborgara. .--*i
Viðskiptavinir sem W
fengu sér hamborgara að
kvöldi til þurftu að reyna SÉ
mikið á sig við að koma
. ham-
borgaranum
einum niður.
Svört olía lak
niður með kjötinu og þótti það afar
ólystugt. Herlegheitin kostuðu heilar
2.500 krónur.
I.OF&LAST
Fyrstu vinnmgshafarnir 1DV gefur milljon voru dregnir út í gær:
FYRSTU VINNINGSHAFARNIR
„Þetta kom mjög skemmtilega á
óvart," segir Lilja Þorgeirsdóttir, einn
af fyrstu vinningshöfunum í leiknum
DV gefur milljón, en þeir voru dregn-
ir út í höfuðstöðvum DV í gærmorg-
un. Alls voru fimm dregnir út og hlutu
þeir að launum tíu þúsund króna inn-
eign í Bónus. „Ég er með lítið barn og
þarf að kaupa mikið af dýrum hlut-
um, svo sem bleiur og svona, svo það
ér ekki spurning að þetta kemur sér
vel," segir Lilja. Hún segist hafa keypt
blaðið fyrir tÚviljun og sá ekki auglýs-
inguna fýrr en um kvöldið og ákvað að
prófa leikinn. Aðspurð hvort hún ætíi
að taka aftur þátt segir hún engan vafa
leika á því. „Og á eftír að segja öllum
frá því," segir Lilja og brosir.
Brjánn Guðjónsson var einnig
dreginn út en hann segist ekki ætla
að nota vinninginn sjálfur heldur gefa
móður sinni hann. „Hún á það skil-
ið," segir Brjánn. Hann segist hafa séð
leikinn á vefnum en hann auglýsir þar
og í blaðinu. „Þetta er mjög flott fram-
tak hjá DV og sérstaklega í kreppunni
sem er að koma. Þá hafa allir gott af
því að fá stuðning og græða eitthvað,"
segir Brjánn. Aðspurður hvort hann
ætíi að taka aftur þátt segir hann nóg
að vinna einu sinni. „Leikurinn á
vafalaust eftír að vekja mikla athygli,"
segir hann að lokum.
Vinningshafar verða dregnir út
alla daga í júní og er þátttökuseðillinn
á dv.is. Hver og einn getur tekið þátt
eins oft og hann vill og er skilyrðið að
eiga eintak af blaðinu.