Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008
NORDURLAND DV
Stórir flutningabílar flytja nú tugi þúsunda rúmmetra af möl frá Munkaþverá i Eyjafirði að flugbrautinni
á Akureyrarflugvelli. Flugbrautin verður lengd um tæpan hálfan kílómetra og reiknað er með að heildar-
kostnaður verði 1,3 milljarðar. Efnistaka í landi Munkaþverár er umdeild. íbúar á Hrafnagili eru ósáttir við
umferð flutningabílanna. Efnistakan fór aldrei í umhverfismat.
UMDEILT EFNISNAM
í NÝJA FLUGBRAUT
Vinna við lengingu flugbrautarinn-
ar á Akureyrarflugvelli er komin á
skrið. Brautin verður lengd um tæp-
an hálfan kílómetra, fyrst og fremst
tii suðurs, en öryggissvæði við
norðurendann verður einnig lengt
og undirstöður styrktar.
Áætlað er að kostnaður við fram-
kvæmdina í heild sinni verði um
það bil 1,3 milljarðar króna. í kjölfar
útboðs var samið um fyrsta áfanga
verksins við verktakafyrirtækið Is-
tak. Tilboð ístaks var lægst og hljóð-
aði upp á 475 milljónir króna.
„Mesta breytingin við þessa Ieng-
ingu liggur í því að þyngri og stærri
flugvélar koma til með að geta tek-
ið á loft ffá Akureyri. Brautarlengd-
in hefur minna að segja þegar kem-
ur að lendingum, þótt hún skipti
vissulega máli," segir Sigurður Her-
mannsson, flugvallarstjóri á Akur-
eyrarflugvelli.
Efnistaka á Munkaþverá
Efnistaka vegna lengingarinnar
fer fram í landi Munkaþverár í Eyja-
firði. Þaðan er nú stöðugur straum-
ur flutningabfla með möl í fyllingu
og undirlag flugbrautarinnar. Um
180 þúsund rúmmetrar af efni fara
í flugvöllinn. Ekki er víst hvort allt
það efni verði sótt á malareyrarnar
við Munkaþverá. Aðrar efnisnámur
eru nú til athugunar.
Til viðbótar við eftiistökuna
verða grafnir hátt í sjö kílómetrar
„Efallt gengur að ósk-
um verðurnýja flug-
brautin tekin í notkun
í lok júlí á næsta ári."
af lagnaskurðum auk þess sem að-
flugsbúnaður Akureyrarflugvallar
verður endurnýjaður. Að meðtöld-
um öryggissvæðunum við brautar-
endana lengist flugbrautin því um
sex hundruð metra til suðurs og 150
metra til norðurs.
Kristján Möller samgönguráð-
herra kvaðst í fféttum nýverið binda
miklar vonir við að lenging brautar-
innar skapaði ný tækifæri á Norður-
landi. Um mikið hagsmunamál sé
að ræða því að með lengingu skap-
ist forsendur fyrir Evrópuflugi ffá
Akureyri.
Umdeild efnistaka
Efnistaka í landi Munkaþverár
hefur verið gagnrýnd, ekki síst af
íbúum við Hrafnagil í Eyjafirði, en
þungir flumingabflar aka nú veg-
inn um þorpið í stórum stfl á degi
hverjum. Ekki þótti þó forsvaran-
legt að taka efnið utar í firðinum.
Óshólmasvæði Eyjafjarðarárinnar
er enda friðlýst vegna sérstæðs og
fjölbreytts fúglalífs.
Bjami Kristjánsson, fráfarandi
sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit, tók
málið upp við skipulagsnefnd Ak-
BJARNI KRISTJANSSON
Fráfarandi sveitarstjóri í Eyjafjarð-
arsveit gerði athugasemd við
efnistöku á Munkaþverá þar sem
ekki var gert ráð fyrir slfku á
skipulagi. Efnistakan fór ekki í
umhverfismat.
ureyrarbæjar. 1 erindi til skipulags-
nefhdarinnar benti Bjarni á að far-
vegur Eyjafjarðarár væri hvorki
skilgreindur sem efnistökusvæði í
aðal- né deiliskipulögum sveitar-
félaganna. Skipulagsnefnd ákvað á
fundi í febrúar að taka ekki afstöðu
til erindis Bjama. Hvorki Akureyr-
arbær né Skipulagsstofnun töldu
ástæðu til þess að framkvæmdin
færi íumhverfismat.
Framkvæmdir í eitt ár
Áætlað er að framkvæmdir á Ak-
ureyrarflugvelli taki um það bil eitt
ár. „Malbikunarframkvæmdir verða
boðnar út sérstaklega," segir Sigurð-
ur flugvallarstjóri. „Ef allt gengur að
óskum verður nýja flugbrautín tek-
in í notkun í lok júh' á næsta ári.
Menn gera sér vonir um að með
þessari lengingu á flugbrautínni
skapist ný sóknarfæri, bæði í út-
flutningi og ferðaþjónustu," held-
ur Sigurður áfram. Hann bendir á
sífellda aukningu á ferðamanna-
straumnum til Akureyrar, einn-
ig yfir vetrarmánuðina. „í kringum
helgamar er flogið allt að fjórtán
sinnum yfir daginn til Akureyrar frá
Reykjavík. Þetta em því hæglega í
kring um eitt þúsund manns sem
fara um Akureyrarflugvöll á einum
slflcum degi," segir Sigurður.
Sigurður segir að í þessum hópi
sé að finna alla flóruna af ferðalöng-
um, fólk í viðskiptaerindum, ferða-
menn, erlenda og innlenda, fólk á
leið í leikhús og á skíði.
sigtryggur@dv.is