Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNl 2008
NORÐURLAND DV
HART DEILT UM
OXARFJARÐARSKOLA
Afar skiptar skoðanir eru um framtíð Öxarfj ar ðar skóla í Norðurþingi. í dag er skólinn rekinn á tveimur stöðum;
i Lundi i Öxarfirði og á Kópaskeri. Tæpir þrjátíu kilómetrar aðskilja skólanna en til stendur að setja skólastarf
við Öxarfjörð undir eitt þak. Kristbjörg Sigurðardóttir, foreldri á Kópaskeri og sveitarstjórnarfulltrúi í Norð-
urþingi er afar ósátt við fyrirhugaðar breytingar.
ÁKópaskeri Til stendurað sameina
Öxarfjarðarskóia undireinu þaki.
I Lundi Skiptar skoðanir eru
um fyrirhugaðar breytingar.
„Tillagan gerir ráð fyrir að öll starf-
semi grunnskóla og leikskóla verði
lögð niður á Kópaskeri sem er
óásættanleg skerðing á grunnþjón-
ustu við þá íbúa sem hennar hafa
notið. Það að ætla börnum á leik-
skólaaldri allt niður í 12 mánaða
gömlum að ferðast 60 km leið dagleg
í leikskóla með skólabíl getur ekki
talist raunhæfur valkostur fyrir fjöl-
skyldur á Kópaskeri og óvíst að for-
eldrar láti bjóða sér slíka þjónustu
fyrir börn sín." Þetta segir Kristbjörg
Sigurðardóttir fulltrúi Samfylkingar-
innar í sveitarstjórn Norðurþings og
íbúi á Kópaskeri. Afar skiptar skoð-
anir eru um framtíð skólahalds við
Öxarfjörð.
Skólinn sameinaður
Á fundi sveitastjórnar Norður-
þings þann 20. maí var tillaga sam-
þykkt um að nú þegar verði haflnn
undirbúningur að því að skólastarf
við Öxarfjörð verði í heildstæðum
skóla undir einu þaki. Stefnt er að
því að sú verði raunin við upphaf
skólaárs 2009 til 2010. Upphaflega
hafði Þróunarteymi Öxarfjarðar-
skóla sett fram tillögu um að flytja
allan skóla í Lund frá og með næsta
hausti. Á fundinum lýsti þróunar-
teymið, sem skipað er fimm stjórn-
endum skólans, því yfir að þær muni
allar starfa í Lundi næsta vetur.
Hingað til hefur Öxarfjarðar-
skóli verið starfræktur bæði í Lundi
í Öxarfirði og á Kópaskeri. Um þrjá-
tíu kílómetrar aðskilja skólanna en
nemendur Öxarfjarðarskóla verða í
haust um 60 talsins. Svæðið er afar
víðfemt en Öxarfjarðarskóla sækja
börn allt frá Melrakkasléttu í norðri
til Kelduhverfis í suðri. Skólavæð-
ins spannar tæplega hundrað kíló-
metra.
Vilja óbreytt ástand
Á íbúafundum sem haldnir hafa
verið á svæðinu hafa ólík sjónarmið
litið dagsins ljós. fbúum í Keldu-
hverfl fmnst mörgum hverjum ótækt
að þurfa að senda börn sín alla leið
til Kópaskers en íbúum þar hugnast
ekki að senda ung börn sín í rútu,
hálftíma leið, í Lund. Kristbjörg seg-
ir að foreldrar á Kópaskeri vilji flest-
ir óbreytt ástand. „Það er ábyrgð-
arhluti að ætla að leggja niður
mikilvæga þjónustu eins og skóla og
leikskóla í þropi eða þjónustukjarna
þar sem þjónustustig er raunar mjög
hátt miðað við íbúafjölda og önn-
ur grunnþjónusta eins og til dæmis
heilsugæsla er staðsett. Fram hafa
komið eindregnar óskir foreldra og
annarra íbúa á Kópaskeri og ná-
grenni um að fyrirkomulagi skóla-
halds verði ekki breytt frá því sem
nú er. Því er algjörlega óábyrgt af
kjömum fulltrúum í sveitarstjóm að
ganga gegn vilja þeirra sem á þjón-
ustunni þurfa að halda," segir hún.
Börnin sameinuð
Huld Aðalbjarnardóttír, skóla-
stjóri Öxafjarðarskóla og kennari í
Lundi, er ein þeirra sem lagði til-
löguna fyrir. „Mér finnst þetta góð-
ur kostur fyrir skóiasvæðið. Þetta
er fagleg og félagsleg hagræðing og
snýst um að bjóða börnunum og
foreldrum þeirra upp á betri þjón-
ustu," segir hún. Hingað tíl hefur
leikskóli verið starffæktur á Kópa-
skeri auk þess sem nemendur frá 1.
til 7.bekkjar gmnnskóla hafa stund-
að nám á Kópaskeri. Elstu þremur
bekkjum grunnskóla hefur hins veg-
ar verið ekið í Lund.
„Börn frá Kelduhverfi, sem sækja
skóla í Lundi hafa þurft að ferðast
enn lengra en börnin á Kópaskeri.
Hugmyndin er að sameina börnin
undir einu þaki til að auka félags-
færni þeirra og samkennd," segir
hún. Huld segist ekki hafa fundið
fyrir mikilli andstöðu við heildstæð-
an skóla en segir styrinn standa um
það hvar skólinn á að vera.
Landsbyggðin á betra skilið
Kristbjörgu finnst með ólíkind-
um að þetta eigi að þröngva í gegn,
án þess að hlustað sé á sjónarmið
foreldraa eða annarra íbúa Kópa-
skers og nágrennis. Til marks um
óánægju íbúa Kópaskers var sveita-
stjóra í apríl afhendur undirskrift-
arlisti 65 einstaklinga. Þeir skrifuðu
allir undir andstöðu sína við fyrir-
hugaðar breytingar. Þess ber að geta
að íbúar Kópaskers em um 120 tals-
ins. „Landsbyggðin þarf á öðru að
halda en því að heimamenn séu að
búa til aðstæður sem sannarlega
fæla fólk frá búsetu," segir hún að
lokum.
Þróunarteymi
Öxarfjarðarskóla
Setti fyrst fram tillögu
um skólamál.
VHA
ELSMIÐJAN ASVERK
Rennismíði
Tjakkaviðgerðir og nýsmíði
Felgubreytingar
Drifskaftabreytingar
Heddplönun
Grímseyjargötu - 600 Akureyri - Sími: 462 7860
asverkehf@asverkehf.is - www.asverkehf.is