Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 2008
NORÐURLAND DV
Ellefu börn ljúka skólaárinu í grunnskólanum í Grímsey í vor:
FÉLAGSHEIMIU,
SKÓLIOG LÆKNASTOFA
Grunnskólinn í Grímsey er til
húsa í félagsheimilinu Múla. Húsið
var reist á áttunda áratugnum, sér-
staklega með það fyrir augum að þar
yrðu grunnskóli, félagsheimili, bóka-
safn og læknastofa. „Þetta er eins
konar miðstöð," segir Donald Jó-
hannesson, skólastjóri í grunnskól-
anum í Grímsey.
f skólanum í Grímsey eru börn frá
sex ára og fram að fermingu. „Eftir
fermingu þurfa krakkarnir að sækja
nám í landi. Fyrirkomulagið er tals-
vert breytt í dag miðað við það sem
var, því heimavistarskólar eru afl-
agðir. Fólk þarf því að treysta á að
þekkja einhvern sem getur séð um
unglinginn á meðan hann er í námi
í gagnfræðaskólanum," segir Don-
ald. í andránni eru ellefu nemendur
í skólanum og segir Donald það vera
nokkuð nærri meðaltalinu. „Þessi
fjórtán ár sem ég hef verið hérna hef-
ur fjöldinn alltaf verið á bilinu ellefu
til fjórtán."
Donald bendir á að meðalaldur
sé lágur í Grímsey. í hundrað manna
þorpi sé meðalaldurinn í kringum
þrjátíu ár. „Þetta segir okkur bara
það að hér er ungt og hraust fólk og
maður telst til öldunga hér
um sextugt," heldur Don-
ald áffam.
Læknir kemur nú mán-
aðarlega til Grímseyjar og
notar aðstöðu í Múla. Ekki
er lengra síðan en upp úr
1980 að læknir kom í eyj-
una einu sinni á ári. „Það
hefur líklega verið skólaskoðunin
að hausti. Menn þurftu að vera ansi
sjálfbjarga hér á þessum slóðum,"
segir Donald.
Donald var áður kennari og
skólastjóri í Snælandsskóla í Kópa-
vogi. „Ég hafði ákveðið að hætta í
kennslunni og hafði verið hættur um
nokkurt skeið þegar síminn hringdi.
Ég var spurður hvort við hjónin vær-
um ekki á lausu." Hann kveðst hafa
skellt upp úr í fyrstu þegar hann var
beðinn um að flytja til Grímseyjar.
„Svo skelltum við okkur í ferjuna og
skoðuðum okkur um í þrjú korter.
Fljótlega ákváðum við að vera hérna
í tvö ár. Nú er það fjórtánda senn að
líða."
Við skólann Donald og kona
hans Helga Mattfna Björnsdóttir
ásamt nemendum.
(skólastofunni Það er nóg
að gera í skólanum. Börnin
voru að undirbúa sig fyrir próf
þegar myndin var tekin.
Kvenfélagið og Kiwanisklúbburinn halda uppi félagslífinu:
BAUGURGEGNIR
STÓRU HLUTVERKI
IGRIMSEY
Kvenfélagið Baugur stendur á
gömlum grunni og nafnið teng-
ist engum Baugsmálum eða réttar-
höldum en er að sjálfsögðu nefnt
eftir norðurheimskautsbaugnum
sem þræðir sig í gegnum eyjuna.
Kvenfélagið, ásamt Kiwanisklúbbn-
um, gegnir algjöru lykilhlutverki í
því að halda uppi félagslífi fyrir fólk
í Grímsey, ekki hvað síst á dimmum
vetrum.
Þær Stella Gunnarsdóttir og
Helga Mattína eru lykilkonur í kven-
félaginu og starfa einnig í öðru gisti-
heimili eyjunnar. „Það er í rauninni
alveg einstaklega gott félagslíf-
ið hérna í eyjunni og vinkona mín
frá Reykjavík minnist alltaf á þetta
þegar hún heimsækir okkur," segir
Stella. „Hún segir að það sé helm-
ingi meira um að vera hér í Grímsey
en nokkurn tímann í Reykjavík. Hún
kveðst mestmegnis horfa á sjón-
varpið."
Helga Mattína bendir á að einu
sinni í mánuði sé handavinnufund-
ur og spilavist sé einu sinni í mánuði.
„Það koma allir í vistina og hafa það
notalegt. síðan höfúm við staðið fyrir
alls kyns uppákomum þar fyrir utan,
á borð við herrakvöld og dömu-
kvöld," segir Helga. Það var einmitt
kvenfélagið Baugur sem stóð að ut-
anlandsferð síðasta sumar, þar sem
nánast allir íbúar í eyjunni fóru sam-
an á strönd. Ráða þurfti afleysinga-
fólk úr landi til þess að sjá um flug-
völlinn og þess háttar á meðan.
„Við erum einmitt að vinna í
því að skipuleggja aðra svona ferð
núna," heldur Helga áfram. „í þetta
skiptið getur farið svo að við förum
til Ítalíu."
Sundlaugin Kvenfélagið hefur
lagt sveitarfélaginu lið þannig
að baeta megi heitum potti við
aðstööuna (sundlauginni.
Á meðan spjallað var við kven-
félagskonur lagðist ferjan Sæfari
að landi og út úr henni komu sex-
tíu kennarar og starfsmenn Verk-
menntaskólans á Akureyri, sem
pantað höfðu mat á Kríunni, veit-
ingastaðnum í eyjunni. Þar beið
þeirra önnur kvenfélagskona, Unn-
ur Ingólfsdóttir, sem undirbúið
hafði veisluna frá því kvöldinu áður.
Ferðamenn drífur að Sextíu
kennarar og starfsmenn VMA
komu (mat út í Grímsey.