Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Qupperneq 32
32 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNl 2008
NORÐURLAND DV
Ungur hvítabjörn var aflífaður í Skagafirði í gær. Þá hafði ekki sést til ísbjarnar við strendur íslands svo árum
skiptir. Dýralæknar undrast að engin viðbragðsáætlun sé í gildi hvað varðar komu dýra sem þessara til lands-
ins. Hjörtur Magnason héraðsdýralæknir var með öll nauðsynleg tæki sem þurfti til að deyfa skepnuna. Þór-
unn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hyggst fara yfir atburðarásina.
SVONA FÓR UM SJÓFERÐ ÞÁ
Hvítabjörn sem gekk á land í Skaga-
firði í gærmorgun var aflífaður af lög-
reglumönnum tveimur klukkustund-
um eftir að sást fyrst til hans. Var
gripið til þess ráðs þar sem björninn
þótti sækja í átt að mannabyggðum
og var óttast að hann myndi hverfa
inn í þoku sem var á svæðinu. Af
þeim sökum var hann skotinn og síð-
an komið fyrir í frystigeymslu. Gert
er ráð fyrir að hann verði rannsakað-
ur frekar og stoppaður upp í framtíð-
inni.
Ungt karldýr
Hvítabjörninn var karldýr sem
vó um 250 kíló og var um tveir metr-
ar að stærð. Samkvæmt upplýsing-
um frá Náttúrufræðistofnun íslands
getur fullvaxta karldýr aftur á móti
orðið allt að 800 til 1000 kíló og um
fjórir metrar að stærð. Því er ljóst að
um ungt karldýr var að ræða. Ekki er
ljóst hvernig björninn bar að landi,
en hafís liggur um hundrað kíló-
metra frá landi og gæti hann mögu-
lega hafa synt þá leið.
Menn hefur greint á um við-
brögð lögreglunnar í málinu. Egill
Steingrímsson, héraðsdýralæknir
á Blönduósi, segir að vel hefði mátt
halda öðruvísi á spöðunum. Hann
gagnrýnir sérstaklega að fólki hafi
verið hleypt að svæðinu þar sem
björninn var. Þegar hann fór svo að
ögra fólkinu hafi þurft að grípa til
þessa ráðs af illri nauðsyn. Hann
segist ekki hafa verið hafður með í
ráðum þegar verið var að skoða við-
brögð við komu bjarnarins. Hann
segir ýmsa dýralækna, þar á meðal
hann sjálfan, hafa viðeigandi deyfilyf
fyrir björninn, en að þá skorti nauð-
synleg tæki og þekkingu til að koma
lyfjunum í birnina. Hann segir þó
að hugsanlegt hefði verið að grípa
til annarra ráða, svo sem að koma
deyfilyfinu fýrir í æti og kasta því til
hans.
Viðbragðsáætlun skortir
Þeir dýralæknar sem DV hef-
ur rætt við vegna málsins eru sam-
mála um að viðbragðsáætlun skorti
í tilvikum sem þessu og undrast að
henni hafi ekki enn verið komið á
laggirnar. Þóruijn Sveinbjarnardótt-
ir umhverfisráðh'erra tilkynnti í gær
að hún hygðist fara yfir atburða-
rásina sem leiddi til þess að hvíta-
björninn var aflífaður. Verður kann-
að hvort hægt sé að koma í veg fyrir
að fella þurfi hvítabirni sem hingað
ganga á land í framtíðinni. Starfsfólk
utanríkisráðuneytisins og Umhverf-
isstofnunar leituðu ráða hjá dýra-
læknum og sérfræðingum stofnana
Landhelgisgæslunnar og Háskóla fs-
lands um hvort og hvernig væri hægt
að fanga björninn og flytja hann í sitt
„En þetta verður von-
andi áminning um að
það þurfi að gera ein-
hverja viðbragðsáætl-
un hvað þetta verðar."
rétta umhverfi. Það reyndist sam-
dóma álit allra sem rætt var við að
það myndi reynast miklum erfiðleik-
um háð, meðal annars vegna þess
að rétt deyfilyf væru ekki til í land-
inu. Samlcvæmt ráðuneytinu myndi
aðgerðin auk þess vera afar flókin
og krefjast þess að til verksins væri
notuð þyrla og sérþjálfað starfsfólk.
Flutningstíminn mætti auk þess ekki
vera langur.
í útrýmingarhættu
Hvítabirnir voru nýverið sett-
ir á heimslista yfir dýr í útrýming-
arhættu og er óheimilt að fella þá
nema að gefnu leyfi frá Umhverfis-
stofnun. Hins vegar er heimild fýr-
ir því í lögum að fella dýrið ef það er
talið ógna mannfólki eða búfénaði.
Til byggða Björninn kom vissulega
til byggða, óvígur með öllu.
Ekki fékkst leyfi frá Umhverfisstofn-
un eða umhverfisráðuneytinu fyrir
því að björninn yrði drepinn í gær, en
lögreglan á Sauðárkróki mat aðstæð-
ur á vettvangi sem svo að það þyrfti
að fella dýrið.
Á nauðsynlegan búnað
Hjörmr Magnason, héraðsdýra-
læknir á Egilsstöðum, er með efni
og byssu til staðar sem hefði dugað
til þess að deyfa björninn. Hann fór á
sínum tíma á námskeið í Svíþjóð og
hefúr öll tilskilin réttindi til meðferð-
ar búnaðarins. Yfirdýralæknir hafði
samband við hann um málið um
morguninn og sagði honum að sést
hefði til hvítabjarnar í Skagafirði. Þá
var ekki ljóst um hversu stóran björn
var að ræða, en þau efni sem Hjörtur
hafði undir höndum hefðu ekki dug-
að til að deyfa fullvaxta hvítabjörn í
einu skoti. Hins vegar hefðu þau ver-
ið vel nothæf til að deyfa björninn
í Skagafirði og hefði þá verið hægt
að flytja hann í burtu eftir á. Hjört-
ur frétti skömmu síðar að björninn
hefði verið felldur með tilliti til fýrr-
greindra ástæðna. „Þetta var skilj-
anleg ákvörðun þar sem honum var
lógað af neyðarástæðum. En þetta
verður vonandi áminning um að það
þurfi að gera einhverja viðbragðsá-
ætlun hvað þetta varðar. Það þyrfti
að auka menntun á þessu sviði þar
sem fleiri dýralæknar eru með til-
skilin réttindi og búnað til að bregð-
ast við því þegar hvítabjörn kemur
hingað til lands næst. Þá yrði mögu-
legt að svæfa hann og flytja til," segir
Hjörtur.
Það hefur einnig vakið furðu
dýralækna að lögreglumenn hafi
ekki notast við fjór- eða sexhjól til að
fylgjast með ferðum bjarnarins og
telja að hugsanlega hefði verið hægt
að hafa betri gætur á honum með
þeim hætti. Lögreglan vísaði aftur
á móti til laga um utanvegaakstur í
því sambandi. Það kann þó að skjóta
skökku við þegar kemur að dýri í út-
rýmingarhættu.