Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNf 2008
NORÐURLAND DV
Kappróður Þessir ungu sveinar æfðu
kappróður fyrir keppni á sjómannadag á
meðan meðiimir í björgunarsveitinni
Strönd undirbjuggu skemmtiatriðin.
Björgunarsveitin Strönd fór í mörg útköll í vetur:
VEÐRIÐVAR ERFITTIVETUR
Björgunarsveitin Strönd á Skaga-
strönd sinnir hafsvæðinu frá Horni
og út fyrir Staðartá. „Við erum býsna
vel mannaðir," segir Bjarni Ottósson
meðstjórnandi í sveitinni. „Á svona
litlum stöðum standa allir saman og
flestir sem vettlingi geta valdið eru í
sveitinni."
Þegar blaðamann bar að garði
við höfnina á Skagaströnd voru
nokkrir meðlimir sveitarinnar í óða
önn að undirbúa hátíðarhöld sjó-
mannadagsins. „HáU'ðin hérna er
á laugardegi fyrir sjómannadag,
með balli um kvöldið. Við erum að
græja hérna stærðar drumb. Á hon-
um verður koddaslagur þar sem sá
Við höfnina Guðmundur, Bjarni,
Kristján, Alex Þór, Magnús og
Brynjar voru í óða önn að undirbúa
skemmtiatriði sjómannadagsins.
sem tapar endar í köldu baði," held-
ur hann áfram. Strákarnir benda út
fyrir höihina þar sem lítinn bát ber
við sjóndeildarhring. „Þarna eru
krakkarnir að æfa kappróður. Þetta
verður hörkukeppni."
Strákarnir segja að nokkuð mikið
hafi verið um útköll í vetur enda hafi
veður verið válynd. „Við þetta bæt-
ist að við sjáum um Hveravelli inni
á Kili og förum þangað aðra hverja
helgi," bætir Kristján Guðjónsson
við. Strönd hefur yfir tveimur bát-
um að ráða og prýðilegum bílakosti,
þar á meðal nýlegum Land Cruiser-
jeppa með nauðsynlegustu breyt-
ingum.
Björgimarsveitin Strönd sinnir
margvíslegum verkefnum, allt frá
því að leita uppi hraktar rjúpna-
skyttur og upp í að bjarga skips-
áhöfnum í stórviðrum. Fjáröflun
fyrir sveitina fer fram meðal sam-
hentra bæjarbúa. „Það er haldinn
basar með reglulegu millibili þar
sem allir leggja eitthvað til. Svo sjá-
um við náttúrulega um flugelda-
söluna hérna þegar dregur nær
áramótum," segir Bjarni. Á meðan
björgunarsveitarmennirnir bisa við
að koma trjádrumbinum í horf fyrir
koddaslaginn liðast róðrarbáturinn
inn í höfnina með taktföstum köll-
um kafteinsins.
•
imr b. rr\(krc
A /•■
IV