Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2008, Blaðsíða 51
DV Umræða
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNl 2008 51
Minusinn fær Bláa lónið fyrir
að rukka 2.300 krónur fyrir
eina einustu heimsókn.
\ - y
SPURNINGIN
VAR BANGSI Á
ÞÍNUM VEGUM?
„Það er ókurteisi að taka svona við
kveðju frá Grænlandisegir Stefán
Hrafn Magnússon ísbjamabani og
hreindýrabóndi á Grænlandi.
Hvítabjöm var skotinn til bana á
Þverfjalli i gær en hann er sá fyrsti sem
hér sést síðan ísbjörn var hengdur á
sundi við (safjarðardjúp árið 1993.
Heilbrigðisþjónustu
kollvarpað?
Síðastliðinn laugardag splæstu ís-
lenskir skattborgarar í stóra auglýs-
ingu í Morgunblaðinu. Þar auglýsti
ríkisstjórnin eftir forstjóra í svokall-
aðri „Sjúkratryggingastofhun". Þetta
er stofnun sem fáir þekkja enda er
hún ekki til.
Rétt áður en alþingismenn fóru
í jólafrí mætti Guðlaugur Þór heil-
brigðisráðherra í þingsal með harla
óvenjulegt þingmál. Það fól í sér
heimild til að ráða formann í stjóm
„Sjúkratryggingastofnunar". Ekkivom
allir tilbúnir að samþykkja að veita
ráðherranum þessa heimild.
Ráðherra á hlaupum
Heilbrigiðsráherra sagði að von
væri á slíku írumvarpi með vorinu
og gæfist þingheimi góður tími til að
ræða lagaumgjörð nýrrar stofnunar
áður en frekar yrði að gert. Að sinni
nægði sér að ráða stjómarformann-
inn og skipa stjóm yfir hina ófæddu
stofnun. Svo fór að ráðherrann fékk
sínu ffamgengt. Hitt veit ég að innan
stjórnarliðsins ekki síður en í stjórn-
arandstöðu mislíkaði mönnum þessi
vinnubrögð.
En nú leið og beið og hvergi ból-
aði á frumvarpinu. Fáeinum dögum
fýrir þinglok nú birtist svo ráðherra
loks með ffumvarpið og vildi að þing-
ið samþykkti málið í snarhasti. Fmm-
varpið var sent út til umsagnar áður
en það var komið til nefndar, nokkuð
„Sífellt fleiri hafa
nefnilega uppi efa-
semdir um að heil-
brigðisráðherrann sé
á réttri braut."
ÖGMUNDUR JÓNASSON
alþingismadurog
formadur BSRBskrifar
sem er í engu samræmi við þingsköp
ogþingvenjur.
Hófst nú mikið tog í þinginu við
ráðherrann og fór svo að lokum að
ákveðið var að láta málið bíða til
haustsins. Þetta skýrir Moggaauglýs-
inguna en þar er umsóknarfrestur
fýrir forstjórastarfið framlengdur til
15. september nk. Þing kemur aftur
saman í septemberbyrjun og gengur
heilbrigðisráherrann greinilega út ffá
því sem vísu að fá sínu fljótíega ffam-
gengt.
Slæm reynsla Breta
En mun það gerast? Sífellt fleiri
hafa nefhilega uppi efasemdir um
að heilbrigðisráðherrann sé á réttri
braut.
Hér á landi var nýverið staddur
prófessor við háskólann í Edinborg,
Allyson Pollock, sem hefur sérhæft sig
í skipulagsbreytingum innan breska
heilbrigðiskerfisins. Það var sláandi
að heyra hana lýsa reynslu Breta,
hvemig umfangsmiklar kerfisbreyt-
ingar hafa verið ffamkvæmdar skref
fýrir skref, alltaf á þeirri forsendu að
einungis væri um tæknilegar breyt-
ingar að ræða. Á endanum stefnir
hins vegar í að Bretar sitji uppi með
markaðsvætt kerfi, dýrara og óhag-
kvæmara.
Pollock sagði örlagaríkasta skref-
ið hafa verið stigið þegar aðgreint var
„kaupendahlutverk" ríkisins ffá „selj-
anda" þjónustunnar. Þetta hafi öðm
ffemur greitt götu markaðsvæðing-
arinnar, að mestu án opinberrar um-
ræðu.
Að endurtaka mistök annarra
Nákvæmlega þetta er verið að gera
hérlendis með tilkomu hinnar nýju
stofnunar sem á að verða eins konar
verslunarmiðstöð í heilbrigðiskerf-
inu.
Allt er þetta látið hljóma afar vel á
yfirborðinu, en hví er ekld meiri og ít-
arlegri umræða um málið? Getur ver-
ið að Guðlaugur Þór óttist gagnrýna
umræðu og það skýri hvers vegna
lagaffumvörpin birtast þinginu allt-
af á síðustu rnetmrn þinghalds þegar
enginn tími gefst til umræðu?
Spyr sá sem ekki veit. Hitt veit ég
að í sumar þarf þjóðin að taka ítarlega
umræðu um hvert hún vill að hald-
ið verði með heilbrigðiskerfið og þá
hvort saman fari hugmyndir þjóðar-
innar og hugmyndir heilbrigðisráð-
herra.
Sandkassinn
Ásgeir Jónsson veltir hlutunum
fyrir sér
MERKILEGIR andskotar þessir lækn-
ar. Ég er leikmaður Aftureldingar í
handbolta og hef átt við bakverki
að stríða í vetur. Þetta hefur aftrað
mér frá því að
æfa af fullum
krafti og ég hef
stífnað þrisvar
sinnum upp. Ég
fór svo í mynda-
töku sem leiddi í
ljós að ég er með
útbungun milli
tveggja hryggj-
arliða í baki. Þetta þýðir að vegna
álags er komin rifa á púðann milli
hryggjarliðanna sem er hægt að
segja að sé eins konar byrjunarstig
brjóskloss.
ÞESSU KOMST ég samt ekki að fýrr en
fyrir tveimur dögum þegar ég fór
og hitti baksérfiæðing. Þrátt fýrir að
hafa farið til bæklunarlæknis tvisv-
ar og í myndatöku fýrr í vetur datt
honum ekki í hug að útskýra þetta
fyrir mér. Að ef ég passaði ekki upp
á bakið á mér og myndi vinna í því
að koma þessari útbungun til baka
gæti það vel endað með brjósklosi.
Ég rambaði
innáþenn-
an sérfræðing
fýrirhálfgerða
slysniog hann
sagði mér eftir
fimmmínútna
greiningu hvað
væriaðoghvað
ég þyrfti að
gera. En helvítis bæklunarlæknir-
inn sagði bara við mig: „Haltu bara
áfram hjá sjúkraþjálfaranum."
ALVEG MERKILEGT hvað það er hægt
að vera kærulaus um heilsu ein-
staklings. Sérstaklega þar sem ég
er íþróttamaður og þetta gæti gert
út um ferilinn
hjá mér ef ég
bregst ekki rétt
við. Bregðist ég
hinsvegarrétt
við og fái rétta
meðhöndlun er
þetta eitthvað
seméggetsigr-
ast á. Það sem
ég er að reyna að segja er að ef þið
lendið einhvem tímann í einhvetju
svona, þá er um að gera að ganga á
læknana og komast að því hvernig
hlutimir em í raun og vem. Því af
minni reynslu þarf maður að draga
það upp úr þeim og þeir tala við
mann eins og maður sé sjálfur bú-
inn með 10 ár í læknisffæði.
-hvað er að frétta?