Fréttablaðið - 08.04.2016, Blaðsíða 2
Varðandi óskir
ríkisskattstjóra þá
er lögmaður okkar
að svara því
erindi.
Jóhannes Kr. Krist-
jánsson, ritstjóri
Reykjavik Media
Veður
Í dag verða austan 13 til 18 metrar á
sekúndu og rigning á sunnanverðu
landinu. Fyrir norðan verða 8 til 13
og lítilsháttar skúrir eða él. Hiti 3 til 8
stig, en svalara norðaustan til.
sjá sÍðu 20
Rafknúin sjálfrennireið
Verkfræðinemar við Háskóla Íslands kynntu í gær nýjan rafknúinn kappakstursbíl á Háskólatorgi sem keppa mun í árlegri hönnunar- og kapp-
aksturskeppni á Silverstone-brautinni á Englandi. Árið 2011 tók liðið fyrst þátt í keppninni og hefur tekið þátt árlega. Fréttablaðið/Vilhelm
sVÍÞjÓð Tveir æðstu yfirmenn
sænskra skattayfirvalda gripu inn
í og reyndu að hafa samband við
fyrrverandi ráðuneytisstjóra í utan-
ríkisráðuneytinu, Frank Bel frage,
til að vara hann við að fréttaskýr-
ingaþáttur sænska ríkissjónvarps-
ins, Uppdrag granskning, væri að
skoða tengsl hans við Panama-
skjölin svokölluðu.
Belfrage var fyrrverandi sam-
starfsmaður yfirmannanna tveggja
hjá skattinum er þeir störfuðu fyrir
sænska stjórnarráðið.
Ofangreint kom fram í Uppdrag
granskning sem sýndur var í Svíþjóð
á miðvikudagskvöld.
Í kjölfar útsendingar þáttarins
hafa sænsk skattayfirvöld tilkynnt
að rannsókn eigi að fara fram innan-
húss með aðstoð utanaðkomandi.
Skoða eigi málið bæði út frá laga-
legri hlið þess og siðferðislegri. – ibs
Yfirmenn vildu
vara félaga við
skattarannsókn
VORIÐ ER KOMIÐ
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Opið kl. 11 - 18 virka daga
Opið kl. 11 - 16 laugardaga
VELDU
GRILL
SEM EN
DAST
OG ÞÚ
SPARA
R
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrandi lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Einnig til 2ja brennara svart,
4ra brennara svart og rautt
Er frá Þýskalandi
Niðurfellanleg
hliðarborð
Einnig til svart
hvítt og grátt
Landmann gasgrill
Triton 3ja brennara
10,5
KW 98.900
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
GASGRILL Í 50 ÁR
Efnahagsmál Nýr rammi peninga-
stefnunnar eftir losun fjármagns-
hafta hefði áfram stöðugt verðlag að
meginmarkmiði og það yrði útfært
með formlegu og tölusettu verð-
bólgumarkmiði eins og nú er.
Þetta kom fram í máli Más Guð-
mundssonar seðlabankastjóra á
aðalfundi Samtaka atvinnulífsins
(SA) í gær.
Yfirskrift fundarins var „Fíllinn
í herberginu“ og þar vísað til efna-
hagslegs óstöðugleika sem sögulega
hefur stafað af krónunni.
Í ræðu sinni fór Már yfir brota-
lamir við stjórn peningamála fyrir
hrun og sögu gjaldmiðilsins. Með
flotgengisstefnu sem tekin var upp
2001 hafi átt að forðast inngrip á
fjármálamarkaði, fjármálaeftirlit
átti að sjá til þess að einstakar fjár-
málastofnanir væru í lagi og ríkis-
fjármálin hlutlaus yfir hagsveifl-
una. Markaðir myndu svo sjá um
afganginn. „Það reyndist ekki svo,“
sagði Már.
Nýr rammi segir hann að feli í sér
„stýrt flot“ krónunnar, sem án til-
tekins gengismarkmiðs hefði það að
markmiði að dragar úr óhóflegum
sveiflum á gengi gjaldmiðilsins
vegna tímabundins fjármagnsinn-
streymis og draga úr skammtíma-
flökti á gengi.
Már áréttaði að lokum að nýr
rammi yrði betri en sá sem við
höfðum fyrir fjármálakreppu.
„En hann verður engin töfra-
lausn.“ Peningastefnan verði áfram
framkvæmd við skilyrði óvissu í
síbreytilegum heimi. „Hún á þó við
flestar aðstæður að geta til lengri
tíma litið skilað okkur verðstöðug-
leika og það er ekki svo lítið.“ – óká
Nýr rammi er
ekki töfralausn
már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Fréttablaðið/ernir
stjÓrnsýsla Ríkisskattstjóri hefur
krafist þess að fá Panama-skjölin
afhent frá Reykjavik Media á grund-
velli 94. greinar tekjuskattslaga.
Þar segir: „Öllum aðilum […] er
skylt að láta skattyfirvöldum í té
ókeypis og í því formi, sem óskað
er, allar nauðsynlegar upplýsingar
og gögn er þau beiðast og unnt er
að láta þeim í té. Ekki skiptir máli
hvort upplýsingarnar varða þann
aðila sem beiðninni er beint til […].
Ríkisskattstjóri sendi bréf til
Reykjavik Media þessa efnis, sem
hefur frest til að taka afstöðu til
kröfunnar. Ríkisskattstjóri vill ekki
gefa upp hvenær sá frestur rennur
út. „Nú bíð ég bara eftir að Reykjavik
Media tjái sig um málið,“ segir Skúli
Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
Reykjavik Media hefur ekki
afhent gögnin og virðist það ekki
standa til á næstunni. „Reykjavik
Media hefur ekkert forræði yfir
gögnunum. Það hafa Alþjóðasam-
tök rannsóknarblaðamanna (ICIJ),“
segir Jóhannes Kr. Kristjánsson, rit-
stjóri Reykjavik Media. „Varðandi
óskir ríkisskattstjóra þá er lögmaður
okkar að svara því erindi.“ Frekari
svör fengust ekki frá ritstjóranum.
Í lagaheimildinni sem ríkisskatt-
stjóri vísar í segir að verði ágrein-
ingur um skyldu aðila geti ríkis-
skattstjóri leitað um hann úrskurðar
héraðsdóms. Gegni einhver ekki
upplýsingaskyldu sinni megi vísa
málinu til rannsóknar lögreglu.
Skúli Eggert segir að ef Reykjavik
Media afhendi ekki gögnin verði
tekið á því þegar þar að komi. „Við
skulum bara sjá til. Þeir verða að fá
að svara fyrst.“
Embættið vill fá gögnin til að
sinna eftirlitsskyldu. „Til að ganga
úr skugga um hvort það kunni að
vera einhver efni til að kanna skatt-
skilin frekar,“ segir Skúli en gefur
engin frekari svör um hvort grunur
um lögbrot sé að ræða. „Þetta er í
eftirlitsskyni.“
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 á mánu-
dag sagði Bryndís Kristjánsdóttir
skattrannsóknarstjóri að þau gögn
sem keypt voru í fyrra séu af svip-
uðum grunni og Panama-skjölin,
en að þau síðarnefndu innihaldi að
einhverju leyti ríkari gögn og fleiri
félög. erlabjorg@frettabladid.is
Skattstjóri krefst þess
að fá Panama-skjölin
Ríkisskattstjóri hefur rétt á að fá Panama-skjölin afhent á grundvelli skattalaga.
Ritstjóri Reykjavik Media tjáir sig um málið og segir skjölin ekki á sínu forræði.
Hægt að leita dómsúrskurðar eða lögreglurannsóknar sé kröfunni ekki svarað.
Skattayfirvöld telja að skjölin sem lekið var frá mossack Fonseca séu ítarlegri en
þau sem keypt voru í fyrra og vilja því komast yfir þau í eftirlitsskyni. mynd/aFp
Nú bíð ég bara eftir
að Reykjavik Media
tjái sig um málið.
Skúli Eggert Þórðar-
son ríkisskattstjóri
8 . a p r Í l 2 0 1 6 f Ö s t u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
F
D
-2
4
C
4
1
8
F
D
-2
3
8
8
1
8
F
D
-2
2
4
C
1
8
F
D
-2
1
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K