Fréttablaðið - 08.04.2016, Side 10
Föstudagsviðtalið
visir.is Viðtalið má hlusta á
í lengri útgáfu á Vísi, í hlaðvarpinu
Föstudagsviðtalið.
KATLA MANAGER SELECTION
Société d'Investissement à Capital Variable
14, boulevard Royal – L-2449 LUXEMBOURG
R.C.S. Luxembourg B 72.942 - (the „SICAV“)
ANNUAL GENERAL MEETING OF SHAREHOLDERS
The Board of Directors is pleased to convene the shareholders of KATLA MANAGER SELECTION to attend the
annual general meeting of shareholders to be held at the registered office of the SICAV on 28 April 2016 at 11.00 a.m.
with the following agenda:
1. Report of the Board of Directors and of the approved statutory auditor
2. Approval of the annual accounts as at 31 December 2015
3. Allocation of the results
4. Discharge to the directors
5. Appointment of the approved statutory auditor
6. Statutory elections
The shareholders are advised that no quorum for the statutory general meeting is required and that decisions
will be taken by simple majority of the votes cast. Proxies are available at the registered office of the SICAV.
Shareholders, who wish to attend the annual general meeting, are requested to inform the Board of Directors
(Fax nr: +352 49 924 2501 – ifs.fds@bdl.lu) at least five calendar days prior to the annual general meeting.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
IÐNAÐAR RYK- OG
BLAUTSUGUR
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
frá Pullman Ermator
Áratuga reynsla á Íslandi!
Made in Sweden
Þetta var ferlegt. Það er ekki hægt að segja annað,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, sem óvart kynnti nýja ríkis-
stjórn á miðvikudagskvöld. Fjöldi
fréttamanna beið niðurstaðna þing-
flokksfunda stjórnarflokkanna.
Höskuldur gekk beint í flasið á frétta-
mönnum. Hann stóð í þeirri trú að
Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni
Benediktsson hefðu þegar lokið við
að kynna nýja ríkisstjórn.
„Við biðum inni í þingflokksher-
bergi eftir langan fund, eftir að Sig-
urður Ingi og Bjarni færu og ræddu
við blaðamenn. Svo gekk ég út og tók
nokkur símtöl. Þegar því lauk ætlaði
ég að ræða við blaðamenn því þeir
höfðu reynt að ná í mig. Ég var á leið-
inni heim. Ég gekk niður og þar mætti
mér meiri fjöldi en ég hafði búist við
og þetta dæmalausa viðtal var tekið.
Þetta var ekki ætlunin. Mér finnst
þetta hálfpartinn leitt,“ segir hann.
Höskuldur segist hafa gert sér
grein fyrir stöðunni í miðju viðtali.
„Kannski hefði maður átt að átta sig
fyrr. En ég fékk spurninguna: Hvenær
koma þeir niður? og þá spurði ég: Eru
þeir ekki komnir? Mér leið ekkert sér-
staklega vel.“
Fordæmalaus staða
Undanfarin vika er fordæmalaus í
stjórnmálasögunni. Greint var frá því
að forsætis-, fjármála- og innanríkis-
ráðherra ættu allir tengsl við félög
á aflandseyjum. Forsætisráðherra
sagði af sér eftir ein stærstu mótmæli
í sögunni. Kastljós erlendra fjölmiðla
beindist að málinu. Sigmundur stend-
ur uppi sem óbreyttur þingmaður,
en heldur formannssæti í Framsókn.
Sigurður Ingi hefur tekið við forsætis-
ráðuneytinu og nýr utanríkisráðherra
verið skipaður, Lilja Alfreðsdóttir.
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi
utanríkisráðherra, er ráðherra land-
búnaðar og sjávarútvegs.
„Þessi vika hefur verið erfið. Ég
held það sé öllum ljóst að ástandið
er krítískt.“
Enn er mótmælt. Eru þessar ráð-
stafanir nægar? „Það held ég. Við
sem sitjum á Alþingi berum skyldur
og ábyrgð á að landinu sé stýrt, líka
þegar það er erfitt. Ég held við höfum
komist að skynsamlegri niðurstöðu.
Ég skil vel kröfuna um kosningar
strax en ég tel að þar sem stutt er eftir
af kjörtímabilinu hefði verið betra ef
við hefðum klárað kjörtímabilið eins
og stóð til. Ég held að flestir stjórn-
málaflokkar hefðu viljað rými til að
gera upp sín mál. “
Minnir um margt á hrunið
Höskuldur segir stöðuna minna um
margt á tímann eftir hrun. „Ég kom á
þing 2007, skömmu síðar varð efna-
hagshrun. Ég sat í viðskiptanefnd.
Við fengum á okkar fundi alla sem
voru að reyna að útskýra hvað væri
að gerast. Stemmingin var svipuð þá
einstaka daga og núna.“
Hann segist vonast til að ráðherra-
skiptin hafi slegið á reiði fólks. „Við
höfum því miður horft upp á það
síðastliðin ár að reiðin sem myndað-
ist þá, það er auðvelt að magna hana
upp aftur. Þó að okkur gangi vel í
efnahagsmálum og við stjórn lands-
ins. Við höfum náð að sigrast á vanda-
málum og koma góðum verkefnum af
stað. Samt er auðvelt að sjá af hverju
fólk verður reitt.“
Segist alfarið á móti aflandsfélögum
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknar, segir erfiða tíma fram undan. Hann segir Sigmund hafa átt að segja af sér þingmennsku
líka. Höskuldur segir að sér hafi ekki liðið vel eftir að hafa óvart tilkynnt blaðamönnum um nýja ríkisstjórn landsins á miðvikudaginn.
Hvernig finnst þér framganga Sig-
mundar hafa verið? „Ég held að hann
hafi verið að gera sitt besta undir
erfiðum kringumstæðum. Ég held
að enginn hafi áttað sig á hver við-
brögðin yrðu. Mér persónulega var
brugðið, ég áttaði mig ekki á því hvert
eðli þessara aflandsfélaga væri.“
Viðtalið við Sigmund í Kastljósi
var tekið þremur vikum áður en það
birtist landsmönnum heima í stofu.
Sigmundur hafði ekki sagt sam-
flokksmönnum sínum frá því.
„Við getum séð eftir á, að það hefði
verið betra ef hann hefði greint frá
þessu. Ég ímynda mér að við værum
þá í annarri stöðu.“
Hefur hann gert nægjanlega grein
fyrir fjármálum sínum? „Ég tel hann
eiga að fá rými til að gera betur grein
fyrir sínum málum. Hann sagði
sjálfur að það væri ástæða til þess að
gera betur grein fyrir sínum málum
og leggja fram gögn, ef þau eru til.“
Hefði átt að stíga skrefið til fulls
Höskuldur segir Sigmund hefðu átt
að stíga skrefið til fulls. „Hann hefði
átt að segja af sér þingmennsku.
Síðan hefði hann haft tækifæri til að
koma aftur tvíefldur. En það er kjós-
enda og stuðningsmanna flokksins
að ákveða hvort hann verði framtíð-
arformaður flokksins. Við erum enn
stödd í hringiðunni, það er havarí á
þinginu og annars staðar. Við eigum
eftir að fá upplýsingar og bíðum eftir
því. Þegar frá dregur vonast ég til að
menn geti rætt hluti á málefnalegan
hátt og menn fái að njóta sannmælis.
Það eiga allir rétt á því.“
Finnst þér hann ekki hafa notið
sannmælis? „Mér finnst að aðstæður
hefðu mátt vera aðrar til að hann gæti
útskýrt mál sitt betur. En ég ætla ekki
að leggja neinn dóm á það. Ég bara
get það ekki.“
Hann segir alla framsóknarmenn
átta sig á því að flokkurinn sé í erfiðri
stöðu. Þeir hafi samt ekki snúið baki
við Sigmundi. „Það held ég ekki. Við
höfum stutt hann. Ég hef stutt hann.
Það er kjósenda okkar að vega og
meta hvort þeir treysta stjórnmála-
mönnum, það er flokksmanna að
vega og meta hvort þeir treysti for-
ystunni.“
Hvernig var að horfa á Kastljós?
Vissirðu að hlutirnir myndu breytast?
„Ég gerði mér grein fyrir því en ekki
hvernig eða í hvaða átt þeir myndu
fara. Ég vissi sem víst að þjóðin yrði
óánægð. Við ættum að taka þessar
upplýsingar alvarlega. Ég held að
tilfinningin hafi verið svipuð og hjá
fólki almennt. Manni var brugðið og
ég var dapur.“
Fundur Sigmundar með forset-
anum vakti furðu. Höskuldur segir
þingflokkinn hafa viljað vita af fyrir-
ætlunum Sigmundar. „En það varð
fjaðrafok. Þegar maður er staddur
í miðri hringiðu þá kannski telur
maður sig vera að gera rétt, sem svo
eftir á reynist rangt.“
Málið skaði ímynd landsins
Rætt hefur verið um skaða sem
málið hefur valdið ímynd landsins.
„Ég held það sé rétt. Hlutabréf hafa
fallið. Fundum verið frestað. Trú-
verðugleiki landsins beðið hnekki.“
Höskuldur telur ekki að Bjarni
Benediktsson þurfi að víkja til að
endurvekja traust. „Hann, eins og
aðrir, þarf að standa frammi fyrir
sínum kjósendum og flokksmönn-
um. Mér finnst hann hafa gert ágæt-
lega grein fyrir sínum málum. Það er
ekkert í mínum huga sem er ósvarað.
Ég treysti honum og er reiðubúinn að
starfa með honum og Ólöfu í ríkis-
stjórn þangað til boðað verður til
kosninga.“
Fannst þér gengið fram hjá þér við
ráðherraskipan? „Nei. Ég hef póli-
tískan metnað en gerði mér grein
fyrir að í svona erfiðri stöðu væri
ágætt að breyta sem minnstu.“
Heldur þú að þessi sár verði gróin
um heilt þegar kjörtímabili lýkur?
„Ég veit það ekki og vil engu spá. Ég
veit að við ætlum að vinna vel fram
að kosningum og nýta þann tíma til
að koma mikilvægum málum í gegn.
Síðan þurfum við að ræða við fólkið í
landinu. Reyna að sannfæra það um
að okkar stefna sé farsælust.“
Hvað finnst þér um félög stofnuð á
aflandseyjum, þó allt sé gefið upp til
skatts í heimalandinu? „Ég er alfarið
á móti slíku.“
Þú átt ekki aflandsfélag?„Nei.“
Gjaldeyrishöftin stærst
Stærsta mál ríkisstjórnarinnar er að
aflétta gjaldeyrishöftum. Hagfræð-
ingur steig fram og sagði Seðlabank-
ann einn geta klárað málið og engrar
aðkomu ráðherra sé þörf. Þessu hafa
þingmenn Sjálfstæðisflokks og aðrir
hafnað. „Það eru örugglega einhverjir
sem gætu leitt þessa vinnu. En það
verður ekki hjá því komist að Bjarni
er vel að sér í þessum málum. Þekkir
hvern krók og kima. Ég held að hann
sé vel til þess fallinn að leiða þetta til
lykta.“
Stjórnarandstaðan leggur fram
vantrauststillögu í dag. Verður starfs-
friður undir þessum kringumstæðum?
„Það verður erfitt að starfa á næst-
unni. Ég held að næsta vika verði
erfið, en svo fer þetta bara eftir því
hvernig þetta þróast. Einhvern tím-
ann verður starfsfriður. Við höfum
lært að vinna undir pressu. Það er
hlutverk stjórnmálamanna.“
Formaður í nokkrar mínútur
Mistök urðu til þess að tilkynnt var
að Höskuldur væri orðinn formaður
Framsóknarflokksins árið 2009. Árið
sem Sigmundur tók við formennsku.
Nokkrum mínútum síðar var mis-
skilningurinn leiðréttur. „Það var
einfaldlega lesið vitlaust upp. Þetta
voru líklega bestu tímar Framsókn-
arflokksins,“ segir hann hlæjandi.
„Mér fannst ólíklegt að svona
færi. Þegar þetta var tilkynnt var ég
á báðum áttum en óneitanlega glað-
ur. Líka kvíðinn. Ég var mjög ungur
þegar ég bauð mig fram til formanns
og óreyndur í pólitík. Þannig að ég
var alveg feginn þegar Sigmundur
var kjörinn formaður. En ég bauð
mig fram því ég vildi leiða flokkinn.
Eftir þetta allt saman horfi ég til baka
með ánægju, það voru fjölmargir
sem vildu styðja mig. Ég var þakk-
látur fyrir það.“
Það vakti einnig athygli árið 2013
þegar Sigmundur bauð sig fram í
Norðausturkjördæmi. Mörgum
fannst hann með því vera að bola
Höskuldi úr oddvitasætinu.
Hvernig upplifðir þú það? „Ég leit
ekki á það þannig.“ Hann segir gott á
milli þeirra Sigmundar. „Ég hef ekki
fundið annað. En við höfum keppt
um embætti. Ég hef alltaf verið reiðu-
búinn að vinna með honum. Hann
hefur treyst mér til góðra starfa.“
Hann vill halda áfram í stjórn-
málum. „Mér finnst ég eiga verk eftir
óunnið. Ég hef áhuga á málefnum
þjóðarinnar. Við hræðumst ekki
kosningar. Það er alltaf vont þegar
þingi er slitið og boðað til kosninga
með stuttum fyrirvara. Vont fyrir
alla, ekki bara Framsókn. Það eru
forsetakosningar í sumar. Það er
EM í fótbolta. Ég held að þjóðin láti
pólitíkina ekki taka EM frá sér,“ segir
Höskuldur, kíminn.
olof@frettabladid.is,
viktoria@frettabladid.is
Höskuldur Þórhallsson telur Sigmund hafa verið að gera sitt besta undir erfiðum kringumstæðum. Fréttablaðið/Ernir
Ég held að tilfinn-
ingin hafi verið
svipuð og hjá fólki almennt.
Manni var brugðið og ég var
dapur.
8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
F
D
-3
3
9
4
1
8
F
D
-3
2
5
8
1
8
F
D
-3
1
1
C
1
8
F
D
-2
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K