Fréttablaðið - 08.04.2016, Síða 16
Jákvæðasta og
lífsglaðasta stelpa
sem maður kynnist
Ingvar Þór Guðjónsson, þjálfari
Haukaliðsins, er ánægður
með Shönnu sem hefur
verið í kringum Haukaliðið frá því
síðasta haust. Shanna fékk ekki
keppnisleyfi fyrr en um áramót
en þá voru Haukarnir búnir að
semja við Chelsie Schweers.
„Hún var ekki með leikheimild
fyrir áramót. Um leið og karla-
liðið skiptir um Kana og við
tókum Chelsie þá datt hennar
leikheimild inn. Hún hafði því
takmarkaðar mínútur á
meðan Chelsea var með
okkur. Hún er fyrst og
fremst hér á landi af því
að hún er í meistara-
námi í HR,“ sagði Ingvar.
Haukar létu Chelsea fara
og fengu sér ekki annan
bandarískan atvinnumann.
Shanna kom þó ekki strax inn í
Haukaliðið af fullum krafti.
„Eftir að Chelsea fór þá fór hún
í smá ferðalag og var að gera ein-
hverja auglýsingu fyrir 66°Norður
uppi á Langjökli. Svo kom hún
inn og er búin að vera á fullu
með okkur,“ segir Ingvar og hann
hrósar henni mikið.
„Hún er ofboðslega vel liðin
innan liðsins og þessi stelpa er
alveg yndisleg. Þetta er jákvæð-
asta og lífsglaðasta stelpa sem
maður kynnist. Það er frábært
að fá slíkan leikmann inn í liðið
og hún var frábær í síðasta leik.
Þetta er stórkostlegur karakter,“
segir Ingvar.
Í dag
17.50 Fylkir - KR Sport 3
19.00 Masters Golfstöðin
19.00 Tölt og flugskeið Sport
19.10 Grindavík - Haukar Sport 2
00.30 Dallas - Memphis Sport
Dominos-deild kvenna
19.15 Grindavík - Haukar
Lengjubikar karla
18.00 Fylkir - KR Valsvöllur
19.00 Keflavík - FH Reykjanesh.
frábær viðurkenning
Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska
karlalandsliðsins í handbolta, og
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska
kvennalandsliðsins, voru í gær
útnefndir þjálfarar ársins 2015.
frá þessu er greint á heimasíðu
Alþjóðahandknattleikssambands-
ins en þetta eru úrslit úr kosningu
sérfræðingahóps, fjölmiðla og
þúsunda atkvæða handbolta-
áhugamanna.
Dagur, sem gerði ungt og
meiðslum hrjáð þýskt landslið
óvænt að evrópumeisturum í janú-
ar, fékk 59,1 prósent atkvæða og
var langt á undan norðmanninum
Christian berge, þjálfara noregs,
sem varð annar í kosningunni með
29,8 prósent atkvæða.
Þórir, sem gerði norsku stelp-
urnar að heimsmeisturum í
desember á síðasta ári, varð hlut-
skarpastur í kosningunni í fjórða
sinnið, en hann vann einnig árin
2011, 2012 og
2014.
Þórir fékk 48,8
prósent atkvæða
og var rétt á
undan Henk
groener,
þjálfara
hollenska
landsliðsins
sem spilaði
úrslitaleik-
inn á móti
noregi á
heimsmeistara-
mótinu.
Shanna Lei Dacanay með boltann í þriðja leik Hauka og Grindavíkur á Ásvöllum en
hér sækir Grindvíkingurinn Björg Einarsdóttir að henni. Shanna átti mikinn þátt í
frábærum spretti Haukaliðsins sem sprengdi upp leikinn. FRéTTaBLaðið/ERniR
Körfubolti Deildarmeistarar
Hauka í kvennakörfunni grófu sér
djúpa holu í undanúrslitaeinvígi
sínu á móti grindavík með því að
tapa tveimur fyrstu leikjunum. Það
var allt annað að sjá til liðsins í síð-
asta leik og þar munaði miklu um
innkomu 28 ára stelpu frá Havaí.
Shanna Dacanay er langt frá því
að vera dæmigerður bandarískur
leikmaður í íslenska körfubolt-
anum og í raun má deila um það
hvort hún teljist hreinlega með
sem slíkur. Shanna kom nefnilega
ekki til Íslands til að spila körfu-
bolta heldur til að læra meira um
endurnýjanlega orku og sækja sér
meistaranám í Hr.
„Þetta er mjög óvænt ævintýri
fyrir mig en ég er jafnframt mjög
þakklát fyrir þessa reynslu,“ segir
Shanna Dacanay um komu sína til
Íslands.
Þrjár vikur að átján mánuðum
„Ég kom til Íslands í júlí 2015 og
var þá að elta ástríðu mína varð-
andi endurnýjanlega orku. Ég
mætti á þriggja vikna námskeið hjá
Háskólanum í reykjavík. Ég hafði
gaman af náminu, naut þess að
vera á Íslandi og kunni svo vel við
fólkið á Íslandi að ég greip tæki-
færið þegar það opnaðist mögu-
leiki fyrir mig að vera lengur,“
sagði Shanna. Hún er í meistara-
námi í sjálfbærri orkuverkfræði (e.
sustainable energy engineering).
„Ég er að læra allt um jarðhitaorku
og Ísland er fullkominn staður fyrir
það nám,“ segir Shanna.
„Þetta áttu bara að vera þrjár
vikur á Íslandi en núna verða
þetta átján mánuðir,“ segir Shanna.
bróðir emil barja, fyrirliða kar-
laliðs Hauka, hafði klárað sama
nám og Shanna í Háskólanum í
reykjavík. „Ég forvitnaðist um það
hjá honum hvort það væri einhver
leið fyrir mig til að komast í körfu-
bolta,“ segir Shanna og hann benti
henni á að fara í Hauka og hafa
samband við einhverja sem hét
Helena. „Ég vissi ekki þá hver hún
var,“ segir Shanna hlæjandi.
Eins og fjölskylda hennar í dag
Shanna spilaði körfubolta, bæði í
menntaskóla á Havaí sem og með
Washington university í 3. deild
háskólaboltans í bandaríkjunum.
„við komumst í úrslitaleikinn á
lokaárinu mínu en töpuðum,“ segir
Shanna sem útskrifaðist árið 2009.
„Haukastelpurnar buðu mér að
vera með og ég er svo þakklát fyrir
að fá að vera hluti af liði á ný. Ég
fæ að spila körfubolta á ný sem
er íþrótt sem ég elska. Haukarnir
eru eins og fjölskyldan mín í dag,“
segir Shanna. Hún þurfti samt að
vera þolinmóð því hún hefur ekki
fengið mikið af mínútum. „Ég mæti
bara á ásvelli og er himinlifandi
með að fá bara að æfa með stelp-
unum. Ég fæ að spila körfubolta
á hverjum degi og með frábærum
liðsfélögum. Þessar stelpur eru
orðnar góðar vinkonur mínar
núna,“ segir Shanna.
Með strætó á æfingar
Hún er bíllaus og tekur oftast strætó á
æfingar. „Stundum fæ ég far á æfingar
með Helenu, Pálínu eða Auði,“ segir
Shanna. Hún býr á Havaí þegar hún
er ekki á Íslandi og þar er fjölskylda
hennar. Hún reynir að vera í sam-
skiptum við fjölskylduna sem er
hinum megin á hnettinum.
„Ég tala mikið við fjölskyldu mína
en það er tíu tíma mismunur. Þegar
þau er að enda daginn sinn þá er
minn að byrja,“ segir Shanna sem
hefur ferðast mikið um Ísland. „Ég
mun alltaf getað talað vel um Ísland,“
segir Shanna.
Haukar voru 2-0 undir í einvíginu
og 10-7 undir í leiknum þegar Shanna
kom inn á eftir rúmlega sex mínútna
leik. Þegar hún settist á bekkinn aftur
var staðan orðin 26-2. Haukarnir
höfðu unnið mínúturnar átta 19-2.
Frá Havaí í HR og svo
til hjálpar Haukum
eftir það voru Haukarnir með örugg
tök á leiknum og unnu á endanum
stóran sigur
„við urðum að spila okkar besta
leik þetta kvöld ef við ætluðum að fá
fleiri leiki í vetur. Ég reyndi að leggja
mitt af mörkum og gera mitt besta.
Ég ætlaði að vera ákveðin og spila
smitandi vörn. Ég hef reynslu frá ferli
mínum og reyni að minna þessar
ungu stelpur á hvað þær geta gert,“
segir Shanna.
Mamman sú jákvæðasta
Þjálfari og leikmenn liðsins segja
Shönnu koma með mjög jákvæða
strauma inn í liðið. „Ég reyni alltaf
að vera jákvæð og ég lærði það af
mömmu minni. Hún er jákvæðasta
manneskja sem ég þekki,“ segir
Shanna af einlægni.
Haukar eru enn undir í einvíginu
og verða að vinna í grindavík í kvöld
ef þær ætla að fá oddaleik og sleppa
við sumarfrí. góð innkoma Shönnu
í síðasta leik ætti að kalla á fleiri mín-
útur í framhaldinu.
„Það er ekkert öruggt að ég fái að
spila meira í næsta leik en ég verð til-
búin ef það er þörf fyrir mig. Ég mun
gefa allt mitt eins og síðast,“ segir
Shanna.
„Það yrði stórkostlegt að vinna
Íslandsmeistaratitilinn með liðinu en
það er löng leið eftir og eins og staðan
er núna þá erum við bara öruggar
með að fá einn leik til viðbótar. við
ætlum að undirbúa okkur eins vel
og hægt er og spila með hjartanu á
morgun (í kvöld). Ég hef trú á þessu
liði,“ segir Shanna að lokum. Leikur
grindavíkur og Hauka hefst klukkan
19.15 í grindavík í kvöld.
ooj@frettabladid.is
Ég fæ að spila
körfubolta á hverj-
um degi og með frábærum
liðsfélögum. Þessar stelpur
eru orðnar góðar vinkonur
mínar núna.
Shanna Dacanay, leikmaður Hauka
Shanna Dacanay var ásinn uppi í erminni hjá Hauka
konum í erfiðri stöðu á móti Grindavík í undan
úrslitum Domino’sdeildar kvenna í körfubolta. Hún
er frá Honolúlú, í námi í HR og spilar nú dýrmætar
mínútur í úrslitakeppninni með Haukaliðinu.
Nýjast
Evrópudeild, 8 liða úrslit
Dortmund - Liverpool 1-1
0-1 Divock Origi (36.), 1-1 Mats Hummels
(48.).
Þetta var fyrri leikur liðanna.
Braga - Shaktar 1-2
0-1 Yaroslav Rakitskyi (44.), 0-2 Facundo
Ferreyra (75.), 1-2 Wilson Eduardo (89.).
Þetta var fyrri leikur liðanna.
Villarreal - Sparta Prag 2-1
1-0 Cedric Bakambu (3.), 1-1 Jakub Brabec
(45.+4), 2-1 Cedric Bakambu (63.)..
Þetta var fyrri leikur liðanna.
athletic - Sevilla 1-2
1-0 Aduriz (47.), 1-1 Timothee Kolodziejczak
(56.), 1-2 Vicente Iborra (83.).
Þetta var fyrri leikur liðanna.
Domino’s-deild karla, undanúrslit
njarðvík - KR 88-86
njarðvík: Haukur Helgi Pálsson 27/6 frá-
köst, Logi Gunnarsson 23/4 fráköst/5
stoðsendingar, Maciej Stanislav Baginski
19, Ólafur Helgi Jónsson 7, Oddur Rúnar
Kristjánsson 5/7 stoðsendingar, Jeremy
Martez Atkinson 5/8 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Hjörtur Hrafn Einarsson 2.
KR: Darri Hilmarsson 28/9 fráköst, Pavel
Ermolinskij 17/12 fráköst/5 stoðsendingar,
Michael Craion 15/7 fráköst, Snorri Hrafn-
kelsson 10/4 fráköst, Helgi Már Magnússon
7/7 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 6/5 stoð-
sendingar, Björn Kristjánsson 3.
Staðan í einvíginu er 1-1.
8 . a p r í l 2 0 1 6 f ö S t u D a G u r16 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
F
D
-4
2
6
4
1
8
F
D
-4
1
2
8
1
8
F
D
-3
F
E
C
1
8
F
D
-3
E
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K