Fréttablaðið - 08.04.2016, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ég hef til að mynda
talað við ráða-
menn þjóðarinnar er sinna
menntamálum og einnig hef
Ég rætt við margrÉti
frímannsdóttur, fyrrver-
andi forstöðumann á
litla-hrauni.
„Ég er að vinna að heimildarmynd
um lesblindu. Ég er sjálf lesblind
og veit því hvað það er og hvað þú
þarft að leggja á þig í skóla. Það
eru margir sem vita ekki hvað les-
blinda er og hvernig hún virkar og
vil ég útskýra það einnig fyrir þeim,“
segir söngkonan Sylvia Erla Melsted,
sem nú rær á ný mið í samvinnu
við Sagafilm og stígur þar með sín
fyrstu spor í heimildarmyndavinnu.
Myndin er væntanleg til sýninga í
lok sumars.
Aðspurð hvernig slíkt komi til, sér
í lagi í ljósi þess að hún er á blúss-
andi ferð að byggja upp tónlistar-
ferilinn sinn akkúrat núna, svarar
hún að sig hafi einfaldlega langað
að sýna fólki að hægt væri að snúa
lesblindunni sér í vil. Sjálf segist
hún aldrei hafa orðið fyrir aðkasti
hennar vegna né hafi hún átt erfitt
með að sætta sig við hlutskiptið, en
bæði hafi hún talað við og heyrt af
öðrum sem ekki hafi átt jafn auðvelt
með það. Hún sé þannig mjög opin
fyrir lesblindunni og sé afar glöð yfir
að hafa fengið það verkefni í lífinu.
„Mig langar að sýna að það er hægt
að snúa þessu verkefni sem maður
fær í lífinu á jákvæðan hátt og gera
það besta úr því sem maður fær.“
Sylvia hefur sumsé eytt undan-
förnum mánuðum í heimildarvinnu
samhliða námi sínu við Verzlunar-
skóla Íslands og námi í óperusöng.
Hefur hún ekki gefið sér neinn
afslátt þrátt fyrir það og líklega á
hún fleiri klukkustundir í sínum
sólarhring en flest okkar hinna. „Ég
hef til að mynda talað við ráðamenn
þjóðarinnar er sinna menntamálum
og einnig hef ég rætt við Margréti
Frímannsdóttur, fyrrverandi for-
stöðumann á Litla-Hrauni,“ segir
hún og undirstrikar að öllu máli
skipta að styðja vel við fólk sem á
við einhvers konar námsörðugleika
að stríða.
„Ég geri mér grein fyrir því að
ég var mjög heppin í lífinu að eiga
mömmu sem studdi mig þúsund
prósent og ég fékk hjálp frá frá-
bæru fólki sem á stóran part í því
að mér gengur vel í skóla í dag. Og
ekki hvað síst þegar við horfum til
þess að ég er að útskrifast úr Verzló
í vor,“ segir hún og ljómar öll.
Hún segir jafnframt að með hjálp
mömmu sinnar og kennara hafi hún
áttað sig á að trúin á sig sjálfa væri
það sem öllu skipti. „Oft var þetta
þannig að sama hvað ég lærði mikið
og setti allt líf mitt á „hold“ fyrir lær-
dóm þá uppskar ég ekki eins og ég
sáði. Þegar ég fór svo til Áslaugar
Ásgeirsdóttur lesblindukennara
sagði hún einfaldlega við mig; „til
hamingju með að vera lesblind.“
Það eru nefnilega margir kostir sem
lesblindir hafa umfram aðra. Boð-
skapur heimildarmyndarinnar er
að fá fólk til að horfa á það sem við
höfum, en ekki einblína á það sem
við höfum ekki.“
Og það hefur Sylvia svo sannar-
lega gert, en eins og áður segir lýkur
hún stúdentsprófi frá Verzló í vor og
er samhliða því á bólakafi í að sinna
stígur sín
fyrstu skref í
heimildarmyndagerð
Sylvia Erla Melsted söngkona sendir frá sér nýtt myndband á
sunnudag, samhliða því að vera á bólakafi í að undirbúa frumraun
sína í heimildarmyndagerð. Hana langar að fá fólk til að sjá lesblindu
í jákvæðu ljósi og er þakklát fyrir að hafa fengið það verkefni í lífinu.
„Til hamingju með að vera lesblind,“ eru orð kennara Sylvíu. Hún mun halda þeim
á lofti í myndinni sem væntanleg er í lok sumars. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
tónlistarkölluninni. Hún mun til að
mynda senda frá sér myndband við
lagið Gone á sunnudaginn, þar sem
öllu hefur verið til tjaldað og er í
leikstjórn Sögu Sigurðardóttur. „Ég
fékk Stellu Rózenkranz til að sjá um
kóreógrafík og er með mjög góðan
hóp dansara með mér,“ segir hún og
segir fólk mega eiga von á góðu án
þess þó að upplýsa mikið meira um
það. Myndbandið verður frumsýnt
á Vísi á sunnudaginn.
gudrun@frettabladid.is
8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r30 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
F
D
-3
3
9
4
1
8
F
D
-3
2
5
8
1
8
F
D
-3
1
1
C
1
8
F
D
-2
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K