Málfregnir - 01.11.1987, Blaðsíða 2

Málfregnir - 01.11.1987, Blaðsíða 2
Norrænn málréttarsamningur Norrænu ríkin, Danmörk, Finnland, ísland, Noregur og Svíþjóð, hafa nú öll fullgilt samning um „rétt norrænna ríkis- borgara til að nota eigin tungu í öðru norrænu landi“ eins og það hefir verið orðað. Þessi samningur, sem opinber- lega er nefndur „norræni tungumála- samningurinn", var undirritaður á Borg- undarhólmi 17. júní 1981. Alþingi álykt- aði 18. mars sl. að heimila ríkisstjórn- inni að fullgilda samninginn, og var það gert 21. maí í vor. Hann öðlaðist gildi fyrir íslendinga 25. júlí sl., en 1. mars í hinum aðildarríkjunum. Málréttar- samningurinn nær ekki til Álandseyja og Færeyja. Þessi samningur er þannig til kominn að upphaflega var leitast við að leysa vanda finnskumælandi Finna, sem starfa í Svíþjóð. Síðar var stefnt að undirbún- ingi samnings sem hefði víðtækara gildi. Tilgangurinn er að auðvelda Norður- landabúum samskipti sín innbyrðis, bæði þeim sem eru á ferðalagi og hinum sem flytjast búferlum milli landa. Málin, sem samningurinn tekur til, eru danska, finnska, íslenska, norska og sænska. Samningurinn gildir bæði um munnleg og skrifleg samskipti við yfir- völd og aðrar opinberar stofnanir, þó ekki um samskipti símleiðis. Setjum svo að íslenskur ríkisborgari eigi erindi við stjórnvöld eða opinberar stofnanir í Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð. Þá ber þeim stofnunum að gera það sem í þeirra valdi stendur til að hann megi nota íslensku í viðskiptum sínum við þær. Þetta á til dæmis við um dómstóla, sjúkrahús og heilsuverndar- stofnanir, yfirvöld sem fara með atvinnu- mál og félagsmál, skattayfirvöld, lög- reglu og skólayfirvöld. í sakamálum skal veita norrænum þegnum þá aðstoð túlka sem nauðsynleg er. Hvert samningsríki hefir tilnefnt opin- bera stofnun til að sjá um að samn- ingnum sé framfylgt og efla norræna samvinnu f þeim efnum sem hann tekur til. Dómsmálaráðuneytið fer með það hlutverk á íslandi og samsvarandi ráðu- neyti í Danmörku og Finnlandi. í Noregi er það atvinnumálaráðuneytið (Kom- munal- og arbeidsdepartementet) og sænska innflytjendastofnunin (Statens invandrarverk) í Svíþjóð. - BJ 2

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.