Vestfirska fréttablaðið - 18.10.1976, Blaðsíða 2
2
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Árni Sigurðsson.
Útgefandi
Árni Sigurðsson. Prentun Prentstofan fsrún
hf. ísafirði.
Grein ó louígum meiði
Aldarfjórðungur, 25 ár, er ekki langur tími
mældur á mælistiku tímans. Mun því, trúlega af
ýmsum lítil ástæða talin til, að minnast tíma-
móta að liðnum 25 árum. Svo vill til að 25. okt.
n.k. eru 25 ár liðin frá því að stofnuð var hér á
ísafirði „Hjálparsveit skáta“. Sveit þessi hefur
ekki látið mikið yfir sér, en unnið heillaríkt starf.
Hópurinn sem stofnaði sveit þessa, var ekki
stór, 14 einstaklingar. Skilyrði fyrir inntöku í
sveitina voru að viðkomandi væri meðlimur í
skátafélaginu Einherjum, hefði náð 17 ára aldri
og lokið sérprófinu „Hjálp i viðlögum“. Þess var
ekki langt að bíða, að leitað yrði aðstoðar
sveitarinnar sem var leit að mönnum, sem ekki
höfðu komið til síns heima. Starf sveitarinnar
hefur verið með ýmsum hætti, leitað hefur verið
að fólki, aðstoðað við björgunarstörf úr
strönduðum skipum, námskeið haldin í hjálp í
viðlögum, fyrir almenning og í skólum, aðstoð
veitt á Landsmótum skíðamanna og Skíða-
vikum, varsla við tjaldstæði á 100 ára afmæli
kaupstaðarins o.fl.o.fl.
Snemma aflaði sveitin sér tækja til að auð-
velda námskeðahald, svo sem með kaupum á
kvikmyndasýningarvél, kvikmyndum, litskyggn-
um o.fl. Aðalhvatamaður þessa var fyrsti sveit-
arforinginn, Hafsteinn O. Hannesson, en hann
hafði aflað sér þekkingar a vegum almanna-
varna ríkisins um fræðslustarf í Danmörku, á
því sem veit að slysavörnum og aðstoð á slysstað.
Þá var og í upphafi keypt tæki til kennslu á
lífgun úr dauðadái með „munn við munn“
aðferðinni, en sú lífgunaraðferð hefur mörgum
bjargað úr dauðadái.
Af þessu sést að sveitin hefur á starfstíma
sínum lagt ríka áherslu á að afla sér nauðsyn-
legra tækja til að auðvelda starfið. I fyrstu voru-
tækjakaupin smá, því meðlimir sveitarinnar
báru kaupin uppi með eigin framlögum. Fljót-
lega naut þó sveitin aðstoðar vinveittra einstak-
linga og félaga, sem skildu starf hennar. Má þar
helst nefna Kvennadeild SVFÍ. Hjálparsveitin á
nú ýmiss góð tæki sem gera hana hæfari til að
gegna hlutverki sínu. Ekki er ástæða til að
tíunda þau öll, en nefna mætti bifreið, snjósleða,
súrefnistæki, góða samstæðu talstöðva (labb-
rabb-tæki), bakpoka með nauðsynlegum áhöld-
um til björgunarstarfa, tæki til lýsingar, sjúkra-
kassa, spelkur af ýmsum gerðum o.fl.o.fl.
Sveitin hefur nú á seinni árum notið styrks af
almannafé svo sém aðrar hliðstæðar sveitir í
landinu.
Nokkur undanfarin ár hefur sveitin annast
flugeldasölu hér í bænum um áramótin og hefír
það verið aðal tekjustofn hennar.
Vil ég mælast til við bæjarbúa,- að þeir gefi
því gaum. Á þann hátt stuðla þeir að bættum
slysavornum og auknum möguleikum til að
aðstoð á slysstað geti orðið sem happasælust.
Stjórn og framkvæmdastjóri Vestra hf. hafa
sýnt sveitinni þá vinsemd og stuðning að láta
henni í té geymsluherbergi, eða stjórnstöð í húsi
félagsins við Suðurgötu.
Sveitin er meðlimur í Landssambandi hjálp-
arsveita skáta og hafa þing sambandsins verið
sótt af sveitarmönnum. Skipst hefur verið á
skoðunum og hver lært af öðrum.
Sveitarforingi er Þröstur Marsellíusson,
aðstoðarsvf. Sveinbjörn Sveinbjörnsson og gjald-
keri Tryggvi Tryggvason.
Allir þeir sem kynnst hafa starfi Hjálparsveit-
ar skáta gleðjast yfir tilveru hennar og starfi.
Öruggt er að bæjarbúum er traust af tilveru
hennar og munu því þakka farsæl störf á liðnum
25 árum.
Borgari.
Vegna greinar
Vegna greinar í V.F. hinn 27. september þar
sem ritstjóri blaðsins gerir vetraráætlun Flugfé-
lagsins að umræðuefni og ber fram spurningar
þar að lútandi þá mun ég reyna að svara þeim í
nokkrum orðum.
í fyrstu spurningunni er beðið um svar við
tímasetningu áætlunarflugs til ísafjarðar og er
því þá til að svara að eingöngu er miðað við
þann litla birtutíma sem við búum við yfir
vetrarmánuðina og er því lending hér stuttu
eftir birtingu á morgnana.
Varðandi samráð við bæjaryfirvöld sem spurt
er um þá hefur Flugfélagið haft samband við
þau og hafa óskirnar verið þær að reynt yrði að
lenda hér eins snemma að morgni og hægt væri
og einnig að fjölga reglubundnu áætlunarflugi
með vörur.
Þessum óskum hefur Flugfélagið mætt á þann
hátt að í núverandi vetraráætlun eru settar upp
10 ferðir á viku til ísafjarðar þar af eru 3 ferðir
með vörur.
Komutími 6 þessara ferða er kl. 11,15 eða
stuttu eftir birtingu í skammdeginu en hinar
fjórar kl. 12,15, til hagræðingar á afgreiðslu.
Ég vona að mér hafi tekist að svara spurning-
um ritstjórans og þakka fyrir birtinguna.
F.h. F.í.
R. Adolfsson.
Orð í eyro - • •
. . . Ríkið, það er ég! Ef
við snúum þessum fleygu
orðum upp á okkur sjálf og
ségjum: Bærinn það erum
við,
— erum við þá ekki komin
að kjarna málsins. Bæjarfé-
lag er og verður aldréi ann-
að en spegilmynd íbúanna á
hverjum tíma. Léleg um-
gengni skapar sóðalegan
bæ, snyrtimennska þrifaleg-
an. Svona einfalt er það.
Hversu margir skyldu hafa
hugleitt þetta? Má kannske
enginn vera að því?
Bæjarfélagið er ein fjöl-
skylda þar sem bæjarstjórnin
er húsbóndinn. Það eru því
eðlilega gerðar kröfur til
hennar af hjúunum, bæjar-
búum. En það þýðir ekki, að
þar með sé hinn almenni
bæjarbúi laus allra mála.
Þvert á móti. Skyldurnar við
samfélagið eru eftir, sem áð-
ur.
Mér svona datt þetta í hug
þegar ég leiddi hugann að
nokkru því, sem hefir verið
að gerast í bæjarfélaginu á
undanförnum dögum og vik-
um. Fáein mál hafa þar verið
efst á baugi og sitt sýnist
hverjum. Gott eitt er um það
að segja. Samt finnst mér
sem moldin hafi rokið um
of þrátt fyrir blíðviðrið. Jafn-
vel bæjarstjórnin er sökuð
um að vera eins og níu stein-
blindir kettlingar. Minna má
nú gagn gera.
Þrjú mál hafa einkum yljað
þeim um hjartaræturnar,
sem lagt hafa það á sig, að
sækja bæjarstjórnarfundi að
undanförnu: ,,Olíulóðin“,
Símamálið" og ,,Hótellóðin“
og eins og sjá má af upptaln-
ingunni er hér ekki um neinn
fimmaurabissness að ræða.
Heilbrigðisnefnd bæjarins á
suðupunkti, bæjarstjórninni
stillt upp við vegg líkt og til
aftöku og heyrst hefur að
símamálaráðherrann (sem
greinilega veit stundum
hvað hann vill) hafi þau ráð
ein, að bæjarstjórnin klappi
bara blessuðum símastúlk-
unum. (Svona hlunnindi
ættu reyndar að örfa menn
til setu í bæjarstjórn og veitir
ekki af) Og svo hótelmilljón-
irnar.
Ákvörðun bæjarstjórnar
um staðsetningu bensín-
afgreiðslu, greiðasölu og
bílastöðvar, því hér er ekki
bara um bensínsölu að
ræöa, hefur vakið úlfaþyt.
Alltof langt mál yrði að fara
að rekja mistök bæjarstjórn-
ar er henni sást yfir valdsvið
heilbrigðisnefndar, bókanir
nefndarinnar um útdrætti úr
reglugerðum o.fl. En lítum á
fáein atriði, sem fundið er til
foráttu: Nálægð við væntan-
legt sjúkrahús, umhverfis-
vernd, umferð og hávaða,
sem henni fylgir og ,,kara-
mellubréfútumailt" eins og
ég heyrði það svo skemmti-
lega orðað.
Ef einhverjum dytti nú það
snjallræði í hug að mæla
vegalengdina frá væntan-
legu sjúkrahúsi að væntan-
legri bensínstöð og síðan frá
núverandi sjúkrahúsi að nú-
verandi bensínstöð myndi
hann óhjákvæmilega komast
að þeirri niöurstöðu, að fyrri
leiðin er mun lengri. Þetta
stendur því greinilega til
bóta miðað við núverandi
ástand, sem ég kannast ekki
við að hafa heyrt talað um,
sem vandræði. En hitt
gleymist aftur á móti, að
umferðin um Hafnarstræti,
ekki síst „rúnturinn" er og
verður til staðar (nema þá
með hæpnum lögregluað-
gerðum) hvort sem við höf-
um bensínstöð eða ekki
bensínstöð.
Umhverfisvernd — ég er
mjög hlyntur allri náttúru-
vernd hvers eðlis sem hún
kann að vera. En þegar
maðurinn er búinn að spilla
svo umhverfi sínu að hætta
stafar af, hvað er þá til ráða
annað en að hann geri sjálf-
ur einhverja bragarbót. Fjar-
an við Hafnarstræti er orðin
svo menguð að það er stór-
kostlegt þrifnaðaratriði að
losna við hana. En fjörur
verðum við að hafa og þess
vegna skulum við kappkosta
að vernda og viðhalda fjör-
unni við innfjörðinn og
strandlengjunni út í Arnar-
dal. Ég skal fúsl. taka
það sjónarmið, að æskilegt
væri að hafa opið svæði frá
væntanlegri hraðbraut niður
undir bæjarbryggju pollmeg-
in við Hafnarstræti, en það
munaður, sem bærinn hefur
ekki efni á í dag.
Ekki veit ég hver verða
endanleg viðbrögð heil-
brigðisnefndar, en þau ættu
að vera: ítrustu kröfur um
allan frágang á lóð og
öðrum mannvirkjum
væntanlegrar þjónustu-
stöðvar og síðan strangar
reglur varðandi umgengni
og eftirlit þar að lútandi.
Verði þetta gert er það trúa
mín, að þegar frá líður verði
sá vindverkur, sem þetta
bensínlóðarmál hefur orðið
fáeinum aðilum, ekki jafn
bölvanlegur og hann virðist
vera í dag.
Símamálið er búið að vera
á „viðkvæmu stigi" allt frá
upphafi, svo viðkvæmu, að
segja mætti mér að það
hefði komið í veg fyrir lausn
málsins. Hvað sem öllum
— ,,blíðuatlotatillögum"—
ráðherra líður er Ijóst, að
bæjaryfirvöld eiga ekki í
neinu stríði við símastúlkur
heldur yfirmenn stofnunar-
innar allt upp í ráðherra. Vit-
að er, að ekki munu allir
ráðherrar hafa sömu afstöðu
til málsins og varanleg og
viðunandi lausn þessa máls,
ekki bara fyrir (safjörð heldur
í reynd fyrir fjölmörg önnur
sveitarfélög, verður að koma
ofanfrá. Allt annað er kák og
ekki sæmandi að sleppa við-
komandi við aö taka afstöðu
til vandans — og leysa
hann.
Nú hafa bílstjórarnir tekið
til við uppfyllingu fyrir Hótel
ísafjörð og er vel. Vonandi
tekst að byrja á grunninum í
haust og allir hljóta að ala
von í brjósti að hótelbygg-
ingin verði annað og meira
en draumur. Lausn lóða-
málsins kann að vera flókn-
ari en í fljótu bragði virðist.
Skal tekið undir það sjónar-
mið er fram hefur komið, að
við verðum að treysta því, að
bæjarstjórnin hafi þar gætt
hagsmuna bæjarfélagsins,
samhliða því er hún varð að
fá fram skjóta lausn. Hvort
byrjað verður á hótelinu í
haust eða ekki getur skipt
sköpum.
Þessi mál sem hér hafa
orðið tilefni að vangaveltum
hafa verið mjög til umræðu
undanfarið. Eigum við ekki
að leggja til hliðar um sinn
fyrirfram neikvæða afstöðu
og vona að þau fái farsæla
lausn og verði okkur til
ánægju og bænum til fram-
dráttar. Það er reyndar ekki
orðið andskotalaust að vera
í bæjarstjórn: Bæjarstjórnin
er hundskömmuð fyrir að
gera aldrei neitt og þegar
hún ræðst í framkvæmdir er
hún skömmuð fyrir að gera
þetta nú ekki öðruvísi. Af-
staða manna til bæjaryfir-
valda og bæjarfélagsins yfir-
leitt er vissulega umhugs-
unar og umræðu verö. Nú
má enginn skilja orð mín á
þann veg, að ekki megi
gagnrýna bæjarstjórnina,
síður en svo. En mér finnst
að oft á tíðum séu kveðnir
upp dómar án þess að
kynna sér málsatvik. Og það
er ekki nógu gott.
Ja, mér bara datt þetta í
hug, snona til að leggja orð í
belg.
.....Jóhann