Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 12.03.1980, Page 2

Vestfirska fréttablaðið - 12.03.1980, Page 2
vestfirska rRETTABLADfD I vestfirska I FRETTABLAÐID Útgefandi og ábyrgðarmaöur: Árni Sigurðsson Blaðamenn: Eðvarð T.Jónsson Elísabet Þorgeirsdóttir Prentun: Prentstofan ísrún hf., ísafirði. Liölega tvær vikur eru nú liðnar frá því sjö Vestfirðingar fórust af slysförum í fárviðri. Einn maður fórst í bílveltu á fjallveginum yfir Hálfdán, en sex sjómenn týndu lífi við rækjuveiðar. Tveir á Arnar- firði með m.b. Vísi frá Bíldudal, en fjórir á ísafjarðardjúpi með m.b. Eiríki Finnssyni og m.b. Gullfaxa. Vestfirska fréttablaðið vottar aðstandendum þessara vösku drengja dýpstu samúð vegna þessa á- falls. Þegar slíkir atburðir gerast verður best Ijóst hve lítils maðurinn má sín gagnvart náttúruöflunum og hvernig fræknustu og dugmestu menn verða að lúta í lægra haldi fyrir ægivaldi höfuðskepnanna. Ýmislegt er þó gert til þess að reyna að verjast áföllum af þessum völdum og má þar til nefna starfsemi björgunarsveita, sem eru frjáls félagasamtök, byggð upp af einstaklingum, sem vilja fórna kröftum sínum og tíma til starfs, sem verða mætti meðbræðrum til hjálpar á hættutundu. Hér við Djúp starfa fimm björgunar- sveitir. Ein í Súðavík, þrjár á ísafirði; Björgunarsveitin Skutull og Björgunar- sveitin í Hnífsdal, sem eru deildir innan S.V.F.Í. og Hjálparsveit Skáta á ísafirði og Björgunarsveit S.V.F.Í. í Bolungarvík. Sveitir þessar starfa sjálfstætt hver um sig og hefur hver þeirra eigin stjórnstöð og sinn tækjabúnað. Á undanförnum árum hefur gengið á ýmsu um stjórnun og starf björgunar- sveitar S.V.F.Í. á ísafirði og er þess að minnast að nokkurskonar stjórnarbylting var gerð hjá sveitinni fyrir fáeinum árum. Þá gerðist það að hópur ungra manna Öflugt starf björgunar- sveitanna nauðsynlegt tók völdin í sveitinni í sínar hendur, en menn sem um áratuga skeið höfðu unnið að uppbyggingu tækjabúnaðar, skipu- lagningu á starfi sveitarinnar og að marg- háttuðum björgunarstörfum á vegum hennar hurfu frá. Með þessum mönnum, sem bjuggu yfir reynslu og þekkingu, sem einungis ára- tuga starf í slíkum félagsskap getur gefið, er hætt við að sveitin hafi misst þá kjölfestu sem starfi hennar er nauðsyn- leg. Nú má segja að þriðja kynslóðin hafi tekið til starfa í björgunarsveitinni. Þeir aðilar, sem gerðu ,,Byltinguna“ á sínum tíma eru nú horfnir frá. Vonandi tekst þeim, er nú starfa í sveitinni að hagnýta sér reynslu þeirra manna, sem lengst hafa að þessum málum unnið og öðlast sjálfir þá reynslu og þekkingu sem nauð- synleg er til þess að út úr því komi öflug og vel skipulögð björgunarsveit. Það sem er ef til vill mikilvægast til þess að starf björgunarsveitanna megi verða að gagni er styrk sameiginleg yfir- stjórn sveitanna við Djúp og mótaðar áætlanir um það hvernig bregðast skuli við í hinum ýmsu tilfellum, sem komið geta upp. Til mun vera nú skipulag, sem kveður á um það hvernig stjórna beri sameiginlegum aðgerðum sveitanna, en enn vantar þjálfun og samræmingu til þess að það skipulag sé virkt. Þá er ótalin fjárþörf sveitanna og þörf þeirra fyrir viðunandi aðstöðu og 'ækja- búnað. Það er mál, sem snýr að almenn- ingi, ekki síður en að sveitunum sjálfum. Ekki er að efa að fólk hér í byggðunum við Djúp, einstaklingar og fyrirtæki, sjá nauðsyn þess að hafa ávallt til reiðu vel búnar björgunarsveitir þegar válegir at- burðir gerast og sjálfsagt er að allir standi saman um að styðja starf björgun- arsveitanna eftir megni. Sex með Wichmann Frá Vestfjörðum eru nú geröir út 5 togarar sem knúnir eru norskumWichmannvélum. Sjötti togarinn er væntanlegur nú al- veg á næstunni og verður þá nákvæmlega helmingur Vest- fjarðtogara með vélar af þessari tegund. Alls eru í dag um 70 skip og bátar í íslenska flotan- um með Wichmann vélar, þar af 15 togarar og 27 loðnu- og netabátar. Þessar upplýsingar komu fram á blaðamannafundi sem norska vélafyrirtækið a/s Wiehmann hélt nýlega ásamt umboðsaðila sínum á íslandi. Einari Farestveit & Co. h/f. Megintilgangur fundarins var að tilkynna að a/s Wichmann væri kornið út úr þeim fjárhagskrögg- um. sem fyrirtækið lenti í árið I978. Fundinn sátu auk blaða- manna. sendiherra Noregs á ís- landi. frú Annemarie Lorent/en. Morten Fleischer. aöalforstjóri a/s Wichmann. kona hans og sonur. Tore Sörensen sölustjóri Wieli- mann fyrir ísjand og Færeyjar. og svo Arthur Farestveit og Ari Guð- mundsson frá Einari F'arestveit & Co. Framleiðsla Wichmann á vélum nær allt aftur til 1903. en laust eftir 1920 voru fyrstu vélarnar fluttar til íslands. Um langt árabil hefur ísland verið annar þýðingarmesti markaður fyrir Wichmann skipa- og bátavélar. Frá árinu 1964 hefur Einar Farestveit & co. h/f annast alla þjónustu við vélarnar frá fyrir- tækinu. Á vegum Einars starfa 2 viðgerðartæknifræðingar. sem annast viðhald og reglulegt eftirlit með vélunum á íslandi. Eins og áður gat lenti Wich- mann í erfiðleikum árið 1978 FLUGFÉLAGIO ERNIR P ISAFIROI mm ISAFJORÐUR - Símar 3698 og 3898 REYKJAVÍK Fljúgum frá ísafirði til Reykja- víkur snemma hvern morgun og frá Reykjavík til ísafjarðar um hádegi. Um leiguflug er að ræða, með takmörkuðu sæta- framboði og verður fargjaldi stillt í hóf. Ferðirnar eru settar upp í trausti þess, að næg þátttaka fáist. Farpantanir þurfa að berast félaginu tím- anlega svo ráðrúm gefist til að skipuleggja leiguferðirnar. Símarnir á Isafirði eru 3698 og 3898 og í Reykjavík 10880. ATHUGIÐ AÐ VIÐ LEGGJUM SÉRSTAKA ÁHERSLU Á FLJÓTA OG ÖRUGGA FLUTNINGAÞJÓNUSTU MEÐ VARAHLUTI FYRIR ATVINNUTÆKI. ___ FLUGFÉLAGIO ERNIR p ISAFIROI Ari Guömundsson, tæknifræðingur hjá Einari Farestveit, um- boðsmanni Wichmann á fslandi, Tore Sörensen, sölumaður fyrir ísland og Morten Fleischer vegna samdráttar í skipasmíðaiðn- aði. Varð fyrirtækið gjaldþrota og óttuðust þá margir útgerðarmenn að ekki yrði staðið við tilskyldar ábyrgðir á vélunum og að skortur yrði á varahlutum og þjónustu. Þessir erfiðleikar leystust á skjótan hátt sakir mikils þrýstings á norsk stjórnvöld. bæði frá norskum og íslenskum útgerðarmönnum og samtökum þeirra. fslenskir útgerð- armenn héldu m.a. fúnd með norska sendiherranum og hafði sá fundur töluverð áhrif. Það varð úr að norski iðnþróunarsjóðurinn lagði fram fjármagn til rekstrar fyrirtækisins. en auk þess gerðust 3 af stærstu opinberu fyrirtækjum Noregs hluthafar í Wichmann. Þessir stóru bakhjarlar eru Horten Verft. Kongsberg Vánenfabrikk og Kværner Gruppen. Aðrir hlut- hafar eru hreppurinn þar sem fyr- irtækið er staðsett og fjölmargir skipaeigendur í Norcgi. Verk- smiðja a/s Wichmann er rétt utan við Bergen og vinna þar nú um 350 manns. Söluskrifstofur eru í Bergen. Þá rekur a/s Wichmann dótturfyrirtæki í Bandarikjunum. Hinir öflugu hluthafar í fyrir- tækinu gera því kleift að halda áfram stöðugum endurbótum og rannsóknum á framleiðslu sinni. Að loknum áralöngum rannsókn- um hafa tæknimenn Wichmann i samvinnu við véladcild tæknihá- skólans í Þrándheimi þróað nýja forstjóri Wichmann. vélargerð. sem kölluð er AXA. Er sú tegund m.a. í Júlíusi Geir- mundssyni (nýja). Hönnun þessar- ar tegundar var byggð á reynslu sem fengist hafði með s.k. AX vélum, sem fyrst voru framleiddar árið I970. Júlíus Geirmundsson (eldri) var fyrsta skipið í íslenska fiskveiðiflotanum sem var með slíka vél. Wichmann vélarnar eru allar tvígengisvélar og hafa enga ventla. en það gerir þær mjög hentugar fyrir svartolíubrennslu. Alls brenna 13 Wichmann vélar svart- olíu. og er Framnes frá Þingeyri með eina þeirra. Hægt er að taka upp notkun svartolíu á þessum vélum án mikillar fyrirhafnar eða kostnaðar. Eru dæmi þess að vélar í algengum stærðarflokki í togur- unum hafi sparað allt að 30 milljónum króna á ári. Þessar vél- ar kosta á núverandi gengi um 250 milljónir íslenskra króna. Þess má geta að framleiðsla a/s Wichmann fyrir þetta ár er öll seld. alis um 80 þús. hö. Pantanir hafa borist langt fram í timann og er nú unnið að samningum við nokkur útgerðarfélög um vélar er skulu afhendast á næstu árum. Sýna þessar pantanir að þrátt fyrir tímabundna erfiðleika njóta Wiehmann vélar eftir sem áður mikils trausts hjá útgcrðarmönn- unt víða um heim.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.