Vestfirska fréttablaðið - 12.03.1980, Qupperneq 4
vestfirska
FRETTABLAmS
Sigfús Valdimarsson:
Hvar eru þeir níu?
Á síðastliðnu vori var hér á ferð
enskur trúboði Robin Baker að
nafni. Hafði hann 2 samkomur á
ísafirði og eina í Bolungarvík. Ég
hygg að síðari samkoman í ísa-
fjarðarkirkju hafi verið einstök í
kirkjusögu Isafjarðar. og hefði ver-
ið eðlilegt að hún markaði sérstök
straumhvörf í lífi margra.
Um þetta skrifar Vestfirska
fréttablaðið í 3. tbl. þ.á. Mig lang-
ar til að koma með nokkrar at-
hugasemdir og skýringar viðkom-
andi þessu máli.
Það er byrjað með að vitna í
stutt símtal sem blaðamaður V.f.
átti við mig. Mér er alveg ókunn-
ugt um hvort sú skrifstofa er stór
eða líul. sem Robin Baker vinnur
á og gat heldur ekkert um það.
enda skiftir það engu máli. Þá vil
ég taka það fram að ég er ekki
forstöðumaður Salem safnaðarins.
Það hefir enginn verið síðan Göte
Andersson fór héðan fyrir 7 árum
síðan. Bræður safnaðarins vinna
saman í fullu samráði við söfnuð-
inn án þess að nokkur hafi verið
kosinn þar öðrum æðri.
í upphafi hverrar samkomu tal-
aði Robin Baker ávalt út frá Guðs
orði. þar sem hann boðaði hjálp-
ræðið í Jesú Kristi og að hver sem
..ákalli hans nafn muni frelsast"
Post:2l.
Sigfús Valdimarsson
Þetta gerist aðeins fyrir trú og
áhrif heilags anda. Hann tók það
mjög skírt fram að hann væri
enginn læknir og sér bæri því |
ekkert þakklæti né laun. Krafta-
verkin á samkomum hans ættu
heldur ekkert skyltvið andatrú eða
svokallaðar huglækningar. eins og
því miður verður vart hjá svo
mörgum. er meta allt að jöfnu.
hvaðan sem það kemur.
Fólk þarf að gera greinarmun á
hlutunum. Robin Baker sagði að
það sem gerðist. væri það sama og
Ritningin greindi frá er Jesús
Kristur predikaði fagnaðarerindið
og læknaði af hverskonar krank-
leika. og einnig lærisveinar hans
eins og hann hafði gefið þeim
fyrirheit um Jóh 16:23 = 24 og
Mark 16:17=18. Þetta viðurkenn-
ir blaðamaður V.F. og bætir svo
við: ..Mikilleiki Krists getur tæp-
lega verið fólginn í því að Hann
vann kraftaverk og læknaði sjúka
undursamlega heldur einhverju
öðru meira". Þetta ..annað meira"
er að hann var eingetinn sonur
Guðs. gefinn þeim til eilífs lífs.
sem við honum taka og á liann
trúa. Jóh 1:12=14 og 3:16. Þetta
verður aidrei skilið út frá sjónar-
miði efnishyggjunnar aðeins trúar-
innar. Margir læknar. sem ölast
háfa trú á Drottinn viðurkenna
þaó
kostar
ekki krónu
Þaó er sama hvar þú átt heima á landinu,
þú þarft ekki að borga neinn auka flutn-
ingskostnaó þegar þú kaupir nýjan Skoda.
Vió sendum þér einfaldlega bílinn á næstu
höfn og þaó kostar þig ekki krónu.
Hins vegar - ef þú vilt heldur koma suóur
til þess aö sækja nýja Skodann, þá lætur
þú okkur vita og vió greiðum aö sjálfsögöu
flugfarió. Þannig njóta allir landsmenn
sömu kjara hjá okkur.
JÖFUR
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
þetta og þá rekast ekki á trú og
vísindi. ..En trúin er fullvissa um
það. sem menn vona. sannfæring
um þá hluti, sem eigi er auðið að
sjá." Hebr 11:1.
Þá víkur blaðamaðurinn tali
sínu til konu. sem fékk undraverða
lækningu meðan Robin Baker var
hér. Er ég mjög undrandi yfir
afstöðu hennar til þessa máls. Ég
var á umræddri samkomu ,í
kirkjunni og sá er hún gekk fram
og aftur um kirkjuna með skóna í
höndunum. Ég varð mjög hissa að
ég heyrði hana aldrei lofa Guð
fyrir þessa miklu náð hans. því af
náð er þetta sem annað frá hans
hendi en ekki fyrir okkar verð-
leika.
Helga segir um fyrri samkom-
una sem var á í kirkjunni: ..Sann-
leikurinn er sá, að allt sem
skeði í kirkjunni þetta kvöld
kom afskaplega illa við mig. Ég
nefni sem dæmi aö sóknar-
presturinn var með þessum
mönnum í kirkjunni og mér
fannst einhvernveginn að hann
ætti ekki að koma nálægt
þessu". Síðar segist hún hafa
fengið vísbendingu um þetta í
draumi nóttina eftir. Þar birtist
enn náð Guðs gagnvart þessari
konu. Ég býst við að sóknarprest-
urinn svari fyrir sig og greini frá
afstöðu sinni og reynslu í þessu
máli. Ég vil aðeins segja í þessu
sambandi að sr. Jakob var með af
lífi og sál það leyndi sér ekki. enda
hvatti hann fólk til að koma fram
til fyrirbæna. og einnig að hinir
mörgu sem hlotið höfðu lækningu
eða andlega blessun héldu áfram
að lofa Drottinn og þakka honum
á bænastundum kirkjunnar. Það
hafa víst fæstir gert og minnir það
óneitanlega á 10 menn sem Jesús
læknaði eitt sinn af alvarlegum
sjúkdómi. Það var aðeins einn sem
snéri aftur og gaf Guð dýrðina. Þá
sagði Jesús: ..Urðu ekki þeir tíu
hreinir? Hvar eru þeir níu? Lúk
17:17.
Helga heldur áfram að lýsa and-
legri vanlíðan sinni eftir að hún
hefir fengið þessa undursamlegu
lækningu á fætinum. Þetta er sorg-
arefni. Ég er sannfærður um að ef
hún hefði farið að dæmi samverj-
ans og þakkað Jesú opinberlega,
hefði hún fengið frið í hjarta. þann
frið sem er ..æðri öllum skilningi"
Fii 4:7. I stað þess virðist sem hún
fyllist þrjósku og hælist jafnvel um
af því að ..hafa alveg haldið jafn-
væginu og ekki orðið ..kristnari"
fyrir bragðið eða lagt meiri stund á
Bíblíulestur. Og síst af öllu vildi ég
nota atvik sem þetta til að halda
uppi áróðri fyrir trúnni" segir hún.
Hvað meinar Helga með svona
tali? Finnst henni virkilega þetta
ekki vera þess vert að gefa Guði
dýrðina fyrir það? Er þetta ekki
trúar styrkjandi? Ósjálfrátt koma
manni í hug orð Jesú er hann sagði
við lama manninn er hann hafði
læknað. ..Sjá. þú ert heill orðinn.
syndga þú ekki framar. til þess að
þér vilji ekki annað verra til" Jóh
5:14. Hvar eru þeir níu? Hvar eru
allir þeir sem fengu bæði andlega
og líkamlega lækningu á þessum
samkomum. Hví hafa þeir ekki
látið til sín heyra? Guði til dýrðar
og öðrum til blessunar og uppörf-
unar.
Ég hefi með þessum línum ekki
hvatt neinn til að ganga í hvíta-
sunnusöfnuðinn. en samt er það
svo að sérhver manneskja verður
að koma til Jesú í því ástandi sem
hún er og orð Jesú standa óhögg-
uð: ..Komið til mín. allir þér. sem
erfiðið og þunga eru hlaðnir. og ég
mun veita yður hvíld" Matt 11:28.
..Sá sem trúir og verður skírður.
mun hólpin verða" Mark 16:16 og
..Enginn getur séð guðsríki nema
hann endurfæðist" Jóh 3:4. Þetta
gildir um alla í hvaða kirkjudeild
eða söfnuði sem þeir eru. Sá. sem
tekur á móti Jesú öðlast nýtt líf.
Það verður í sannleika ..stefnu-
breyting". Ég vil svo að endingu
benda lesendum á að lesa bókina
..Ég trúi á kraftaverk" sem segir
frá mörgum undraverðum krafta-
verkum á okkar tímum.
Sigfús B. Valdimarsson
FÓDUR
fyrir allan búpening.
3
4-\
Næsti sláturdagur stórgripa
verður 9. apríl n.k.
KAUPFÉLAG ÍSFIRÐINGA
Sláturhús — Sími 3992
5 tonna trilla til sölu
Frambyggð, dekkuð, með radar, dýptar-
mæli og 55 hestafla Ford vél. Tvær
rafmagnsrúllur fylgja.
Upplýsingar í símum 4060
og 3529, ísafiröi, eftir
klukkan 7 á kvöldin.