Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 12.03.1980, Síða 8

Vestfirska fréttablaðið - 12.03.1980, Síða 8
SKIÐABUNAÐUR á hagstæðu verði: SVIGSKÍÐI, Compact kr. 36.500 BINDINGAR, hæll-tá kr. 21.900 SVIGSKÓR, Risport nr. 39-45 kr. 26.500 SKIÐASTAFIR kr. 6.800 SPORTHLAÐAN Sími 4123 ísafirði vestfirska FRETTABLADID ERNIR f ISAFIROI Símar 3698 og 3898 BILALEIGA Bensínþjófnaðir Mjög mikii brögð hafa verið að því núna í skammdeginu, að bensíni hafi verið stolið af bif- reiðum hér á ísafirði og ná- grenni. Hefur þessi þjófnaðar- faraldur staðið allt síðan s.l. haust, að því er Guðmundur Sigurjónsson, fulltrúi bæjarfó- geta, tjáði blaðinu. Bensínþjóf- arnir eru yfirleitt unglingspiltar, og eru þeir vel útbúnir, hafa jafnvel dælur og tangir til að brjóta upp bensínlokin. Það veldur lögreglunni erfiðleikum hve tregt fólk virðist til að kæra þessa þjófnaði og er ástæðan sú, að það telur litlar líkur á að lögreglunni takist að hafa hend- ur í hári þjófanna. Guðmundur sagði. að ef menn vildu að bensíntankurinn á bílum þeirra yrði hreinsaður, væri ein- faldasta ráðið að skilja bílinn eftir við stöðvarbygginguna á Isafjarð- arflugvelli um nótt eða yfir helgi. Hafa þjófarnir haft mikið umleikis á flugvellinum undanfarna mán- uði og sótt þangað margan dýran bensíndropann í bílana, sem þar eru iðulega skildir eftir. Þá hafa verið mikil brögð að þjófnuðum af þessu tagi inni í Firði og eru þeir af skiljanlegum orsökum ætíð framdir að næturlagi. Miklu minna er um það en skyldi, að menn láti lögregluna vita, þegar þeir koma að bílum sínum bensín- lausum, en það kemur einnig fyrir að menn átta sig ekki á því að þjófnaður hafi verið framinn fyrr en nokkru eftir að hann átti sér stað. Nokkrir þessara pörupilta hafa náðst, en þeir munu þó fleiri. sem hafa sloppið undan réttvísinni og halda áfram þessum ljóta leik. Einnig hefur það komið fyrir, að þjófarnir hafa verið staðnir að verki en einungis reknir burtu og málið síðan látið niður falla. Sagði Guðmundur, að ef stemma ætti stigu við þessum ófögnuði yrðu menn að taka höndum saman um að kæra til lögreglunnar þegar í stað, þegar grunur leikur á að bensíni hafi verið stolið af bifreið- um þeirra. Þátttakendur í keppninni um Grænagarðsbikarinn. Ljósm. Sveinn Ingi Guðbjörnsson. Grænagarðsbikarinn Jönas mótmælir ( Vestfirska fréttablaðinu, 15. febrúar s.l., er viðtal við Kristján Jóhannesson, sveitarstjóra á Flateyri, þar sem hann segir að ég hafi verið á móti brúarfram- kvæmdum yfir Önundarfjörð. Ég mótmæli þessum ummælum mjög harðlega. Ég hef verið talsmaður þessara fram- kvæmda frá fyrstu tíð og get bent á því til sönnunar, að þeg- ar þessar framkvæmdir voru að hefjast í fyrrasumar er haft eftir mér í viðtali við Vestfirska fréttablaðið 1. ágúst eftir að Ibaðamaður hefur spurt um brú- arlagningu yfir Önundarfjörð: ..Jónas taldi þá ákvörðun rétta. að leggja veg yfir Önundarfjörð og kvaðst fagna þeirri ákvörðun. að hafist verður handa urn byggingu hans í sumar. Sagði Jónas það skoðun sína að bygging brúar og vegar yfir fjörðinn væri að vísu dýrari en vegarlagning fyrir fjarð- arbotninn. En erfiðleikarnir við að halda vegi fyrir fjarðarbotninum opnum að vetrarlagi. auk þess hve það styttir leið Flateyringa á flug- völl. réttlæta fyllilega þessa vegar- og brúarbyggingu." Vænt ég þess að menn séu ekki að gera mér upp orð. sem ég hef aldrei sagt. Ég hef ekki hitt einn einasta mann hér í Dýrafirði. sem ekki er fylgjandi þessum frarn- kvæmdum. Það vita flestir. að nú er til varaflugvöllur fyrir ísafjörð hér við Þingeyri og hefur veriö notað- ur sem slíkur í nokkur ár. Hef ég Jónas Ölafsson ekki trú á að annar finnst betri. En hann hefur verið notaður altof sjaldan vegna skorts á farartækj- unt við að koma fólki á milli staða landleiðina. að ég ætla. Ætti að vera hægt að bæta úr því. Og svo er það Breiðadalsheiði.. sem er ákaflega erfið á vetrum. en þar unt má bæta ef vilji væri fyrir hendi að treysta betur samgöngur við ísafjörö. En það er eins og þeir © POLLINN HF Isafirði Sími3792 menn. sem mest hafa talað um þessi mál. sjái ekki vestur yfir heiði. Það vantar ekki varaflugvöll fyrir ísafjörð. hann er fyrir hendi. En það þar að bæta og stytta leiðina milli þessara staða. Brú á Önundarfjörð lagar mikið og stytt- ir leiðina. Þá þarf að brúa Dýra- fjörð og gera nýjan veg yfir Breiðadalsheiði. Er víst að þessi þáttur samgöngumála kemur í ná- inni framtíð. En það þarf að hraða þessum framkvæmdum svo þær komi í gagn sem allra fyrst. þannig að íbúar þessara staða geti haft samskipti sín á milli allt árið. Til dæmis er verið að byggja fjórð- ungs sjúkrahús á ísafirði og er okkur ætlað að njóta þjónustu þar. Gefur það auga leið að bæta verð- ur jafnframt samgöngur á landi milli þessara stða. ef sú þjónusta á að koma aö gagni. Ennfremur má benda á. að nú eru til tvær flugvél- ar hjá flugfélaginu Örnum á ísa- firði. sem geta oft flogiðþótt Flug- leiðir geti ekki lent á Isafjarðar- flugvelli. Það er ekki nema tíu mínútna flug milli ísafjarðar og Þingeyrar. Gætu þær þar af. leið- andi flutt farþega á milli þessara staða á stuttum tíma. ef þörf krefði. Það hlýtur að vera krafa ísfirðinga og allra annarra. sem þessarar þjónustu eiga að njóta. að þegar verði bætt úr þessum ntál- um. svo fólk þurfi ekki að bíða dögum og vikum saman til að komast milli Vestfjarða og Reykjavíkur. ef annað er liægt. Jónas Ólafsson sveitarstjóri KASTLJÓS! ERUM AÐ FÁ ÚRVAL AFSTOFU KASTLJÓSUM Eigum einnig flestar gerðir af kastljósaperum lituðum og ólituðum. Einnig allar tegundir af Ijósaperum Svigkeppnin um Grænagarðs- bikarinn fór fram á Seljalandsdal s.l. sunnudag. 13 keppendur voru skráðir tíl leiks. þar á meðal Sig- urður H. Jónsson. sem sigraði ör- ugglega með bestan brautartíma í ÚRSLIT: 1. Siguröur H. Jónsson 2. Valdimar Birgisson 3. Guömundur Jóhannss. 4. Hafsteinn Siguröss. 5. Valur Jónatansson 6. Árni Sigurðsson báðum ferðum. Valdimar Birgisson og Guðmundur Jóhannsson áttust við unt annað sætið og hreppti Valdimar það. aðeins þremur hundraðshlutum úr sekúndu á und- an Guðmundi. Veður og öll skil- yrði til keppni voru hin bestu. . ferð 2. ferð Samt. 52,97 42,45 95,42 54,47 42,77 97,24 53,55 43,72 97,27 55,37 43,98 99,35 56,74 45,28 102,02 58,88 46,59 105,47 Helga Ingólfsdóttir Sembaltönleikar Föstudaginn 28. ntars n.k. gefsl Isfirðingum einstakt tækifæri. en þá mun Helga Ingólfsdóttir halda tónleika í Isafjarðarkirkju og leika einleik á sembal. Ekki er lil neitt slíkt hljóðfæri á staðnum og mun Helga því flytja hljóðfæri með sér að sunnan. Sernbal er mjög gamalt hljóðfæri og á það var leikið áður en píanóið kom til sögunnar. en sembalinn má kalla fyrirrennara píanósins. Hljómur þess líkist fremur gítar- hljóm en píanóhljóm því strokið er um strengina um leiö og ýtt er á nótur nótnaborðsins en ekki lamið á þá eins og gerist þegar leikið er á píanó. Helga mun leika verk eftirgamla meistarann J.S. Bach og tvö íslensk nútíma lónskáld. Á efnisskránni eru þessi verk: Tokkata eftir J.S. Bach. Da. fantasía eftir Leif Þóra- rinsson. Sembalsónata eftir Jón Ás- geirsson sem frumflutt var á þessu ári og Overture og Partita í frönsk- tim stíl eftir J.S. Baeli.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.